Morgunblaðið - 21.08.1988, Side 12
B
oon MORGUNBLA®IÍ>/SUNNCI>A©WR'2Fll'ÁG68T>'I988
YICTOR
BORGE
Hefur hrifið
áhorfendur
í rúma hálfa öld
Háðfuglinn og skemmti-
krafturinn Victor Borge er
væntanlegur til íslands um
mánaðamótin. Efnir til
tveggja sýninga á Hótel ís-
landi 1. og 2. september.
Flestum skemmtikröftum
reynist ofviða að halda sig
á tindinum í hinni hörðu
samkeppni skemmtiiðnað-
arins í heiminum, en
„Danska mikilmennið“, eins
og hann er stundum kallað-
ur af aðdáendum sínum,
hefur átt þar sitt fasta sæti
í rúma hálfa öld. 78 ára
Victor Borge er
danskur, fæddur
í Kaupmanna-
höfn. Foreldrar
hans voru tón-
listarfólk og
hann var ekki
nema þriggja ára
gamall þegar móðir hans byrjaði
að kenna honum að leika á píanó.
Átta ára gamall kom hann í fyrsta
skipti fram opinberlega sem einleik-
ari og vann sér þarmeð til nám-
styrks við Tónlistarskólann í Kaup-
mannahöfn. Á unglingsárunum
hlaut hann styrki til náms hjá Fred-
eric Lamond og Egon Petri í Berlín
og Vínarborg og rúmlega tvítugur
var hann orðinn þekktur á Norðurl-
öndum fyrir kvikmynda og sviðs-
þætti sína. Þá skall seinni heims-
styijöldin á og ekki leið á löngu
áður en háðfuglinn Borge var kom-
gamall heldur hann sínu
sem einn af eftirsóttustu
skemmtikröftum heims.
Gamansemi hans í bland við
tónlistarhæfileika hefur all-
an þennan tíma heillað
áhorfendur, sem segja
gjarnan að Borge sé óborg-
anlegur. Fyrir það er honum
sýndur margvíslegur heið-
ur, nú síðast hlaut hann
■ heiðurspening Aldarafmæl-
isnefndar Frelsisstyttunnar
á hátíðarsamkomu á Ellis
Island. Öll Norðurlöndin,
þar á meðal ísland, hafa
veitt honum orður og bæði
Sameinuðu þjóðirnar og
bandaríska þingið heiðrað
hann.
inn efst á svarta listann hjá Þjóð-
verjum fyrir biturt háð sitt. Hann
flúði því til Bandaríkjanna á síðasta
farþegaskipinu sem sigldi þangað
frá Evrópu, S.S. American Legion.
í þau ríflega 40 ár, sem Victor
Borge hefur búið í Bandaríkjunum,
hefur hann haft á sinni könnu næst-
um allt sem einn skemmtikraftur
getur boðið upp á. Hann hefur kom-
ið fram í útvarpi, í kvikmyndum, í
sjónvarpsþáttum, verið með eins-
manns-sýningar sem ganga lengur
en nokkrar aðrar á Broadway, á
stórum íþróttasvæðum og í óperu-
húsum og hann hefur skemmt í
Hvíta húsinu. Á hverju ári leikur
Victor Borge með eða stjómar
heimsfrægum hljómsveitum, m.a.
New York-fílharmoníuhljómsveit-
inni, hljómsveitunum í Cleveland
og Fíladelfíu og með Amsterdam
Concertgebouw. Hann hefur skifað
tvær bækur í samvinnu við Robert
Sherman, „My Favorite Intermissi-
ons“ og „My Favorite Comedies in
Borge Biography". Og nýlega kom
út snælda undir nafninu „Báðar
hliðar Victors Borges", þar sem
hann leikur annars vegar á píanóið,
en hins vegar á snældunni flytur
hann nokkra sígilda gamanþætti
sína. Og myndband með honum er
líka til.
Þótt þættir hans séu vandlega
unnir, virðast. bráðfyndin tilsvör
Victors Borges koma svo eðlilega
að engu er líkara en þau verði til
á staðnum — og sum verða það.
Til dæmis sá hann þegar hann gekk
inn á sviðið í Toronto í Kanada í
fyrra að búið var að koma fyrir
aukasætum fyrir áhorfendur í hálf-
hring í kringum hann. Hann sneri
sér að þessum áhorfendum og
spurði: Komuð þið ekki með hljóð-
færin ykkar? Fólk byrjaði að hlæja.
Þá leit hann upp í loftið og sá fyr-
ir ofán sig litla glerkúpla í hljóm-
burðartækjunum og tók að velta
því fyrir sér hvort ekki væri hægt
að fá undirskálar með bollunum.
Og nú lá salurinn í hlátri. En Vict-
or Borge virðist hafa þetta „eitt-
hvað“ óskilgreinanlega, sem nær
til áhorfenda, svo að innan skamms
á hann salinn, ef svo má að orði
komast. Þrátt fyrir háan aldur virð-
ist hann enn fara léttilega með sín
bráðfyndnu sígildu atriði, að detta
af píanóstólnum eða rekast á hljóð-
nemann og annað sprell, sem þarf
býsna mikla líkamsfimi til að leysa
af hendi.
Victor Borge er óspar á að koma
fram á góðgerðarsamkomum, m.a.
vegna krabbameinsrannsókna og
annarra verðugra málefna. Hann
hefur oft komið til bjargar stór-
hljómsveitum í fjárhagsvanda með
því að koma frarh án greiðslu og
draga að fullt hús. Líka efnt til
styrkveitinga í háskólum og
menntaskólum. 1963 stofnaði hann
með Iögmanninum Richard Netter
sjóð í þakklætisskyni fyrir alla hjálp
Norðurlanda við að bjarga fólki á
stríðsárunum og hefur þessi marg-
milljónasjóður styrkt fjölda af
námsmönnum og vísindamönnum á
Norðurlöndum til náms og rann-
sókna í Bandaríkjunum. Þá stofnaði
hann til sérstaks tónlistarsjóðs til
minningar um foreldra sína, en fað-
ir hans lék alla ævi í Konunglegu
dönsku fílharmóníuhljómsveitinni.
Eru árlega veitt hundrað þúsund
danskar krónur í verðlaun úr honum
við hátíðlega athöfn í Tívolí í Kaup-
mannahöfn, auk þeirra fjögurra
tónlistarstyrkja sem árlega eru
veittir.
Þótt Victor Borge segist vera
fósturlandi sínu mjög þakklátur,
hefur hann alltaf haldið góðum
tengslum við föðurlandið. Hann er
fjölskyldumaður og eyðir öllum
sínum frítíma með Sönnu konu
sinni, bömum þeirra fimm og átta
barnabömum. Siglingar em tóm-
stundagaman hans, enda góður
skútuskipstjóri. Orðar það gjarnan
svo að B-in hans þtjú séu Bach,
Beethoven og Bátar.