Morgunblaðið - 21.08.1988, Side 23
8aer TaOL'Á .12 nuoAauviv!i)g .sioaj^v.uohom
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1988
a ss
B"23
sitja í syngjandi hóp og sjá og fínna
hvemig rómantíkin heltekur hugina,
mýkir andlitsdrættina og laðar fram
ásthneigð og hlýju. Um daginn sat
ég í hópi þijátíu manna og kvenna
á ýmsum aldri á björtu sumarkvöldi
í grænni hlíð vestur í Dölum, og við
sungum hið rómantíska ljóð Jóns frá
Ljárskógum, Blærinn í laufí.
Dís minna vona, yndið mitt allt,
án þín er vorskrúðið litlaust og kalt.
Öll þessi fegurð, öll þessi dýrð
eyðist og hverfur, ef burtu þú flýrð.
Er hægt að hugsa sér öílu meiri
rómantík?
Nokkm seinna hitti ég norðlensk
hjón um þrítugt í fámennu sam-
kvæmi. Talið barst að rómantík.
Konan sagði að sjálf teldi hún sig
ekki vera rómantíska en hins vegar
væri maðurinn hennar mjög róm-
antískur. Ég bað þennan rómantíska
elskhuga að ræða við mig undir fjög-
ur augu og í rökkvaðri stofu sagði
hann mér álit sitt á rómantík og gildi
hennar.
„Mér fínnst það rómantík þegar
tveir einstaklingar mætast og skynja
hugi hvors annars," segir hinn norð-
lenski rómantíker. „í augum margra
er fallegt sólarlag, sjórinn og fagurt
landslag vettvangur rómantíkurinnar
en mér finnst ekki skipta máli hvert
umhverfið er, aðeins að hugir tveggja
einstaklinga sameinist og þeir fínni
hvor hjá öðrum þá samkennd sem
ljóðrænt mætti líkja við náttúruna.
Eg held að flestir vilji fínna einhvem
sem þeir geti notið þessa með, ekki
bara í raunveruleikanum heldur líka
í ímynduninni. Ég vil geta átt með
konu sem ég elska rómantískar
stundir þar sem við sitjum saman
og ímyndum okkur samruna við nátt-
úruna sem ég tel að við séum hluti
af eins og annað. Rómantíkin þarf
ekki að vera bundin öðrum. Ég tel
að jafnvel maður sem er einn og vina-
laus geti átt sér rómantík, því róm-
antíkin býr innra með okkur.
Rómantíkin í mér birtist m.a. í því
að ég vil koma minni heittelskuðu á
óvart með óvæntum uppákomum.
Mig langar til að hún fínni og skilji
með huga og líkama að ég meina
það sem ég segi. Ég á það til á ólík-
legustu stundum að skilja eftir alls
kyns skilaboð til hennar sem tákn
um það að ég dýrki hana og dái og
að sú tilfinning komi frá innstu hug-
arfylgsnum. Þetta hef ég gert allan
þann tíma sem við höfum þekktst,
nokkuð á annan áratug. Auðvitað
hafa komið tímar sem eitthvað annað
hefur deyft þessa hugsun en samt
sem áður er hún alltaf fyrir hendi
og þau tímabil koma sem maður
leggur sig í líma við að fínna upp
sem frumlegastan farveg til þess að
veita þessari rómantísku tilfinningu
í. Ég lit á þetta sem nokkurs konar
listsköpun fyrir sjálfan mig og þá
konu sem ég elska. Stundum er tján-
ing mín í ljóðrænu formi, jafnvel
atómkveðskapur, og fyrir kemur að
uppákoma verður fyrir valinu. Ég set
kannski fram einhverskonar gátu
sem hún þarf virkilega að hafa fyrir
að ráða. Ég skil stundum eftir teikn-
ingar á náttborðinu. Svo vaknar hún
og skoðar þetta hissa. Það tekur
hana oft dtjúgan tíma að fínna út
að þama standi t.d.: „I love you.“
Konan mín hefur sagt mér það
sjálf að hún sé ekki rómantísk og
kannski er það rétt. En hún hefur
þá smitast af rómantíkinni í mér.
Ég man aldrei eftir óvæntum uppá-
komum frá hennar hendi fyrr en á
allra síðustu árum. Hún þurfti eitt
sinn að fara að heiman um tíma.
Fyrsta kvöldi þegar ég tók ofan af
rúminu rúmteppið og ætlaði að fara
að sofa dauðsyfjaður, þá er miði
undir rúmteppinu sem á stóð: „Ég
elska þig.“ Hjarta mitt ætlaði að
springa, þetta er rómantík fínnst
mér.“ Að svo mæltu sneri elskhuginn
norðlenski aftur fram f gleðskapinn
þar sem hans heittelskaða söng við
raust en ég varð eftir í rökkrinu og
hugsaði um hið dularfulla samspil
ástar, ljóða og rómantíkur og þær
umþenkingar urðu kveikjan að þess-
ari grein.
TEXTI: GUÐRÚN
GUÐLAUGSDÓTTIR
HORDH
„Siglufjördur!
Og þú hugsarsíld-
Síld! Og þú minnist
Siglufjaróar“
Sölustaðir:
Reykjavík: Allar helstu bókaverslanir
Akureyrí: Allar helstu bókaverslanir
Siglufjörður: Aöalbúðin, bókav. Hannesar
Bókapantanir í sima 96-71301.
MylluKobbi
rORLAG
TORFUFELLI 34-111 REYKJAVÍK - S: 72020
GÓÐPfZZA!
GOTTVERÐ!
Jón Bakan er nýr pizzastaður,
sem leggur megináherslu á heimsendingar.
Þú hringir í síma 46614 eða 641974, - velur þér góða pizzu
og við hringjum hjá þér dyrabjöllunni stuttu síðar.
Okkar helsta metnaðarmál er
GÓÐPIZZA! - GOTTVERÐ!
Góðu pizzuna gerum við af alúð, smekkvísi
og áralangri þjálfun, en góða verðið bjóðum við
með því að spara ýmsa stóra kostnaðarliði, s.s. veitingasal.
NYBVLAVEG114, S. 46614 & 641974.
OPIÐ: 11:30-2330 VIRKA DAGA
&1130-02 UM HEU3AR
P.S.-Ef þú vilt pizzuna á verksmiðjuverði.sækir þú hanatil okkar á Nýbýlaveg 14 (vesturgafl).
Smurstöð Heklu hf. er í alfaraleið við Laugaveginn.
Hún er skammt frá miðbænum og því þægilegt að skilja bílinn
eftir og sinna erindum í bænum á meðan bíllinn er smurður.
Nýlega var tekin í notkun fullkomin veitingaaðstaða fyrir þá
viðskiptavini sem vilja staldra við á meðan bíllinn er smurður.
Fljót og góð þjónusta fagmanna tryggir fyrsta flokks smurningu.
Lítið við á Laugavegi 172 eða pantið tíma í símum
695670 og 695500.
Veriðvelkomin.
HEKLA HF
Laugavegi 170 - 172 Simi 695500