Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 27 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir FRIÐRIK INDRIÐASON Ríkið greiðir allt að 750 milljónir í ferðakostnað Uttekt á þessu í undirbúningi í fjármálaráðuneytinu ÞAÐ VEKUR ávallt athygli ef hinu opinbera tekst að spara fé í rekstri sinum. Félagsmálaráðuneytinu hefur frá áramótum tekist að skera niður ferðakostnað sinn um fjórðung án þess að slíkt hafi bitnað á erlendum samskiptum ráðuneytisins. Þetta er ánægjuleg staðreynd er haft er í huga að kostnaður ríkissjóðs i ár vegna ferða opinberra starfsmanna, innanlands og utan, er varlega áætlaður vera um 600 milljónir króna. Samkvæmt upplýs- ingum frá fjármálaráðuneytinu er nú verið að vinna að úttekt á þessum kostnaði. egar Morgunblaðið reyndi að afla sér upplýsinga um hver ferðakostnaður ríkisins er á þessu ári var þær hvergi að fá í opin- bera kerfinu. Raunar var ekki heldur hægt að fá uppgefíð hver þessi kostnaður var í fyrra eða 1986. Blaðið hafði samband við ríkisbókhald og þar fengust þær upplýsingar að ríkisreikningur fyrir 1986 væri að vísu til í hand- riti en hann ætti eftir að senda Alþingi og fyrr væri ekki hægt að gefa upplýsingar um tölur í honum. Hvað árið 1987 varðar var verið að keyra þann reikning í gegnum nýtt tölvukerfí og með öllu vonlaust að fá nokkrar tölur úr honum. Nýjustu tölur sem hægt er að fá um kostnað ríkisins af ferðalög- um opinberra starfsmanna er að finna í ríkisreikningi fyrir árið 1985. í fylgiriti með reikningum kemur fram að á því ári nam þessi kostnaður 321,5 milljónum króna. Þar er nokkuð jöfn skipting á milli kostnaðarins innanlands og utan. Innanlands nam hann 159,6 milljónum en utanlands 162,9 milljónum króna. Ef þessar tölur eru framreiknaðar til dags- ins í dag samkvæmt framfærsluv- ísitölunni kemur í ljós að þessi kostnaður í ár ætti að nema 588 milljónum króna. Ef þessi kostn- aður er hinsvegar reiknaður þann- ig að sú forsenda er gefín að hann sé sama hlutfall af heildarút- gjöldum ríkisins nú og hann var 1985 verður talan mun hærri eða um 750 milljónir króna. Bolli Bollason skrifstofustjóri hagdeild- ar fjármálaráðuneytisins segir að það sé álitamál hvora aðferðina beri að nota til að gera sér hug- mynd um hver kostnaðurinn í ár er. Bolli er jafnframt formaður ferðakostnaðamefndar ríkisins. Þessi nefnd hefur eingöngu það hlutverk að ákvarða dagpeninga. Bolli bendir á að dagpeningar hafí svo til nákvæmlega fylgt þró- un framfærsluvísitölunnar frá ár- inu 1985 til 1988. Því sé ef til vill réttara að miða við vísitöluna við framreikninginn. Hinsvegar telur hann, þótt hann hafí engar haldbærar tölur, að ferðum opin- berra starfsmanna hafí fjölgað frá 1985. Varlega áætlað er kostnað- ur ríkisins í ár því um 600 milljón- ir króna af ferðalögum opinberra starfsmanna. í máli Bolla kemur ennfremur fram að nú sé verið að undirbúa úttekt á vegum fjármálaráðuneyt- isins á þessum kostnaði. Hann segir að ferðakostnaðarnefnd hafí nokkrum sinnum leitað eftir því að fá nákvæmar upplýsingar um ferðakostnað allra ráðuneyta en því hafí fylgt svo mikil vinna að nefndarmenn hafi veigrað sér við að fylgja málinu áfram. Ferðir bundnar í kj arasamningum Tryggvi Friðjónsson deildar- stjóri í félagsmálaráðuneytinu segir að nú sé það ákvæði í kjara- samningum nokkurra starfsstétta innan BHM, svo sem lækna og sálfræðinga, að þeir fái eina utan- landsferð, ásamt dvalarkostnaði, á hveiju ári allt að 15 daga langa. Þessar ferðir hafí þessir hópar til að endurmennta sig. Hann segir að í sumum stofnunum sem heyra undir ráðuneytið séu utanlands- ferðir svo til eingöngu tilkomnar vegna þessa ákvæðis. I máli Tryggva kemur fram að niðurskurður ferðakostnaðarins hafí verið einna mestur í ráðu- neytinu sjálfu en mismikill hjá þeim stofnunum sem heyra undir ráðuneytið . . . „yfír línuna er þessi niðurskurður um 25% hjá ráðuneytinu og þeim stofnunum sem heyra undir það. Það er nokk- uð erfitt að fjalla um hve niður- skurðurinn er mikill hjá einstökum stofnunum, slíkt kemur ekki að fullu í ljós fyrr en undir áramótin. Þær eru mjög mismunandi að stærð og ég get tekið sem dæmi embætti ríkissáttasemjara. Það er mikilvægt embætti en fámennt og með niðurskurði á einni ferð á vegum þess næst kannski þetta 25% hlutfall," segir Tryggvi. Tryggvi segir að niðurskurður- inn á ferðakostnaðinum hafí verið framkvæmdur þannig að ráðu- neytið fékk áætlanir um ferðir frá öllum stofnunum sem heyra undir það en slíkt hafði ekki verið tíðkað áður. Síðan var farið í saumana á þessum áætlunum og þær ferð- ir felldar út sem óþarfar þóttu . . . „í þessum upphaflegu áætlunum var ekki fjallað um upphæðir þær sem ferðimar áttu að kosta heldur fjölda þeirra og því er ekki hægt að gefa upplýs- ingar um spamaðinn í krónum talið fyrr en árið verður gert upp,“ segir hann. Hertar reglur 1983 Fram kemur í samtölum við þá sem Morgunblaðið ræddi við vegna þessa máls að nú em hert- ari og strangari reglur í gildi um utanlandsferðir opinberra starfs- manna. Sækja verður um ferða- heimild til yfírmanna viðkomandi stofnana og síðan verður ráðu- neytisstjóri að samþykkja ferðina. Að ferðinni lokinni ber sfðan við- komandi starfsmanni að gera ítar- lega grein fyrir ferðinni. Kostnaður ríkisins af ferðum opinberra starfsmanna var til umræðu í fjölmiðlum 1983 í fram- haldi af frétt Alþýðublaðisins þá um haustið að á tímabilinu maí 1982 til ágúst 1983 hafí að jafn- aði verið 20 manns í utanferðum á vegum stofnana ríkisins hvem dag. Þáverandi fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson, sagði þá í samtali við Morgunblaðið að hann myndi fara strax í að ganga frá nýrri reglugerð um ferðalög opin- berra starfsmanna á kostnað ríkissjóðs tii útlanda. í dag segir Albert að þetta hafí verið gert þannig að sérstök nefnd var sett á laggimar undir forystu ríkisendurskoðanda, Hall- dórs V. Sigurðssonar. Hafði hún eftirlit með þessu máli og í fram- haldi af störfum hennar var ákveðið að undirskrift ráðherra þyrfti á allar slíkar ferðir . . . „Er ég fluttist svo yfír í iðnaðar- ráðuneytið skrifaði ég undir allar heimildir um slíkar ferðir og lét þær ferðir sem mér þóttu ónauð- synlegar niður falla," segir Albert. Þann 25. september 1983 greinir Morgunblaðið frá því að tveir af þremur ráðuneytisstjómm sem skipuðu svokallaða utanfar- amefnd hafi sagt sig úr nefnd- inni. Ástæðan var sú að þeir töldu ekki nægilegt tillit tekið til um- sagna nefndarinnar um utanferðir opinberra starfsmanna. Baldur Möller þáverandi ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu sagði þann dag í samtali við Morgun- blaðið: „Við töldum að þessi nefnd ætti að gegna því hlutverki að draga úr utanlandsferðum, en árangurinn hefur eitthvað látið á sér standa." Nefnd þessari var ætlað að taka til meðferðar ferða- beiðnir stofnana og gefa umsögn sína um hvort þær væm nauðsyn- legar eða ekki. Morgunblaðið seg- ir að samkvæmt sínum heimildum hafí það verið utanlandsferð tveggja starfsmanna á vegum lista- og safnadeildar mennta- málaráðuneytisins sem fyllti mæl- inn hjá ráðuneytisstjórunum tveimur, þeim Baldri og Hallgrími Dalberg. Leikur að tölum Ef gengið er út frá því að ferða- kostnaður ríkisins vegna ferða opinberra starfsmanna í ár sé 600 milljónir króna og að rúmur helm- ingur hans sé vegna ferðalaga erlendis fara rúmlega 3.000 opin- berir starfsmenn í utanlandsferð á árinu. Er þá miðað við að kostn- aður ríkisins við hveija ferð sé að meðaltali 100.000 krónur. Ef öðmm ráðuneytum en félags- málaráðuneytinu tekst að skera niður sínar ferðir, bæði innan- lands og utan, um sama hlutfall eða 25% má spara með því 150 milljónir króna. Þessi spamaður gæti orðið mun meiri því eins og fyrr greinir er 600 milljónir var- lega áætluð tala. Ekki lágu fyrir tölur um spam- að félagsmálaráðuneytisins í krónum talið en miðað við tölur í ríkisreikningi 1985 og með sömu forsendum og gefnar hafa verið er þessi spamaður ráðuneytisins að lágmarki 4,5 milljónir króna. Framreiknað frá 1985 er ferða- kostnaður ráðuneytisins í heild um 18 milljónir króna. í ríkisreikningi fyrir 1985 kem- ur fram að samgönguráðneytið hefur mestan ferðakostnað ráðu- neyta. Framreiknaður er hann um 123 milljónir króna. Þessi kostn- aður er að langmestum hluta vegna ferða innanlands eða 95,7 milljónir króna. Það ráðuneyti sem ber mestan kostnað vegna utanlandsferða er heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið. Framreiknaður er sá kostnaður í ár 57,6 milljónir króna. Ferðakostnaður vegna inn- anlandsferða þessa ráðuneytis er hinsvegar einungis 7,2 milljónir í ár miðað við fyrrgreindar forsend- ur. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að því verki sem hafið er f ráðuneytinu á þessu sviði, muni verða haldið áfram svo lengi sem hún fer með embættið. Aðrir ráðherrar gætu tekið hana til fyrirmyndar. Fiskverð ð uppboðsmörkuðum 25. ágúst. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfiröi Hsasta Lsegsta Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 45,00 36,00 44,10 12,822 565.543 Ysa 70,00 46,00 62,11 6,710 416.791 Ufsi 26,00 22,00 25,82 4,067 105.034 Karfi 25,00 24,00 24,27 1,205 29.262 Steinbftur 34,00 15,00 31,98 2,099 67.125 Koli 25,00 20,00 20,78 0,486 10.112 Langa 35,00 16,00 33,65 0,673 22.680 Blálanga- 25,00 25,00 26,00 0,108 2.700 Lúöa 206,00 100,00 145,20 0,467 67.861 Skata 40,00 40,00 40,00 0,016 630 Skötuselur 230,00 230,00 230,00 0,061 14.030 Samtals 45,33 28,718 1.301.768 Selt var aðallega úr Keili RE, Sandafelli HF, Mýrafelli ÍS, frá Kristjáni Guðmundssyni 6 Rifi, Saltfangi i Ólafsvik og ísnesi hf. á Rifi. f dag veröa m.a. seld 4 tonn af ýsu úr Stokksey ÁR, 0,8 tonn af lúöu úr Bárði SH og 1 tonn af kola frá Enni hf. i Ólafsvík. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 47,00 36,00 42,29 24,845 1.050.717 Undirmál 20,00 20,00 20,00 1,457 29.140 Ýsa 70,00 35,00 62,44 26,029 1.625.180 Karfi 30,50 15,00 26,42 1,838 48.562 Ufsi 21,00 15,00 20,49 0,669 13.707 Steinbítur 36,00 36,00 36,00 0,086 3.096 Langa 37,00 30,00 34,54 0,091 3.143 Lúða 125,00 120,00 120,56 0,125 15.070 Skarkoli 36,00 25,00 25,65 3,197 81.993 Skötuselur 120,00 100,00 114,72 0,053 6.080 Samtals 49,27 58,391 2.876.688 Selt var úr Gandí VE, Freyju VE og Ásbirnl RE. I dag veröa m.a. seld 70 tonn af ufsa úr Ottó N. Þorlákssyni RE. FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA hf. Ysa 48,50 40,50 42,98 3,192 137.180 Karfi 25,00 22,00 22,46 7,238 162.539 Langa 20,00 20,00 20,00 0,427 8.540 Steinbftur 23,00 23,00 23,00 0,981 22.563 Samtals 27,95 11,838 330.822 Selt var úr Stefni VE, Sandafelli SU, Heimaey VE, Erlingi VE FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Ekkert var boðið upp f gær. f dag verða m.a. seld 50 tonn af þorski, 11 tonn.af ufsa, 14 tonn af karfa og 1 tonn af steinbít úr Bergvík KE. Grænmetisverð á uppboðsmörkuðum 25. ágúst. SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Gúrkur 127,05 4,145 526.605 Sveppir(1 ,fl.) 444,00 0,276 122.543 Sveppir(2.fl.) 220,00 0,012 2.664 Tómatar 136,98 5,454 747.084 Sérrítómatar 322,00 0,001 322 Paprika(græn) 252,47 1,030 260.045 Paprikajrauð) 352,52 1,085 383.565 Gulrætur(ópk.) 117,16 1,240 145.280 Gulrætur(pk.) 145,87 1,820 265.480 Blómkál 55,36 2,681 148.425 Hvítkál 66,88 2,940 196.620 Rófur 77,09 3,425 264.050 Sellerí 155,54 0,240 37.330 Spergilkál 33,51 0,395 13.235 Bufftómatar 153,00 0,006 948 Kfnakál 82,17 1,818 149.382 Jöklasalat 140,93 1,350 190.250 Skrautkél 43,00 0,100 4.300 Samtals 3.535.583 Einnig voru seld 1.597 búnt af steinselju fyrir 52.491 krónur, eða 32,87 króna meöalverö, 150 stykki af salati fyrir 9.000 krón- ur, eða 60 króna meðalverð, og 370 búnt af dilli fyrir 15.960 krónur, eða 43,14 króna meðalverð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.