Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 56
-
Tork þurrkur.
I'egar hreinhvti er nauAsyn.
«6
asiaco hf
i Vesturgötu 2 Pósthólf 826
121 Reykjavik Simi (91) 26733
Nýtt
numer
692500
SJÓVÁ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Danir vísa Jan May-
en-deilunni til Al-
þj óðadómstólsins
Telja sig geta firrt okkur rétti,
segir Eyjólfur Konráð Jónsson
DANSKA ríkisstjórnin ákvað í
gær að vísa deilu Dana og Norð-
manna um lögsögumörk við Jan
Mayen til Alþjóðadómstólsins í
Haag. Uffe Eliemann-Jensen,
utanríkisráðherra Dana, segir
Ný sparí-
skírteini
ríkisjóðs
NY spariskírteini ríkis-
sjóðs verða gefin út í dag,
samkvæmt samkomulagi við
banka, sparisjóði og verð-
bréfafyrirtæki og bera að
jafnaði 0,5% lægri vexti en
eldri skirteini. Bankar og
sparisjóðir, nema Útvegs-
bankinn, hafa einnig tekið
ákvörðun um samsvarandi
lækkun vaxta á bankabréfum
og hliðstæðum bréfum.
Þrír flokkar spariskírteina
verða gefnir út í dag. Þriggja
ára bréf sem bera 8% vexti,
alls 900 milljónir, 5 ára bréf
sem bera 7,5% vexti, alls 1400
milljónir, og 8 ára bréf sem
bera 7% vexti, alls 670 milljón-
ir. Bankar og sparisjóðir hafa
ábyrgst sölu þessara bréfa út
árið.
Bankar og sparisjóðir hafa
flestir þegar lækkað vexti á
bankabréfum og sjóðsbréfum
um 0,5-0,8% eða tilkynna
vaxtalækkun í dag. Útvegs-
bankinn hefur ekki tekið
ákvörðun um vaxtalækkun en
Guðmundur Hauksson banka-
stjóri sagði við Morgunblaðið
að öll vaxtamál bankans væru
í athugun, og ekki enn ljóst
hvort vextir yrðu lækkaðir á
bankabréfum frekar en öðrum
bréfum.
að ákvörðunin hefði verið tekin
þar sem samkomulag hefði
hvorki náðst um skiptingu svæð-
isins né um að setja deiluna í
gerðardóm. Eyjólfur Konráð
Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, segir að
íslendingar hljóti að gagnrýna
það að Danir snúi sér, enn sem
fyrr, til Norðmanna einna þótt
svo þeir viti að íslendingar eigi
samningsbundin og mjög mikil-
væg réttindi á þessu svæði.
Danir og Norðmenn hafa frá
1980 deilt um lögsögumörk á 250
sjómílna svæði milli Jan Mayen og
Grænlands. Norðmenn telja að
miðlína eigi að gilda, samkvæmt
meginreglu alþjóðahafréttarsátt-
málans, en Danir telja að Græn-
lendingum beri 200 mílna lögsaga
vegna afskekktrar legu og fá-
mennrar byggðar á Jan Mayen.
Samkvæmt samningi milli ís-
lendinga og Norðmanna frá 1980
er dregin miðlína milli íslands og
Jan Mayen og deila þjóðimar fisk-
veiðiréttindum á svæðinu. Þó nýta
Islendingar 85% af loðnustofninum
en Norðmenn 15%. „Við eigum
ekki síður hagsmuna að gæta á
þessu svæði en Norðmenn, þvert á
móti. Með því að sniðganga okkur
en draga Norðmenn fyrir Haag-
dómstólinn telja Danir sig geta
firrt okkur rétti, sem við viður-
kennum ekki að hægt sé að gera,“
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson.
Hann sagðist þeirrar skoðunar að
dómur í Haag hlyti að staðfesta
meginreglu hafréttarsáttmálans,
miðlínuna. „Það er ekkert sem
mælir með því að önnur rök gildi,“
sagði hann.
Eyjólfur Konráð sagðist vilja
árétta að þessi deila Dana og Norð-
manna snerist engan veginn um
Kolbeinseyjarsvæðið, sem hefur
verið í fréttum vegna loðnuveiða
Pæreyinga og ágreinings Islend-
inga og Dana um grunnlínupunkta
á svæðinu milli Islands og Græn-
lands.
Ferðamannagos íKrýsuvík
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Grindavík.
í fyrrasumar vaknaði þessi goshola í Krýsuvík
af nokkurra ára værum blundi. Holan hafði verið
álitin dauð, þar sem hún hrundi saman. Áður en
það varð var hún frægust fyrir það að kasta af
sér borturninum þegar Rafveita Hafnarfjarðar
lét bora hana 1950 vegna fyrirhugaðra hitaveitu-
framkvæmda á þeim árum. Gosið úr holunni nú
er hins vegar augnayndi ferðamönnum, sem til
Krýsuvíkur koma.
Viðræður um sölu
saHsfldar að hefjast
STEPNT er að því af hálfu síldar-
útvegsnefndar og verzlunarskrif-
stofu Sovétríkjanna í Reykjavík
að formlegar samningaviðræður
um sölu saltsíldar héðan til Sovét-
ríkjanna hefjist fyrri hluta sept-
Manni bj*argað af sökkvandi trillu
embermánaðar. Árlegar viðræð-
ur um framkvæmd gildandi við-
skiptasamnings landanna munu
hefjast í Reykjavík þann 29. þessa
mánaðar og þá mun væntanlega
fást nánari staðfesting á tima
fyrir síldarviðræðurnar að sögn
Gunnars Flóvenz, framkvæmda-
sljóra Síldarútvegsnefndar.
BLÆR SU 8, 6 tonna trilla, sökk
í gærkvöldi, um 16 sjómílur suð-
vestur af Látrabjargi. Einn mað-
ur var á bátnum, Gunnlaugur
Guðmundsson. Honum var
bjargað, heilum á húfi, um borð
í Hildi RE 123, 10 tonna bát sem
var að veiðum aðeins um 2
sjómílur frá slysstaðnum.
Slysavamarfélaginu barst hjálp-
arbeiðni frá Blæ klukkan 21.55.
Þá var kominn mikill leki að bátn-
um. Hildur RE heyrði neyðarkallið,
var skammt undan og hélt strax
til hjálpar. „Það var óhuggulegt
að koma að þessu og það stóð
tæpt, báturinn var að fyllast,"
sagði Viggó Einarsson, skipstjóri
á Hildi, í samtali við Morgunblað-
ið. „Við lögðum strax upp að hon-
um og náðum manninum frá
borði." Viggó sagði að vonlaust
hefði verið að reyna að bjarga
bátnum „Það varð ekkert við þetta
ráðið, dælumar hjá honum höfðu
ekki undan og við höfðum engar
dælur aflögu." Viggó kvaðst ekki-
vita hvað hefði valdið lekanum.
Þegar haft var samband við
Viggó, laust eftir klukkan 23 í
gærkvöldi, var Hildur RE 123 í
þann veginn að leggja af stað inn
til Rifs. Blær var þá að mestu sokk-
inn, aðeins sást móta fyrir stefninu
á haffletinum. Ágætt veður var á
þessum slóðum í gærkvöldi, suð-
austan gola og skýjað.
Morgunblaðið hafði samband við
Gunnar Flóvenz í kjölfar fréttar frá
Hafrannsóknastofnun um aukinn
veiðikvóta á síld á haustvertíð til að
inna hann eftir fyrirhuguðum salt-
síldarviðræðum. Hann kvaðst gera
ráð fyrir að gengið yrði frá samning-
um við aðra helztu kaupendur
íslenzkrar saltsíldar í þessum mán-
uði og um næstu mánaðamót og
væri þá fyrst og fremst átt við síldar-
innflytjendur í Svíþjóð og Finnlandi.
Á vertíðinni í fyrra var saltað
meira af Suðurlandssíld en nokkru
sinni fyrr eða um 290.000 tunnur.
Þar af fóru 200.000 tunnur til Sovét-
ríkjanna og um 65.000 tunnur til
Svíþjóðar og Finnlands. Á síðasta
ári fluttu íslendingar meira út af
saltaðri síld en nokkurt annað land
í heiminum.
Morgunblaöiö / AM