Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 39
39
‘fi! TSðOA VI STUDAGiniIVdlM GIGA.IHVIUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
ist mágkona hennar við að fá hana
heim í þorpið aftur og tókst það
eftir nokkurt stapp. Stúlkan hugðist
þá stofna til tengda við ætt piltsins
en það var ekki hægt vegna þess
að efnahag fjölskyldu hennar hafði
hnignað.
Pilturinn saknaði félaga síns og
þar sem hann hafði ekkert frétt af
æskuvinkonu sinni langalengi hélt
hann til þorps hennar og komst að
því að hún hafði verið samstúdent
hans og félagi og væri nú í þann
mund að giftast. Lagðist hann þá
sjúkur og dó.
Á brúðkaupsdegi sínum frétti
síðan stúlkan að æskuvinur hennar
væri látinn. Hélt hún að grafhýsi
hans. Þá dundi þruma, grafhýsið
opnaðist og stúlkan hljóp inn, en
þjónn hennar hélt eftir tveimur
bútum úr brúðarskarti hennar. Efn-
isbútamir breyttust í fiðrildi sem
flögruðu brott, en grafhýsið luktist
aftur.
Tilvonandi eiginmaður stúlkunn-
ar lét opna grafhýsið og fann þar
einungis tvær, hvítar steinvölur sem
hann fleygði burtu. En af þeim uxu
tvö bambustré sem fléttuðu saman
greinar sínar.
Konsertinn, sem Hjálmar telur
alls hetjar endaleysu, byggist ekki
á hefðbundnu konsertformi Vestur-
landa, heldur fléttast hann saman
í eina heild úr nokkrum efnisþátt-
um. Upphafsstef hans minnir á
sameiningu elskendanna og tón-
verkinu lýkur á þessu stefi.
Það sem kann að hafa ruglað
Hjálmar í ríminu er að tónskáldin
ætluðust til að fiðluleikarinn líkti
eftir þeirri tækni sem notuð er þeg-
ar er leikið á tveggja strengja
kínverska fiðlu, erhu, og hljómar
það undarlega í eyrum þeirra sem
eru óvanir kínverskri tónlist.
Óvæginn dómur
Hjálmar kveður upp óvægna
dóma yfir kínverskri nútímatónlist.
Tvö önnur tónverk minnist hann
á, sem ég hirði ekki um að fjalla
um í grein þessari, þótt bæði verk-
in séu mér kunn. Virðist Hjálmar
ekki skilja á hvem hátt sé hægt
að samþætta kínverskar hefðir
vestrænum hljóðfærum eða að
minnsta kosti ekki kæra sig um að
skilja þetta. Þess er rétt að geta
að vestræn tónlist á sér ekki langan
aldur í Kína. Sinfóníuhljómsveitin í
Shanghai á rætur að rekja til ársins
1927, en fílharmoníuhljómsveitin í
Peking var stofnuð 1956. Kínversk
tónskáld sem þreifuðu fýrir sér við
samningu tónlistar í vestrænum
stíl eftir miðja þessa öld töldu sig
vera að skapa nýjar hefðir sem
AS-TENGI
c
Allar gerðir.
Tengið aldrei stál í stál.
göojrtsDisjgBar ttJföKAi©ffi®ini & <§©
VESTURGÖTU 16 - SIMAR 14680 - 21480
byggðust jafnt á kínverskum sem
vestrænum grunni og hrósuðu sér
af formbyltingu. Að undanfömu
hafa tónskáldin brotist úr viðjum
hefðbundinna, kínverskra forma og
vestrænna hefða og er að vænta
þess að frá Kína eigi eftir að ber-
ast tónverk sem em í engu ófrum-
legri en margt það sem Hjálmar
og jafnaldrar hans á Vesturlöndum
em að fást við.
Eitt af því, sem menn verða að
skilja þegar fjallað er um kínverska
tónlist, er að hefðbundin, kínversk
tónlist er mjög skreytt ýmiss konar
flúri og tilbrigðum. Þetta hefur
gengið aftur í kínverskri nútímatón-
list.
Merkilegur er hroki Hjálmars og
fyrirlitning á öllu því sem má kalla
ljóðrænt eða lagrænt í tónlist og
kennt hefur verið við prógramm-
tónlist eða rómantík. Heggur hann
þar býsna nærri sjálfum sér, því
að Hjálmar hefur fengist við að
semja þess háttar tónverk sem
hægt væri að kalla síðbúið barrok-
bull, svo sem ljúf og áferðarfögur
tónlist hans við Rómeó og Júlíu ber
best vitni um.
Hjálmar er ekki fyrsti útlending-
urinn sem ferðast til Kína, dvelur
þar í þrjár vikur og kemur síðan
heim fullur fyrirlitningar, sjálfs-
ánægju og alvitur um það sem er
að gerast í landinu, enda hefur ver-
ið sagt að þeir, sem fara til Kína í
fyrsta skipti, skrifí heila bók, eftir
aðra ferð skrifi menn eina grein,
en ekkert eftir þá þriðju.
Gamall, kínverskur menntamað-
ur og merkur þýðandi, Feng Xi,
komst eitt sinn svo að orði um sjálf-
an sig að hann hefði ferðast um
heiminn hálfa öld með lokuð augu.
Hjálmar virðist hafa lokað bæði
augum og eyrum í Kína og litlu
hleypt inn í heilabú sitt nema for-
dómum einum.
Danskir
SUMARDAGAR
Glæsilegt danskt hlaðborð öll kvöld
vikunnar.
Danskir harmónikuleikarar leika frá
kl. 18.00.
Sími 11440
Höfundur er formaður Kín versk-
íslenska menningarfélagsins.
í NÝJA HERRAHÚS/NU
LAUGAVEG/ 47
30-50% AFSLÁTTUR
ADflfll # ^ús^)
I LAUGAVEGUR 47