Morgunblaðið - 26.08.1988, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
II
STOFNAÐ 1913
193. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, hinna ólöglegu pólsku verkalýðssam-
taka, ásamt nokkrum verkfallsmönnum við skipasmiðastöð í Gdansk.
Pólland:
Verkföll halda áfram
í þremur kolanámum
Varsjá. Reuter.
PÓLSKA lögreglan bældi niður
verkföll í kolanámum i Suður-
Póllandi en i norðurhluta lands-
ins var enginn bilbugur á verk-
fallsmönnum þrátt fyrir tilraunir
stjórnarinnar til að binda enda á
mestu verkalýðsólgu síðan á ár-
inu 1981. VerkföII voru enn í
þremur kolanámum í gærkvöldi,
að sögn pólska sjónvarpsins.
Eftir að lögreglan hafði á mið-
vikudag ráðist inn í þtjár kolanám-
ur í Silesíu, þar sem verkföll hófust
þann 15. ágúst, höfðu pólsk yfir-
völd í fyrsta sinn samband við Lech
Walesa, leiðtoga Samstöðu, hinna
ólöglegu verkalýðssamtaka, með
aðstoð milligöngumanns. Lögreglan
lokaði háskólanum í Varsjá og safn-
aði leiðtogum stúdenta saman til
að koma í veg fyrir að efnt yrði til
mótmælagöngu til stuðnings verk-
fallsmönnum.
Pólska sjónvarpið greindi frá því
að í gærkvöldi væru verkföll enn í
þremur kolanámum. Óháðir heim-
ildarmenn hafa staðfest þetta og
segja að lögreglan hafi ekki reynt
að binda enda á verkföllin í þeim.
Aðspurður sagði talsmaður
stjómarinnar, Jerzy Urban, að of
snemmt væri að lýsa yfir því að
yfirvöld hefðu brotið verkfalls-
mennina á bak aftur. Félagi í Sam-
Fríðarviðræður írana og íraka hófust í Genf í gær:
De Cuellar seffir viðræðurn-
ar hafa verið árangursríkar
Gnnf Rnnlnr
Genf. Reuter.
ÍRANAR og írakar héldu í gær sinar fyrstu beinu viðræður um frið
á Persaflóa eftir átta ára styijöld og Javier Perez de Cuellar, aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna, sagði að þær hefðu verið árangursríkar.
Fyrirhugað er að halda viðræðunum áfram í dag.
„Ég hef komist að því að báðum
aðilum er alvara og að þeir hafi í
raun hug á að finna lausn. Ég held
að okkur miði nokkuð áfram,“ sagði
Perez de Cuellar, sem leiðir viðræð-
umar. „Við erum að ræða mikilvæg
atriði og höfum þegar komið okkur
saman um fyrirkomulag viðræðn-
anna," bætti hann við.
Sendinefndir ríkjanna, sem ut-
ariríkisráðherramir Tareq Aziz
(írak) og Ali Akbar Velayati (íran)
leiða, komu saman í höfuðstöðvum
Pakistan:
Herínn skipti
sér ekki af
stjórnmálum
íslamabad. Reuter.
NÝSKIPAÐUR æðsti yfirmaður
Pakistanshers, Mirza Aslam Beg
hershöfðingi, lýsti því yfir í gær
að herinn, sem hefur verið við
völd i landinu í 41 ár, ætti ekki
að skipta sér af stjórnmálum.
Opinber fréttastofa Pakistans,
APP, skýrði frá því að Beg hefði
sagt háttsettum embættismönnum
landsins að hemum væri einungis
umhugað um öryggi Pakistans. Hann
hefði ennfremur lýst yfír að hann
væri hlynntur því að kosningar færu
fratn þann 16. nóvember. FVéttaskýr-
endur segjast ekki minnast þess að
háttsettur pakistanskur embættis-
maður hsdR maelt svo eindregið með
borgaralegri stjóm og lýðræði ( Pak-
istan.
Sameinuðu þjóðanna í Genf, en
hættu viðræðunum eftir tvær og
hálfa klukkustund. Ákveðið var að
gera fimmtán mínútna hlé á viðræð-
unum, en 90 mínutum síðar höfðu
sendinefndirnar ekki enn komið
saman aftur. „Ekki túlka þetta
þannig að viðræðumar gangi sér-
lega vel eða illa," sagði þá talsmað-
ur Sameinuðu þjóðanna, Francois
Giuliani.
Svo virtist sem sendinefndirnar,
sem skipaðar eru fimmtán mönnum
hvor, hefðu ekki ræðst við í sama
herbergi eftir þetta, en Perez de
Cuellar sagði að viðræður þeirra
hæfust aftur í dag og þar til myndu
ær ráðfæra sig við stjómvöld í
ran og írak. Hann sagði að viðræð-
umar hefðu verið árangursríkar og
víðtækar. Hann vildi þó ekki upp-
lýsa í hverju sá árangur fælist.
t
Reuter
Ali Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, heilsar Javier Perez
de Cuellar, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, þegar friðarviðræður
íraka og írana hófust í Genf í gær.
stöðu sagði að um 500 verkamenn,
sem tóku þátt í mótmælagöngu við
stærstu olíuvinnslustöð Póllands í
Plock, 120 kílómetrum norðvestur
af Varsjá, hefðu hótað að efna til
verkfalls beitti lögreglan verkalýð-
inn valdi.
Búrma:
Verkföll
lama at-
vinnulífið
Rangoon. Reuter.
Allsheijarverkfall lamaði at-
vinnulifið í Rangoon, höfuðborg
Búrma, í gær. Rúmlega 100.000
manns söfnuðust saman á götum
borgarinnar til að fagna þvi að
ellefu pólitískir fangar voru
leystir úr haldi og til að að krefj-
ast þess að endi yrði bundinn á
einræði sósíalistaflokksins i
landinu.
Þeir fáu hermenn sem vom enn
á götum höfuðborgarinnar eftir að
stjómin aflétti herlögum stóðu vörð
við seðlabanka laridsins. Starfsemi
lá niðri í bönkum, verslunum og
fyrirtækjum borgarinnar. Ennfrem-
ur voru skrifstofur hins opinbera
mannlausar og engin dagblöð komu
út. „Þetta er í fyrsta sinn síðan
byltingarstjómin tók við völdum
árið 1962 sem hægt hefur verið að
efna til slíks allsheijarverkfalls með
þátttöku allra stétta og félagasam-
taka,“ sagði einn leiðtoga verkfalls-
mannanna við fréttarita Reuters.
Ríkisstjóm iandsins ákvað í gær
að leysa ellefu pólitíska fanga úr
haldi, en þeir höfðu verið fangelsað-
ir fyrir „andóf gegn ríkinu". Meðal
þeirra var Aung Gyi, sem tók þátt
í valdaráni hersins árið 1962 en féll
í ónáð þegar hann mótmælti þjóð-
nýtingu fyrirtækja og einræði sósía-
listaflokksins.
Noregur:
Þjófurínn skilaði Munch-málverki
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SEX mánuði leitaði lögreglan í Noregi að málverkinu „Blóðsug-
an“ eftir Edvard Munch, sem stolið var úr Munch-safninu í Ósló.
Yfirmenn safnsins töldu að málverkið, sem metið er á 40 miltfón-
ir norskra króna (268 mil(jónir ísl. kr.), væri með öllu glatað
þegar því, öllum til mikillar ánægju, var skilað fyrr i vikunni.
Ungur maður kom á lögreglu-
stöðina í Ósló fyrr í vikunni með
málverkið undir hendinni. „Ég
stal málverkinu og ég sé eftir því
að hafa gert það. Hér er mynd-
in,“ sagði maðurinn, sem heitir
Pál Enger, við lögregluna. Enger,
sem spilaði með knattspyrnuliðinu
Válarengen í norsku 1. deildar-
keppninni í knattspymu á síðasta
ári, situr nú í fangelsi vegna þjófn-
aðarins.
Enger er einnig grunaður um
að hafa staðið að stærsta skart-
griparáni sem framið hefur verið
I Noregi. Það var framið í Osló í
júnímánuði og var andvirði þýfis-
ins um 4,5 milljónir norskra króna
(30 milljónir ísl. kr.).
Enger tjáði lögreglunni að hann
hefði tapað gífurlegum fjárhæð-
um í spilum og steypt sér í miklar
skuldir. Því hafi hann ákveðið að
stela málverkinu. Hugðist hann
selja það til þess að verða sér úti
um peninga til að greiða skuldim-
ar en honum tókst ekki að koma
málverkinu í verð. Ákvað Enger
að skila því og nú hangir „Blóð-
sugan“ á sínum gamla stað á
Munch-safninu í Ósló.