Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 FRJÁLSARÍÞROTTIR 100 ára af mælismót Ármanns í kvöld ÁRMENNINGAR halda upp á það í kvöld, með móti á Val- bjarnarvelli, að 100 ár eru liðin síðan farið var að leggja stund á frjálsar íþróttir á vegum fé- lagsins. Keppt verður í 15 greinum og er búist við að flestir bestu frjálsíþróttamenn landsins verði meðal þátttak- enda. Mótið hefst klukkan 6.30 og að sögn Stefáns Jóhannsson- ar, þjálfara Ármenninga, er mein- ingin sú að láta mótið ganga hratt fyrir sig, eða ekki lengur en 90 mínútur. „Þetta verður boðsmót, þar sem öllum bestu frjálsíþróttamönnum landsins hefur verið boðin þátttaka, og reikna ég fastlega með að flest- ir þeirra mæti,“ sagði Stefán. Keppt verður í eftirtöldum grein- um á mótinu: 100 m hlaupi karla og kvenna 400 m hlaupi karla og kvenna 1500 m hlaupi karla og kvenna 4x100 m hlaupi karla og kvenna 5000 m hlaupi karla 110 m grindarhlaupi kvenna Kringlukasti karla og kvenna Langstökki karla og kvenna Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Laugavegur1-33 Hverfisgata 63-115 Skúlagata Laugavegur101-171 Sogavegur 101-109 o.fl. Sogavegur 117-158 Freyjugata 28-49 o.fl. Austurgerði Stigahlíð 49-97 Ármúli Álftamýri, raðhús KOPAVOGUR Sunnubraut ÍSKNATTLEIKUR GLIMA Gretzky kominn tilnýja félagsins Kanadamaðurinn Wayne Gretzky, sem seldur hefur verið frá Edmonton Oilers til Los Angeles Kings kom fram á blaðamannafundi hjá sínu nýja félagi í gær og er hann á myndinni hér að ofan, til vinstri, ásamt eiganda félagsins, Bruce McNall og treyju númer 99 sem hann mun leika í — eins og hann gerði hjá Oilers. Isknkttleiksunnendur í Edmonton voru niðurbrotnir í fyrradag eftir að fréttist að leikmað- urinn væri að yfirgefa félagið sem hann hefur leikið með í níu ár. Símalínur voru allar rauðglóandi í aðal- stöðvum og hótuðu menn unnvörpum að afpanta ársmiða sína. í Los Angeles var ástandið öðru vísi; símalínur í Forum íþróttahöllina að vísu einnig rauðglóandi, en þar voru kepptust menn við að panta miða á leiki LA Kings í vetur.- Eins og kom fram í blaðinu í gær kvæntist Gretzky nýlega leikkonunni Janet Jones, sem býr í Los Angeles og vildi hann því flytjast þangað. „Ég veit að það er mjög erfítt fyrir Wayne að yfírgefa Edmonton," sagði leikkonan á blaðamannafundi í gær — en bað þess að Kanadamenn hugsuðu ekki illa til hennar. Margir aðdáendur Gretsky í Kanada höfðu nefnilega ásakað hana um að ginna hann burt. Hafa margir líkt henni við Yoko Ono, ekkju Bítilsins John Lennon, en hjónaband þeirra var talin ástæða þess að hljómsveitin lagði upp laupana á sínum tíma. Islenzkir glímu- menn keppa í Frakk- landi og Bretlandi Sýna íslenzka glímu og keppa ífangbrögðum. Verður íslenzk glíma viðurkennd íþróttagrein erlendis? FIMM íslendingar halda í dag utan til að sýna íslenzka glfmu og keppa f axlatökum og lausa- tökum á alþjóðlegu móti glímu- manna í Frakklandi. Þeir munu eftir það fara til Skotlands og Norður-Englands og hitta þar fyrir hóp átta ungra íslenzkra glímumanna og sýna þar og keppa ásamt þeim. Tilgangur- inn með utanlandsferðum þessum er að koma íslenzkri glímu á framfæri erlendis og vinna henni sess þar. Glímusamband íslands gerðist aðili að Alþjóðasambar.di kelt- neskra fangbragða, IFCW, á liðnu sumri. Sambandið er upphaflega stofnað af samtökum um þjóðleg fangbrögð í Norður-Englandi, Skotlandi og Bretagne í Frakkl- andi. Hingað til mest borið á tveim- ur greinum fangbragða í starfsem- inni, axlatökum og lausatökum en íslenzkir glímumenn hafa mikinn hug á að íslenzk glíma verði þriðja keppnisgreinin á vegum sambands- ins. Nú virðist vera að opnast tæki- færi til að svo verði. Glíman keppnisgrein erfendis? Næsti aðalfundur IFCW verður Tekst fslenskum glímumtínnum að vlnna fslensku glímunnl sess erlendls? haldinn í Frakkalndi 13.ágúst og þá kemur í ljós hvort takmark ís- lendinga næst. Þar með væri orðinn að veruleika draumur ólympíufa- ranna frá 1908 um að gera glímuna að keppnisgrein á erlendum vett- vangi. Einnig væri það íslendingum mjög mikilvægt þar sem stefnt er að því að meistaramótið í keltnesk- um glímutökum verði haldið hér árið 1990. íslenzku keppendumir fímm, sem keppa í Frakklandi, hafa allir stund- að glímu eða júdó. Þeir em Karl Erlingsson, 68 kg flokki, Amgeir Friðriksson, 74 kg flokki, Jón Birg- ir Valsson, 81 kg flokki, Heimir Eðvarðsson, 100 kg flokki og Amar Marteinsson, yfírþyngd. Farastjóri er Jóhannes Jónasson. Sigurlíkur íslendinganna em taldar þó nokkr- ar í sumum flokkunum. Einnig var ætlunin, að Garðar Vilhjálmsson færi með en hann var álitinn sigur- stranglegur í opnum flokki en hann forfallaðist á síðustu stundu og kemst ekki með. íslendingarnir keppa fyrst á meistaramóti IFCW 13. og 14. ágúst í Frakklandi en eftir það halda þeir til N-Englands og Skot- lands og munu þar hitta fyrir hóp átta unglinga, sem ásamt hinum fímm mun keppa og sýna þar íslenzka glímu 18.-21. ágúst. Fang- brögð njóta töluverðra vinsælda í Bretlandi og er líklegt, að áhorfend- ur að einu mótinu í Norður-Eng- landi verði 20-25 þúsund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.