Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
FRAMLEIÐSLAN
SIQPTIR MÁLI
eftír Sigmar Þormar
Vinnsla á íslenskum fiski erlend-
is getur orðið að alvarlegu vanda-
máli. Hér ér um að ræða mál er
taka þarf föstum tökum, því öflug
vöruframleiðsla er mikilvæg hveiju
landi sem vill njóta góðra lífskjara.
Heiti þessarar greinar er sam-
hljóða heiti á nýútkominni bók eftir
tvo bandaríska hagfræðinga, John
Zysman og Stephen Cohen (á frum-
máli Manufacturing Matters, New
York, 1987.) í bókinni halda þeir
því fram að efnahagslíf nútímaríkja
þurfí á öflugri vöruframleiðslu að
halda. Þeir telja að flutningur á
mikilvægri framleiðslu úr landi sé
öfugþróun. Bráðnauðsynlegt sé fyr-
ir nútímaþjóðir að efla vörufram-
leiðslu sína, styrkja þá framleiðslu
sem fyrir er og efla vöruþróun á
nýjum sviðum.
í greininni verður athugað hvort
þessi umræða á erindi við okkur
Islendinga og litið til fiskvinnslunn-
ar í því sambandi.
Vöruframleiðsla
enn mikilvæg
Ef halda á uppi háu lífsgæðastigi
Sigmar Þormar
og forðast atvinnuleysi, þurfa lönd
að vera samkeppnishæf á sviði
vöruframleiðslu segja þeir John
Zysman og Stephen Cohen. Efling
vöruframleiðslu er mikilvægasta
málefnið í efnahagslífí Banda-
ríkjanna.
Bókarhöfundar leggjast alfarið
„ Vinnsla á íslenskum
fiski erlendis getur orð-
ið að alvarlegn vanda-
máii. Hér er um að
ræða mál er taka þarf
f östum tökum, því
öflug vöruframleiðsla
er mikilvæg hverju
landi sem vill njóta
góðra lífskjara.“
gegn því sjónarmiði að Bandaríkin
séu að verða að „þjónustuþjóðfé-
lagi“ þar sem þjónustustörf komi í
stað framleiðslustarfa. Framleiðslu-
störf og þjónustustörf séu í raun
nátengd. Höfundar segja Banda-
ríkjamenn þegar hafa tapað mikil-
vægum „þjónustustörfum" er bíla-
framleiðsla, stáliðnaður og raf-
eindaiðnaður færðist frá heimalandi
þeirra til Asíulanda. Með framleiðsl-
unni hafa flust burt ýmis betri
„þjónustustörf", á sviði tækniráð-
gjafar og þjónustu við iðnfram-
leiðsluna.
ErþSrfáfrekariLl 33
samwmmgu i landl^Sg
Sériilöð
ALAUGARDOGUM
5
Auglýsingar íLesbók með ferðablaði
þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir
kl. 16.00 á föstudögum, viku fyrir
birtingu og ímenningarblaðið fyrir kl. 16.00
á miðvikudögum.
V -bi^é allra landsmanna
Stephen S. Cohen. John Zysman.
Það er merki um öfugþróun ef mikilvæg framleiðsla færist úr landi
segja bandarisku hagfræðingarnir John Zysman og Stephen Cohen
í bókinni Framleiðslan skiptír máli.
Líkt og ýmis önnur vestræn ríki
hafa Bandaríkjamenn verið að tapa
hæfni og forskot í vöruframleiðslu.
Þessari þróun verður að snúa við,
að öðrum kosti fýlgir efnahagsleg
stöðnun og atvinnuleysi í kjölfarið.
Stephen Cohen og John Zysman
telja, að Bandaríkjamenn verði að
efla framleiðsluferlið sjálft og ná
aftur því forustuhlutverki sem
landið hafði áður sem öflugur fram-
leiðandi iðnaðarvara.
Á að vinna fiskinn erlendis?
Væntanlega á eitthvað af þessari
umræðu við hér á landi. Mikilvæg-
asta vöruframleiðsla okkar er vitan-
lega á sviði sjávarútvegs. Ef hug-
myndir bandarísku hagfræðing-
anna eru færðar upp á íslenskar
aðstæður ættum við að leggja
áherslu á að halda forskoti okkar
í hefðbundinni sjávarútvegsfram-
leiðslu. Þá þyrfti einnig að efla
framleiðslu á vörum og tækjum þar
sem . íslendingar njóta forskots
vegna t.d. góðs hráefnis eða þekk-
ingar#sem fyrir er í landinu.
En hvað er að gerast í þessum
málupi hér á landi. Er verið að efla
vöruþVóun og markaðssókn? Eða
er e.t.v. mikilvæg framleiðsla að
færast úr landi? Því miður bendir
margt til þess að um öfugþróun
fremur en framþróun sé að ræða í
þessum efnum hér á landi. Að und-
anfömu hefur íslenskt hráefni verið
notað í saltfisk sem framleiddur er
í Evrópu. Þá hefur vakið athygli
að dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hefur hafið
frystingu á íslenskum fiski í Bret-
landi.
Furðu lítið hefur verið um alvar-
legar umræður um þessi mál hér á
landi. I leiðara Morgunblaðsins
þann 13. mars sl. er þetta þó rætt.
Þar er fullyrt að íslendingar séu
að fylgja þróun sem þegar hafi átt
sér stað í öðrum iðnríkjum. Fata-
framleiðsla og stáliðnaður hafi
færst frá vestrænum ríkjum til
Asíulanda. I leiðaranum er mikið
rætt um háan launakostnað hér-
lendis sem veigamikla ástæðu fyrir
því að framleitt er úr íslensku hrá-
efni erlendis.
Varasamar ályktanir
I Morgunblaðsleiðaranum, sem
og öðrum skrifum um þessi mál,
er þó ekki nægilega tekið fyrir hve
alvarlegt mál er í raun á ferðinni.
Flutning á mikilvægri vörufram-
leiðslu úr landi verður að líta á sem
vandamál, líkt og þeir Zysman og
Cohen halda fram. Það ber vitni^
um að forskot í framleiðslutækni
og vöruhönnun sé að tapast.
Sú skýring að hár launakostnað-
ur geri vöruframleiðslu óhagkvæma
er í raun oftast fremur haldlítil. Á
Vesturlöndum hefur launakostnað-
ur ávallt verið hærri en annars stað-
ar í heiminum. Tækni-, vöruhönn-
unar- og markaðssetningarforskot
hefur hinsvegar gert vestrænum
fyrirtækjum mögulegt að greiða há
Morgunblacfið/Sigurður H. Þorsteinsson
Hið nýja vöruhús Kaupfélags Steingrímsfjarðar.
Hólmavík:
Nýtt verslunarhús Kaup-
félags Steingrímsfjarðar
Laugarhóli, Bjamarfirði.
KAUPFÉLAG Steingrímsfjarðar
opnaði nýtt vöruhús á Hólmavik
fyrr í sumar. Hafði verslunin
áður verið í þröngu húsnæði nið-
ur á eyri, en flutti nú í nýtt og
nútímalegt húsnæði með öllum
þægindum. Gamla húsnæðið var
svo tekið í notkun fyrir af-
greiðslu og sölu á ýmsum lager-
vörum, sem almennt kallast
pakkhúsvörur hér um slóðir.
Það var mikil breyting til batnað-
ar, þegar Kaupfélagið opnaði í nýja
húsnæðinu fyrir ofan kauptúnið á
Hólmavík, smásöluverslunina sem
áður hafði verið í gamla hluta þess.
Nú er margfalt rými miðað við það
sem áður var og vistleg húsakynni
fyrir bæði viðskiptavini og starfs-
fólk.
Þá er bensínsalan og veitingaað-
staðan í næsta húsi við nýju versl-
unina, svo stutt er að fá sér hress-
ingu, taka bensín á bflinn, eða þvo
hann eins og stundum þarf.
Sunnan við Kaupfélagið er nýja
hverfið sem er að byggjast upp á
Hólmavík, en norðaustan við búðina
er svo gamli bærinn, fyrir neðan
brekkuna.
Skrifstofur Kaupfélagsins eru
hinsvegar enn í gamla húsinu 'niður
í bænum, þar sem nú er einnig
verslað með þá- hluti sem áður voru
afgreiddir úr pakkhúsi, svo sem
byggingarvörur og fleira. Auk þess
eru mikil þægindi að þessu fyrir
ferðamenn, sem bæði hafa nú versl-
unina og veitingasölu og bensín á
sama stað, rétt við Djúpveginn til
Isafjarðar.
- SHÞ