Morgunblaðið - 21.08.1988, Page 8
Rwr TfiöoÁ .rs HiJOAormvtUB .QiQAJaviyoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1988
O ö
8 B
Snældur með boðum til
undirvitundarinnar
FYRIRTÆKIÐ Námsljós hefur
hafið innflutning og sölu á
bandarískum snældum með boð-
um til undirvitundarinnar.
Forráðamenn fyrirtækisins
kjósa að kalla boð þessi „hljóð-
leiðslu". Boðin eru af svo lágri tíðni
að aðeins undirvitundin greinir
þau en hlustandi heyrir sjávarnið
eða ljúfa tónlist. Boðunum er ætl-
að það hlutverk til dæmis að efla
sjálfstraust hlustanda, auðvelda
honum að hætta að reykja eða
fara í megrun. Tækni þessi hefur
verið notuð í Bandaríkjunum.
(Úr fréttatilkynningu)
Morgunblaðið/BAR
Landsliðsmenn og aðstandendur hljómplötuútgáfunnar á Sprengisandi þar sem platan var kynnt.
Hljómplata með haiidboltalandsliðimi
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik sendir frá sér hljóm-
plötu og snældu sem kemur í
verslanir eftir næstu helgi.
Platan hefur að geyma lagið
„Gerum okkar besta“ í þremur
útgáfum en alls er á plötunni
15 mínútur af tónlist. Útgef-
andi er Steinar h.f. og gefur
fyrirtækið allan hagnað af útg-
áfunni til íslenska liandbolta-
landsliðsins. Fjöldi aðila tók
þátt i gerð þessarar hljómplötu
og héldu þeir kostnaði við gerð
hennar i algjöru lágmarki svo
hlutur Handknattleikssam-
bandsins yrði sem mestur.
Valgeir Guðjónsson samdi lagið
„Gerum okkar besta“ sem leikið
og sungið er í þremur útgáfum,
en Tómas Tómasson stjómaði
upptökum. Hljóðfæraleikarar á
plötunni eru Ásgeir Óskarsson
trommur, Þórður Árnason gítar,
Björgvin Gíslason gítar og Tómas
Tómasson á bassa og hljómborð.
Aðalútgáfa lagsins heitir „Ger-
um okkar besta" og er sungin af
Valgeiri Guðjónssyni ásamt lands-
liðsmönnum. Þá sér grínistinn
Laddi um beina lýsingu í útgáf-
unni „Gerum okkar besta (með
bros á vör)“ og landsliðsstrákam-
ir syngja einir á hvatningarútgáf-
unni sem nefnist „Gemm okkar
besta (allir saman nú)“.
Steinar h.f. setur sér það mark-
mið að selja 10.000 eintök af plöt-
um og kassettum og verður hagn-
aður HSÍ þá á milli 1,5—2 milljón-
ir króna og verður sá hagnaður
notaður til að styrkja þátttöku
handboltalandsliðsins á Olympíu-
leikunum í Seoul í næsta mánuði.
Landssamband smábátaeigenda:
BMW 3-LÍNAN
ÓTRÚLEGA
HAGSTÆTT VERÐ
Vegna hagstæðrar gengis-
skráningar þýska marksins get-
um við nú boðið BMW 3-línuna
á ótrúlega góðu verði.
Frá aðeins kr: 780.000.-
Þetta er tækifæri sem BMW
aðdáendur ættu ekki að láta
fram hjá sér fara.
Útborgun 25%. Eftirstöðvar:
lán í allt að 2Vi ár.
Sýningarsalurinn er opinn
mán.-föst. 9.00-18.00
á laugardögum 13.00-15.00
Kristinn Guönason hf.
SUÐURLANDSBRAUT 20 SlMI 686633
Aðeinsflug
erbetra
Vill samkomulag við
náttúruverndarsamtök
STJÓRN Landssambands smá-
bátaeigenda samþykkti neðan-
greinda ályktun á fundi 6. ágúst
sl. Var henni beint til utanríkis-
ráðherra Steingríms Her-
mannssonar, sem veitti ályktun-
inni viðtöku 17. ágúst sl.
Ályktunin er svo hljóðandi:
„Stjóm Landssambands smábáta-
eigenda lýsir yfir áhyggjum vegna
þeirrar stefnu sem hvalamálið svo-
kallaða virðist vera að taka.
Spumingin snýst ekki lengur ein-
göngu um það hver sé réttur okk-
ar Islendinga heldur einnig hvað
það geti kostað okkur sem þjóð
að standa á rétti okkar.
Sú innræting sem svokölluð
náttúruvemdarsamtök ástunda
hjá stærstu viðskiptaþjóðum okkar
kann að skaða hagsmuni okkar
næstu árin og e.t.v. áratugina.
Með tilliti til þess hljóta íslensk
stjómvöld að verða að gera það
upp við sig hvort ekki sé rétt að
reyna að ná samkomulagi við of-
angreind samtök enda era ýmis
baráttumál þeirra í fullu samræmi
við íslenska hagsmuni."
Stjóm Landssambands smá-
bátaeigenda vill taka það fram að
hún hefur í engu kvikað frá sam-
þykkt sinni um hvalamálið sem
gerð var árið 1986. Þar segir m.a.:
„Fundur í stjóm Landssamband
smábátaeigenda haldinn í Grímsey
þ. 6. ágúst 1986, lýsir yfír fullum
stuðningi við gerðir Sjávarútvegs-
ráðherra varðandi hvalveiðar í
þágu vísinda og hvetur hann til
að sýna fullkomna festu og kvika
hvergi frá rétti okkar í viðskiptum
við hvaða aðila sem er. Fundurinn
telur það með öllu óskiljanlegt, að
ríkisstjórn Bandaríkjanna skuli
hafa í hótunum við okkur Islend-
inga á sama tíma og hún leyfir
eigin fiskimönnum að drepa
20.500 höfranga.“
P$r$ninMaMfr
Metsölublad á hverjum degi!