Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐEÐ
IÞROTT1R
MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1988
55
FráBob
Hennessy
iEnglandi
ÍÞRÚmR
FOLK
■ RIVER PLATE, sem Cesar
Menotti þjálfar, kefur neitað að
láta tvo leikmenn lausa til að leika
með ólympíuliði Argentínu í Seo-
ul. Fjórar umferðir í deildinni fara
fram meðan á Ólympíuleikunum
stendur og segir Menotti að leik-
mennimir hafí verið valdir of seint.
„Ég hef ekki menn til að koma í
þeirra stað með svo skömmum fyr-
irvara, en hefði þetta verið ljóst
fyrr væri það ekkert mál,“ sagði
Menotti. Á næsta ári verða félögin
skuldbundin til að láta landsliðið
ganga fyrir.
■ CARL Lewis og Ben
Johnson, spretthörðustu hlaup-
arar heims, keppa í 100 m hlaupi
á Grand prix móti í Sviss í kvöld.
Þeir hafa ekki keppt á sama
móti siðan á HM í Róm í fyrra
og þá sigraði Johnson. Félagamir
munu skipta á milli sín rúmlega
hálfri milljón dollara, sem þeir fá
rr þátttökuna.
BRYAN Robson missir að öll-
um líkindum fyrirliðastöðu sína hjá
enska landsliðinu í knattspymu eft-
ir hálfan mánuð. Hann hefur játað
að hafa hegðað sér
ósæmilega á nætur-
klúbbi skömmu fyrir
úrslitakeppni Évr-
ópumótsins og auk
þess á hann yfír höfði sér dóm fyr-
ir ölvun við akstur. Knattspymu-
sambandið telur að þetta komi nið-
ur á landsliðinu og vill ekki að fyrir-
liðinn sé í sviðsljósinu á þennan
hátt. Robson verður áfram fyrirliði
Manchester United.
I TERRY Venables var óspart
gagnrýndur fyrir slaka frammi-
stöðu Spurs um síðustu helgi. Hann
fór til Barcelona í gær til að reyna
að kaupa miðjumanninn Mu-
hammed Ali Amah. Þá hefur hann
boðið Arsenal 400 þúsund pund
fyrir Kenny Sansom, sem er úti í
kuldanum á Highbury.
■ PESCARA á Ítalíu hefur boð-
ið 1,5 milljónir punda fyrir Nigel
Clough hjá Nottingham Forest.
Félagið hefur keypt leikmenn
fyrir fimm milljónir punda á
Qirlfiatn árí
■ VINCE Jones hjá Wimbledon
hefur átt erfítt með sig í leikjum
og er sagður grófasti og mddaleg-
asti leikmaðurinn í Englandi. Hann
hefur oft verið verið sektaður og
dæmdur í bann og á yfír höfði sér
fjögurra leikja bann hjá aganefnd
knattspymusambandsins. Bobby
Gould, stjóri Wimbledon sagði í
gær að hann hefði ákveðið að setja
leikmanninn í bann um óákveðinn
tíma. „Þessi drengur þarf að læra
sína lexíu," sagði stjórinn.
■ STAMFORD Brídge þekkja
allir aðdáendur Chelsea og fleiri
til. Nú bendir allt til að heimavöllur
liðsins verði að víkja fyrir íbúðum
og skrifstofuhúsnæði. Landið hefur
verið selt fyrir 60 milljónir punda
og er ráðgert að hefja framkvæmd-
ir á svæðinu eftir 18 mánuði.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Morgunblaðið/Júlíus
Bjarni Slgurðsson á æfíngu með landsliðinu í gær. Hann verður í marki gegn Svíum, en lék ekki gegn Búlgömm
á dögunum.
Fyrsta æfingin fyrir
leikinn gegn Svíum
ÍSLENSKI landsliðshópurinn í
knattspyrnu var mættur á œf-
ingu á Laugardalsvellinum í
gær fyrir leik sinn gegn Svíum,
sem verður annað kvöld. Svía-
leikurinn er ásamt landsleik
gegn Færeyingum seinna í
mánuðinum, liður í undirbún-
ingi liðsins fyrir undankeppni
HM, en þar eru íslendingar í
riðli með Sovétmönnum, sem
þeir mæta 31. ágúst. Bjarni
Sigurðsson, Brann, og Gunnar
Gíslason, Moss, eru á ný í
hópnum, og voru þeir mættir í
gær á æfinguna, ásamt hinum
landsliðsmönnunum.
Sænska landsliðið er á leið til
Seoul, þar sem það tekur þátt
í Ólympíuleikunum og er leikurinn
gegn íslendingum á Laugardalsvell-
inum liður í lokaundirbúningi þeirra
fyrir keppnina þar.
Sænska liðið þykir vera mjög
sterkt um þessar mundir, og hefur
verið talið sigurstranglegt á
Ólympíuleikunum ásamt Itölum.
Það lék gegn Brasilíumönnum á
dögunum og lauk leiknum með jafn-
tefli, einu marki gegn einu.
Leikmenn sænska liðsins, sem
hingað koma, eru éftirtaldir:
Roger Ljung Malmö FF
Ola Svensson
Sulo Vaattovaara Leif Engqvist Joakim Nilsson Malmö FF
Stefan Rehn Jonas Thern
Jean-Paul Vonderburg....
Martin Dahlin Malmö FF
Jan Hellström
AGANEFND
Attaí
banní
2. flokki!
ikil harka og ruddaskapur
hefur einkennt marga leiki í
2. flokki karla í knattspymu í sum-
ar og á fundi aganefndar KSÍ í gær
voru átta piltar í þessum flokki
dæmdir í bann. 17 mál lágu fyrir
fundinum og var einn leikmaður í
1. deild dæmdur í leiks bann —
Viðar Þorkelsson, Fram, fyrir fjög-
ur gul spjöld. í 2. deild fengu tveir
leikmenn sömu refsingu, Öm Valdi-
marsson, Fylki, fyrir fjögur gul
spjöld og Einar Ólafsson, IR, fyrir
brottvísun. Fjórir leikmenn í 4. deild
voru dæmdir í bann og þrír, sem
leika með liðum í a-riðli 3. deildar.
2. DEILD
Banninu
aflétt
Ellert B. Schram, formaður
KSÍ tilkynnti í raeðu á Siglu-
fírði í gær að eins leiks heima-
leikjabanni því, sem KS var
dæmt í á dögun-
um, væri aflétt
og væri það af-
mælisgjöf sam-
bandsins til
Knattspymufélags Siglufjarðar
í tilefni 70 ára afmælis kaup-
staðarins. Hins vegar væri
„gjöfín" bundin þeim skilyrðum
að komið yrði í veg fyrir ólæti
á heimaleikjum KS.
KS á heimaleik gegn UBK á
laugardaginn og fer hann því.
fram á nýja grasvellinum á
Siglufirði, sem var vígður í gær
með leik heimamanna og 1.
deildar liði Vals. Gestimir unnu
8:3.
Frá
Matthiasi
Jóhannssyni
á Siglufírði
HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMOTIÐ
Valdimar
á enn von
Valdimar Grímsson, homa-
maður í Val, á enn von um
að komast í ólympíulandsliðið í
handknattleik að sögn Guðjóns
Guðmundssonar liðstjóra. Valdi-
mar hefur æft vel að undanfömu
og er kominn í ágætt líkamlegt
form. Það kemur í ljós á næstu
dögum hvort hann fær að leika
á Flugleiðamótinu og hvaða
möguleika hann á að komast til
Seoul.
Beckenbauer veitir
Held upplýsingar
ÞAÐ verður í nokkur horn að
iíta hjá Siegfried Held, lands-
liðsþjálfara, á næstunni í undir-
búningi liðsins fyrir undan-
keppni HM.
Fyrsti leikur íslendinga í keppn-
inni verður hér á Laugardals-
vellinum þann 31. ágúst, en þá
mæta þeir fímasterkum Sovét-
mönnum.
Sovétmenn leika æfíngaleik gegn
Finnum nú á næstunni, en Vestur
Þjóðverjar eru með Finnum í riðli.
Franz „keisari" Beckenbauer mætir
á völlinn til að fylgjast með þessum
væntanlegu andstæðingum Þjóð-
veija í undankeppninni og mun því
ekki komast hjá þvf að meta lið
Sovétmanna í leiðinni. Á landsliðs-
æfíngunni í gær sagði Held að hann
myndi fá upplýsingar um Sovét-
menn hjá Beckenbauer, en sem
kunnugt er léku þeir fjölmarga
landsleiki saman, og ætti þvf ekki
að verða skotaskuld úr því að miðla
upplýsingum sfn á milli.
Reikna með um 15
þúsund áhorfendum
FLUGLEIÐAMÓTIÐ í hand-
knattleik hefst næsta laugar-
dag og eru erlendu keppend-
urnir væntanlegir til landsins á
fimmtudag og föstudag. Sex lið
keppa á mótinu, A-lið íslend-
inga, B-lið íslendinga, Sovét-
menn, Tékkar, Spánverjar og
Svisslendingar. Síðasti leikur
mótsins verður leikur Sovét-
manna og A-landsliðs íslend-
inga miðvikudaginn 24. ágúst.
Leiknir verða samtals 15 leikir
og fara þeir fram á sjö stöðum
á landinu. Sjö leikir fara fram í
Reykjavík, þrír á Akureyri, einn í
Kópavogi, einn f Hafnarfirði, einn
á Ákranesi, einn á Selfossi og einn
á Húsavík.
Að sögn Jóns Hjaltalíns Magnús-
sonar, formanns HSÍ, er reiknað
með um 15 þúsund áhorfendum að
öllum leikjunum samtals en um 12
þúsund áhorfendur þarf til að mó-
tið standi undir kostnaði.
Sterklið
Gert er ráð fyrir að fslenzka A-
landsliðið verði að mestu leyti
óbreytt frá því í síðustu leikjum.
Sennilegra er að hópurinn verði
skipaður 15 leikmönnum en 16 en
liðið verður endanlega tilkynnt á
fostudag. Enn er óljóst hveijir munu
skipa B-landslið íslendinga en það
mun byggjast upp af leikmönnum
21 árs og yngri.
Sterkasta liðið á mótinu er án
efa lið Sovétmanna en þeir eru tald-
ir vera með sterkasta lið heims um
þessar mundir. Spánvetjar eru einn-
ig mjög erfiðir andstæðingar. Þeir
hafa stöðugt verið að sækja í sig
veðrið og eru líklegir til stórafreka
á ÓL.
Tékkar komu á óvart í B-keppn-
inni á Ítalíu 1987 og urðu þá í öðru
sæti á eftir Sovétmönnum. Þeir
verða því ekki heldur auðunnir.
Svisslendingar eru nú eina B-þjóðin
sem tekur þátt í mótinu en geta
komið á óvart undir stjórn þýzku
kempunnar Amo Ehret, sem varð
heimsmeistari með V-Þjóðveijum
1978.
Hinn frægi þjálfari Sovétmanna,
Evtushenko, mun halda þjálfara-
námskeið fyrir íslenzka þjálfara f
tengslum við mótið. Er þetta í fyrsta
skipti sem hann heldur slíkt nám-
skeið utan heimalands síns og því
einstakt tækifæri sem hér er í boði.
Flugleiðir halda mótið í samvinnu
við HSÍ og gefa verðlaun til þess.
Einnig verður haldin samkeppni um
beztu blaðaljósmynd af mótinu og
hlýtur sá ljósmyndari, er beztu
myndina tekur, flugmiða til Lúx-
emburgar og til baka í verðlaun.
Atli til Spánar?
Eins og greint hefur verið frá
fékk Atli Hilmarsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, tilboð
frá spænska liðinu Granollers
meðan á Spánarmótinu stóð.
Framkvæmdastjóri félagsins er
nú hér staddur og bfður eftir að
HSÍ gefí grænt ljós á félagaskipt-
in. „Eg er mjög spenntur og vissu-
lega væri gaman að enda ferilinn
þama með sænska línumanninum
Per Carlén," sagði Atli við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Leikmenn geta skipt á milli
landa frá 1. maf til 31. júlí ár
hvert og er því fresturinn út-
runninn, en að sögn Jóns
Hjaltalíns Magnússonar, form-
anns HSÍ, vill sljómin allt gera
sem hægt er til að leysa málið
og hefur leitað álits þriggja lög-
fræðinga í því efni, en niðurstöður
lágu ekki fyrir í gærkvöldi.