Morgunblaðið - 21.08.1988, Page 10

Morgunblaðið - 21.08.1988, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ;'SUNNUDAGUR’ 21. ÁGÚST'W88 Reynsla er nafnið sem gjaman er skellt á mistökin, sagði klókur maður. En það var sannarlega reynsla undir öðrum formerkjum að lenda í því á fimm dögum að fara um uppræktaða sanda á suð- urströndinni og síðan í framhaldi um örfoka hálendið nórðan Vatna- jökuls og enda á skógarsvæðunum á Hallormsstað. í huganum bætt- ust bitar í púsluspilið, að vísu ekki allir, en mynduðu smám sam- an nokkuð samhangandi mynd. Þótt þetta tengist í huga þess sem upplifír, botna aðrir vísast ekkert í því án skýringar. Um sandana á Suðurströndinni fór Jón Helgason landbúnaðarráð- herra með blaðamenn og land- græðslu- og náttúruvemdarfólk í 18 tíma fróðlega ferð til að skoða uppgræðslu sunnan jökla, allt austan frá Homafirði vestur í Rangárvallasýslu. Við að sjá það svona í samhengi, fer ekki á milli mála hve gífurlega mikið land hefur gróið þama á söndunum. Það á sér aðdraganda. Eftir kald- ar aldir hafa jöklamir verið að hörfa og skildu eftir svarta sanda, sem stórfljótin flæmdust lengi um. Fluttu sig til svo engum gróðri var vært. En að þeir hörfa gerir svo fært — þegar tæknin leyfir — að hemja fljótin. Og í sömu mund koma til nytsemdarsjónarmið, kröfur nútímans um samgöngur. Vegir verða óhjákvæmilegir og ráðist er í að beisla fljótin svo að hægt sé að koma brúm yfir þau. Á þessari öld er smám saman ráðist í gerð vamargarða með- fram jökulfljótunum, hveiju af öðru komið í einn farveg, sett í stokk, ef svo má segja. Þá loks fá sandamir milli þeirra frið. Og taka að gróa, ýmist af sjálfs- dáðum ofurhægt eða hraðar með hjálp Sandgræðslu íslands, sem 1965 verður Landgræðsla ríkis- ins, og með friðunum þar sem sáð er. Þama reynist auðveldasti stað- urinn á landinu eftir að menn em lausir við vatnið. Stór sandflæmi hafa bændur fengið af graslendi til afnota með þessum hætti og annars staðar er kominn dijúg gróðurþekja. Og svo hjálpa breytt- ir búskaparhættir með minni vetr- ar- og vorbeit eftir að vinnuafl minnkar í sveitum og ekki mark- aðir fyrir lambakjötið. Einn nýj- asti landvinningurinn em miklar landgræðsluframkvæmdir á 1.200 hektara svæði við Skógey eftir að vamargarðar hafa beislað Hof- fellsá og Hornafjarðarfljót, en þaðan var áfok mikið á fisk- vinnslustöðina Höfn. Og nú síðast er það nýi vegurinn yfir Mýrdals- sand neðanverðan sem verður til þess að stærsta átakið á næstunni verður uppgræðsla á sandinum beggja vegna við hann, til þess að sem fyrst verði hægt að stöðva sandfokið sem þar ógnar umferð. Á leið fram Möðrudalsöræfin og auðnina norðan Vatnajökuls daginn eftir tóku villtir draumar að sækja á. Ef hægt væri nú að beita fé landsmanna á þessar grænu gmndir og nýunna land á söndunum niðri við sjóinn og á bestu staði á láglendi, en friða Fjarskalega verður maður dapur við að koma að svonefndum grón- um móum í auðninni, þar sem ekkert er eftir af rýmm gróðri annað en þær örfáu tegundir sem kindin fúlsar við. Nýting brostin af þeim sökum og af þeim nytse- missjónarmiðum fækkar fénu. Hlálegt að kalla slíkt vemdun. Þekjan er svo gisin að hún heldur sýnilega ekki lengi í jarðveginn. Gómsætu bitamir sem kindin vel- ur fyrst, hvönnin og blágresið, gleður varla augað nema í torfum í klettum, sem ferfætlingar kom- ast ekki að og þar sem fé kemur ekki lengur, svo sem við hraun- röndina í Hvannalindum. Og nið- urbitnar birkileifar segja hveijum ferðamanni sem um hálendið fer hve langt landið er komið í að berhátta sig, eins og striptísa í næturklúbbi. Allir áhorfendur vita að hún stendur að lokum nakin ef enginn stöðvar sýninguna. Nú em í frumvarpsdrögum um um- hverfismál uppi tilburðir til að greina verndunarþáttinn svolítið frá uppgræðslunni og gefa honum líka vægi, til viðbótar við upp- græðsluátakið. Fá slysavarna- deild til skjótra viðbragða, þegar hætta er á ferðum. Hver getur verið á móti þvf? Mismunandi myndir fanga hug- ann. Á leið inn á Brúaröræfin er ekið eftir djúpum breiðum dal, þar sem við blasir eitt forstigið af því hvemig land getur farið undan beit. Þar hafa verið tvö góð bú og miklir Qárbændur um langan aldur. Landkostir legið í góðri vetrarbeit, svo sem marka má af beitarhúsunum. Hlíðar dalsins segja sína sögu með uppblásnum blettum og girðing við beitarhús verður kennslubókardæmi um mismunandi gróður innan við beit- arlausa girðingu og utan hennar. Auðvitað áttu menn um aldir ekki annarra kosta völ og hörkudugnað þurfti til að bjarga sér með fé sitt við vetrarbeit. í því felst því ekki ásökun, heldur sagt til að benda á hvernig við nútímafólk með meiri vitneskju getum lesið úr landinu hvernig það er að fara. Það er einn bitinn í púslumynd- inni, sem Gáruhöfundur var kannski næmari fyrir með því að æða svona yfir landið og hafa fyrir augunum hin ýmsu stig lan- deyðingar eða uppgræðslu. Þó var mest sláandi kennslu- stundin í lokin á göngu um Hall- ormsstaðaskóg með Jóni Lofts- syni skógarverði, þar sem við fór- um í gegn um skógarræktunar- svæðin sem tekin höfðu verið undir hvert af öðru í meira en hálfa öld. Sáum m.a. hvemig lerk- ið spjarar sig frá nýplöntum á rýrasta landi og upp í 50 ára gömul stæðileg tré með gróskum- iklum skógarbotni, en það er önn- ur saga. Þarna mátti líka sjá hvernig náttúrulega birkið hafði víðast hvar blundað og reis úr öskustónni, ef svo má segja, þá skikinn var friðaður. Og með upp- lýsingum um hvenær það var gert, má sjá þróunina í því sem gerist. Má lesa úr stofni birkihríslu ofan í jörðinni að hún hefur um langt árabil lifað þar, en aldrei fengið frið til að koma upp úr jörðinni nema einum árssprota í senn, þeir fyrri klipnir af jafnóðum. Þar til komin var girðing og friðun. Virðist plantan þá í fyrstu vera orðin svo hvekkt eða veikburða að nokkur ár þurfi til að jafna sig. Fyrr en varir er hún svo orð- in djarfari og á fáum árum farin með félögum sínum að mynda býsna djarfhuga skógarhríslur. Að auki við tijáræktunina, þarf sýnilega hér og nú viðbótarátak til vemdunar náttúmlegu birki- skógaleifanna utan skógræktar- svæðanna. Það getur einfaldlega ekki beðið. um árabil fyrir beit allt móbergs- svæðið þar sem jarðvegurinn með gróðurleifum er á hraðri leið út í hafsauga. En soddan draumar endast skammt. Ekki er það víst ætlunin með þessu. Og raunar er sitt hvað uppræktun á söndunum og verndun gróðurleifa inni í landi. Mesta klúður fyrir hvem sem er að hafa það saman, sem óhjákvæmilega verður til þess að nytsemissjónarmiðið tekur til sín allt féð sem veitt er til gróður- vemdar og uppgræðslu, sem sannarlega er ekki of mikið. Þarf aðskilið aukaátak til bregðast við þeim uppblásturssvæðum sem nú eru að verða þar stödd sem ekki verður aftur snúið. Nauðsynlegt að fá óháða, skjótvirkari slysa- varnasveit til umhverfisvemdar. Allt hálendið er eins og sýni- kennsla í því hvað er að gerast hér og nú. Ógnarstór flæmi eru ekki einu sinni lengur í tötrum heldur allsber, allt farið. Og svo blasa við myndir á öllum stigum. Infodesk-skrifstofukerfiö frá Neolt býöur uppá ótal möguleika. Skrifborö — Tölvuborö — Vélritunarborö — Tölvuprentaraborö — Samtengd á einfaldan máta. Lítið við í skrifstofuhúsgagnadeildinni í Hallarmúla og kynnið ykkur Infodesk frá Neolt. Hallarmúla 2 - Sími 83211 Itölsk hönnun á góðu verðí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.