Morgunblaðið - 21.08.1988, Side 35
r-
framhjáhaldi sínu með henni
bregst hún hin versta við og það
endar með morði.
Þegar deilurnar um Hættuleg
kynni stóðu sem hæst í Banda-
ríkjunum, femínistar veittust harka-
lega að henni fyrir kvenhatur og
hvert orð í handritinu var grand-
skoðað af freudistum og femínist-
um, sat Dearden á Rhódos við
gerð„Pascali's Island". Þegarhann
kom til London lenti hann í sjón-
varpsþáttum og viðtölum þar sem
hann þurfti að verja skrif sín, nokk-
uð sem hann bjóst aldrei við. „Allt
í einu kemstu að því að hávaðarifr-
ildi stendur um kvikmynd sem þú
hefur alltaf meðtekið sem saklaust
skemmtiefni og þú lendir í þeirri
aðstöðu að verða að verja hluti
sem þú réðst engu um og hluti sem
sannarlega áttu ekki að vera túlk-
aðir eins og þeir voru túlkaðir."
Dearden bað fólk vinsamlegast að
líta á myndina sem góðan þriller
og vera ekki að angra sig á neinum
meiningum með henni.
Annað í sambandi við myndina
sem varð mjög umtalað voru breyt-
ingar sem framleiðendurnir létu
gera á endinum. í upphaflega end-
inum fremur Alex sjálfsmorð með
hníf sem er löðrandi í fingraförum
Dans. í endurskotnum endi drepur
eiginkona Dans hana í mögnuðu
baðherbergisatriði. Það voru áhorf-
endur á forsýningum sem sann-
færðu kvikmyndagerðarmennina
um að þörf væri á breyttum endi.
„Ég sótti nokkrar forsýningar og
maður gat fundið það hvernig
áhorfendurnir kröfðust hefnda,"
segir Dearden. „Svo við sögðum
að ef fólk vill æsispennandi enda-
lok, sem fá það til að hoppa úr
sætunum, þá skulum við færa þeim
hann."
Það var annaö mál með „Pas-
cali". Hana fengu engir að sjá fyrr
en hún var frumsýnd á Cannes í
vor og engu var breytt í lokin. „Pas-
cali" er mér mjög persónuleg mynd
og hvort sem hún er rétt eða röng
þá er hún myndin sem mig langaði
til að gera. Ef einhver segði að
honum líkaði ekki við endinn mundi
ég segja, því miður öðruvísi vildi
ég ekki hafa hann.“
að leika eiginmann Rampling en
svo virðist sem karlleikurum sé
ekkert um það gefið að leika á
móti kvenaðalhlutverki. í þetta
sinni vildi Hare leikarann Mic-
hael Gambon í hlutverkið. Hann
er að öðlast frægð í Banda-
rikjunum um þessar mundir fyrir
að leika söngelska einkaspæjar-
ann í smóþáttaröðinni „The
Singing Detective" eftir Dennis
Potter. „En bandarísku fjár-
hagsaöilarnir börðust gegn
ráðningu hans og tóku peninga
af fjárhagsáætluninni þegar ég
réð hann. Ég var sektaður um
100.000 dollara fyrir að fá hann
en ekki einhvern sem þeir vildu
fá og var í einni mynd sem
malaði gull fyrir 20 árum."
Hare var viöstaddur forsýn-
ingar é myndinni sinni I Los
Angeles fyrir nokkru (hún veröur
frumsýnd í haust) og hlustaöi
þar á áhorfendur sem virtust
ekki vita alveg hvernig þeir ættu
að taka henni. Einn ungur mað-
ur sagðist aldrei hafa séð evr-
ópska mynd fyrr og sagði: „Hún
er svölítið eins og „Blue Vel-
vet“- mynd. Furðuleg." Annar
sagði: „Hvers vegna ættu allar
myndir að vera eins?" nákvæm-
lega það sem Hare hugsar.
r-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
B 35
LAUGAVEG 74
OG
KRINGUJNNI
WO<VE
Óskum ef tir
oðkaupa
gamla kœliskápa, þvotta-
vélar eÖa upþvottavélar
kr.3000
M
fc /
Ótrúlegt en satt
Viö hjá Heimilistækjum erum tilbúnirtil þess að gefa
3000 krónur fyrir hvert tæki; gamla kæliskápinn,
þvottavélina eöa uppþvottavélina þína án tillits til
gerðar, ástands og aldurs.
Viö tökum tækiö sem greiðslu upp í nýjan fullkominn
PHILIPS eöa PHILCO
kæliskáp, þvottavél eöa
uppþvottavél.
stykkió
ATH.
Að sjálfsögðu sendum
yið nýja tækið og
sækjum það gamia þér
að kostnaðarlausu.
Haföu samband strax,
lagerinn er ekki
ótæmandi.
Heimilistæki hf
Sætúni8 • Hatnarstræti 3 • Kringlunni
SIMI. 69 15 15 SÍMI: 69 15 25 SIML69 15 20
(/ede/tutoSveájya/ttyich, C sajtauttguno