Morgunblaðið - 21.08.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
B 3
legar og fyrirlestramir þóttu sér-
staklega athyglisverðir.
í máli erlendu fræðimannanna
kom fram að íslensk stjómvöld,
Háskólinn og Nordalsstofnun gætu
styrkt íslensk fræði erlendis á ýms-
an hátt. Sumir nefndu að æskilegt
væri að íslenskir lektorar kenndu
víðar og þá með styrk íslenska ríkis-
ins.
Sérstaka athygli vakti þó að
flestir lögðu á það ríka áherslu að
styrkjum íslenska ríkisins handa
erlendum stúdentum til náms hér á
landi yrði fjölgað og þeir yrðu svo
ríflegir að stúdentamir gætu lifað
af þeim. Einnig var bent á nauðsyn
þess að koma upp fleiri og fjöl-
breyttari námskeiðum við Háskól-
ann sem hentuðu útlendingum. Sem
dæmi um slík námskeið má nefna
endurmenntunamámskeið fyrir há-
skólakennara og fræðimenn og
námskeið um íslenska menningu
fyrir stúdenta."
Stefnt á námskeiðahald
Að sögn Úlfars er ætlun Nordals-
stofnunar að halda alþjóðlegt nám-
skeið um íslenska menningu næsta
sumar í samvinnu við heimspeki-
deild.
„Annað hvert ár hafa verið hald-
in íslenskunámskeið fyrir Norður-
landabúa og slíkt námskeið stendur
raunar yfir núna. Kostnaður við
þessi námskeið hefur verið greiddur
af Norrænu ráðherranefndinni og
því em þau lokuð fyrir aðra stúd-
enta en af Norðurlöndunum.
Ætlunin hefur verið að hitt árið
yrði haldið alþjóðlegt námskeið í
íslensku máli og menningu á vegum
íslendinga. Alþjóðlegt námskeið var
haldið í fyrra en það var illa sótt
vegna þess að þátttakendur urðu
að greiða allan kostnað úr eigin
vasa. Vonast er til að fé fáist á fjár-
lögum til að greiða kostnað við
námskeiðshaldið þannig að þátttak-
endur greiði aðeins ferðir og uppi-
hald. Þetta verður stærsta við-
fangsefni okkar á næsta ári ef fjár-
munir fást."
Úlfar nefndi að nauðsynlegt væri
að semja námsefni í íslensku fyrir
útiendinga. „Á síðustu árum hefur
allmikið verið gefíð út af íslensku-
námsefni til kennslu útlendinga við
Háskóla íslands. Mikill skortur er
þó á slíku námsefni fyrir erlenda
háskóla og úr því þarf að bæta.“
Að sögn Úlfars verður haldið
áfram að bjóða erlendum fræði-
mönnum til landsins og styrkja
íslenska fræðimenn til að fara utan
og kynna sín fræði. Loks verður
reynt að gera við hús Nordalsstofn-
unar í Þingholtsstæti 29.
„Það er nauðsynlegt að gera
húsið nothæft. Á þessu ári hefur
engin fjárveiting fengist til viðgerða
á húsinu. í upphafi var einungis
gert við tvö herbergi á aðalhæðinni
og greitt fyrir það með rekstrarfé
stofnunarinnar. Þetta er mjög
slæmt, húsið hefur verið friðað en
er þó í megnustu niðumíðslu."
Lauk námi fyrir tveimur
árum
Aðspurður um eigin námsferil
kvaðst Úlfar hafa lokið BA prófi
við Háskóla íslands og haldið svo
utan til frekara náms.
„Ég stundaði nám í íslensku
máli og bókmenntum og sagnfræði
við Háskólann. Eftir það nam ég
almennar bókmenntir við Óslóar-
háskóla lauk þaðan meistaraprófi
árið 1979.“
Að fengnu meistaraprófi kenndi
Úlfar við ýmsa framhaldsskóla á
íslandi en árið 1983 hélt hann til
Bandaríkjanna og hóf þar nám við
Berkeley háskólann í Kalifomíu.
„Ég lauk doktorsprófi árið 1986
frá Berkeley, doktorsritgerð mín
íjallaði um frásagnarlist í Sturl-
ungu. Að þessu loknu var ég í eitt
og hálft ár við Chicagoháskóla sem
gistiprófessor en kom svo heim til
að taka við starfí forstöðumanns
Nordalsstofnunar."
Texti: Helgi Þór Ingason.
Saga þeirraV etrarbræðra
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Len Deighton: Winter
Útg. Ballantme Books 1988
Len Deighton er einn þeirra höf-
unda sem hefur búið um sig tryggi-
lega á metsölulistunum víða í út-
löndum, en þegar ég leit yfir lista
bóka hans var ég ekki viss um,
hvort þetta væri sú hin fyrsta sem
ég les eftir hann. Hvað sem því líður
er sagan af Winter-ijölskyldunni
ekki dæmigerð metsölubók. Til þess
er hún bæði alltof löng og seinlesin.
Sagan hefst þegar klukkur eru
að hringja inn árið 1900 og Harry
Winter ríkismaður er í Vínarborg
með konu sinni Veronicu og þau
bíða fæðingar yngri sonarins. Syn-
imir Peter og Pauli verða svo eftir
því sem á líður aðalsögupersónur
bókarinnar sem rekur sig rólega
áfram að fyrri heimsstyijöldinni,
árunum að henni lokinni og það fer
að bóla á Hitler og uppgangi naz-
ista.
Nokkuð greinargóð frásaga og
harla fróðleg,. hvort sem hún er
sögulega séð rétt í meginatriðum.
Margt hljómar.þó trúlega og gæti
hafa verið eitthvað á þessa lund.
Það er ekki á hveijum degi, sem
skemmtibókahöfundar reyna að
tengja þetta tímabil, Fyrra stríðið
— Þýzkaland millistríðsáranna og
svo Síðari heimsstyijöldina saman
og á svo tiltölulega aðgengilegan
hátt og Deighton. Því er bókin þess
virði að lesa hana að mínu viti.
Bræðumir Peter og Pauli verða
ekki nógu skýrar persónur þótt
höfundur virðist leggja við þá heil-
mikla alúð. Andstæðurnar skila sér
ekki og það dregur úr heildaráhrif-
unum.
Samt má skemmta sér sæmilega
yfír þessari bók og fræðast dálítið.
Nazistalýsingarnar og hvemig
Þjóðveijar gagntókust smám sam-
an og gerðust svo afhuga nazisman-
um þegar fór að halla undan fæti,
þetta er allt gott og blessað. Svo
langt sem það nær.
Eins og segir í byijun er bókin
fulllöng. Sýnilega vill höfundur
koma frá sér heilmiklum upplýsing-
um sem hann hefur dregið að sér.
Það er ágætt en ekki alveg algilt
til árangurs.
Kápumynd
The stunning new bestseller by
LEN DEIQHTON
Author of BERLiri QAME
'Rem3rkab!e...convincing... somelhingoí a mirade.'*
ifte fiew Jbrtr Timcs
t£H> ÖaJUf.!»»-ric!Kyv'3:'.>!W«
a novel of a Berlin family
9. september í 3 vikur
Verð f rá kr. 33.500 jmá mann
miðað við tvo fullorðna og 2 börn 2-11
ára saman í herbergi.
Flugvallarskattur ekki innifalinn.
Hótel:
Alden
Coral Reef
Lamara
Hægterað
dvelja nokkrar
nætur í Orlando
(Disneyworld,
Seaworld
o.s.frv.)
.. coI>l6MU
,í*sö»ute6
Benidorm er einn vinsælasti
sumardvalarstaður í Evrópu
Fjörugt strandlíf, fjölbreytt næturlíf
FM býður aðeins nýjustu
og bestu íbúðagistinguna
Þrautreyndir fararstjórar
Benidorm er örugglega staðurinn fyrir þig.
Brottfarir: 23.8., 30.8., 13.9., 20.9.,
4.10., 11.10.,25.10.,
Verð frá kr.
28.500,-
tKi eykur þekkinju þún, lcynnist nýj-
ungum og myndar ný viMdpssam-
bönd 4 vörusýningum og kaupstefn-
um. Feröimlöstööin hetur i fjölda ára
veriö i fararbroddi i feröaþjónustu,
sem tengist feröum íslendinga til er-
lendra stórborga í slflcum erindum.
Feröamiöstööin vertir þér örugga og
hagkvæma þjönustuog sárum
farmlöa-oghótefpantanir.
Hringdu strax ídag i síma 28133 og
pantaöu vörusýnlngabaldinginn 1988.
KÖLIM
4.-6. sept.
SPOGA
Alþjóölog sýning ó íþróttavörum,
viðlegubúnaði og garðhúsgögnum.
11.-13. sept.
CHILDREN AND YOUNQ PE0PLE
Alþjóöleg sýning á vörum fyrir
börn og unglinga.
21.-25. sept.
IFMA
Alþjóöleg reiðhjóla- og válhjóla-
sýning.
FRANKFURT
27.-31. ágúst
FRANKFURT iNTERNATIONAL
Alþjóðleg gjafa-, húsbúnaöar- og
pappírssýning.
13.-18. sept.
AUTOMECHANIKA
Alþjóleg sýning fyrir bif reiöaverk-
stæði.
24.-25. sept.
FRANKFURT GARTEMBAUMESSE
Garðyrkjusýning.
5.-10 október
FRANKFURT BOOK FAIR
Bókasýning.
MUNCHEN
30. ágúst- 2. sept.
ISPO-AUTUMN
Alþjóðleg haustsýning é Iþrótta-
vörum og fatnaöi.
DUSSELDORF
2.-4. október
WORLD HAIRDRESSING
CHAMPIONSHIP
Heimsmeistarakeppni í hár-
greiðslu með alþjóölegri sýningu.
FERÐA
MIÐSTÖÐIIM
Aðalstræti 9,-101 Reykjavík, - sími 28133.