Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 43
4-- MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS „Geðveikisakstur og djöf- ulgangur á Suðurgötu“ Til Velvakanda. Þann 17. ágúst síðastliðinn rita íbúar við Suðurgötu bréf í Velvak- anda, þar sem þeir lýsa sig ósátta við akstur háværra bifhjóla um götuna að kvöld- og næturlagi. Oska þeir jafnframt eftir því, að umferðardeild lögreglunnar geri eitthvað í málinu, til þess að svefn- samt geti talist í húsum við þessa elstu götu bæjarins. Þá er komið inn á samskipti lögreglu og „mótor- hjólasveina" og sagt að það sé ekki síður verkefni lögreglunnar að stöðva svona geðveikisakstur og tilheyrandi djöfulgang, en að stöðva akstur ölvaðra ökumanna. í grein- inni er þess jafnframt getið, að gera mætti ráð fyrir, að aldurs vegna gerðu þessir ökumenn sér grein fyrir því, að þannig hagi maður ekki akstri sínum í íbúðar- hverfum. Undirritaður tekur undir þessa umkvörtun íbúa við Suðurgötu, svo og annarra íbúðargatna í borginni. Haga þarf akstri nefndra ökutækja þannig, að sem minnst ónæði stafi af þeim. Undirritaður vill vekja at- hygli ökumanna þessara tækja á 35. grein umferðarlaganna, en hún hljóðar svo: „Ökumaður vélknúins ökutækis skal haga meðferð þess og akstri þannig, að frá því stafí eigi hávaði eða loftmengun að óþörfu. I námunda við íbúðarhús skal haga hraða og akstursháttum þannig að eigi valdi óþarfa ónæði.“ Þá er rétt að benda þessu sama fólki á 5. grein lögreglusamþykktar Reykjavíkur, en þar segir: „Bannað er að hafast nokkuð að, sem veldur ónæði eða raskar næturró manna.“ Það ætti hins vegar ekki að þurfa að vera lögreglunni til foráttu, að halda uppi góðu sambandi við borg- aranna, hvort þeir eru á bifhjólum, bifreiðum eða einfaldlega gang- andi. Lögreglan hefur lagt sig fram við að reyna að hafa sem best sam- skipti við sem flesta og eru meðlim- ir bifhjólasamtaka þar ekki undan- skyldir. Lögreglunni er kunnugt um að stjóm slíkra samtaka er annt um að hafa sín mál á hreinu, en hins vegar má segja, að ekki em allir sem ferðast á bifhjólum með- limir í slíkum samtökum. Til þeirra þarf að ná á annan hátt. Bifhjól þau, sem ekið er um göt- umar, hafa verið flutt inn með fullu samþykki þeirra aðila, sem um þau mál eiga að sjá. Þau uppfylla ákveð- in skilyrði, þrátt fyrir mögulega hávaðamengun og er lítið við því að segja. Þá er leyfilegt að aka þeim um götumar eins og þau em, þó með þeim skilyrðum, sem að framan greinir. Hávaði frá bifhjóli er ekki mæli- kvarði á hraða þess. Þannig getur hávaði borist um tiltölulega af- markað svæði við ákveðnar aðstæð- ur, þó ekki sé ekið hratt. Þegar umferðamiðurinn er hjaðnaður á kvöldin og veður er stillt getur hljóð bergmálað milli húsa og valdið þannig meira ónæði á ákveðnum stöðum en ella. Hér er því um meira mál að ræða, en einfaldlega það að stöðva geðveikisaksturinn og tilheyrandi djöfulgang. Spurningin getur jafn- vel verið sú, hvort ekki eigi að loka ákveðnum íbúðargötum fyrir um- ferð ökutækja að kvöld- og nætur- lagi og útiloka þannig hugsanlegt ónæði og stuðla að svefnfriði íbú- anna. Suðurgatan er ekki eina gat- an, þar sem íbúamir hafa gert at- hugasemdir við akstur nefndra öku- tækja. Lögreglan þyrfti allnokkuð lið til þess að koma í veg fyrir akst- ur þessara tækja á þeim stöðum, þar sem þau em talin valda ónæði. Sem betur fer er hér einungis um tímabundið ástand að ræða. Lögreglan hefur oftar en einu sinni þurft að vitna til 8. greinar lögreglusamþykktarinnar varðandi þessi mál, en þar segir: „Lögreglan getur vísað mönnum í burtu af al- mannafæri, sem með háttsemi sinni valda vegfarendum eða íbúum í nágrenninu ónæði.“ Yfirleitt hefur þó verið um skammtímalausnir að ræða í hverju tilviki fyrir sig. Lögreglan mun gera hvað hún getur til þess og koma til móts við íbúa Suðurgötu, svo og aðra, varð- andi þessi mál. Virðingarfyllst, Ómar Smári Ármannsson aðalvarðstjóri. Þessir hringdu . . Gera ætti Kveldúlfs- húsið að sjóminjasafni Einar Vilhjálmsson hringdi: „Þessir menn hjá Eimskip virð- ast alveg vera í vandræðum með fé sitt. Þeir sjá ekki aðrar leiðir til að eyða því en að byggja hót- el. Og í þeim tilgangi ætla þeir að brjóta niður Kveldúlfshúsið, sem er í raun þjóðardýrgripur. Mér þætti nær að þarna yrði sett á stofn sjóminjasafn. Húsið er sérstaklega vel til þess fallið. Það væri skynsamlegra en að byggja undir það suður í Hafnarfirði." Ekki hækka vexti á lán- um Húsnæðisstofnunar Ólafur hringdi: „Ég er einn af þeim fjölmörgu sem hef tekið lán hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins. Ef vextimir á þessum lánum hækka, þá hækka afborganirnar um tugi þúsunda og það hlýtur að leiða til ófarnað- ar. Ef greiðslubyrðin þyngist mik- ið blasir ekkert annað við en að fjöldi fólks missi íbúðir sínar. A hinn bóginn held ég að það sé vel þess virði að skoða niður- færsluleiðina. Þetta er að minnsta kosti eitthvað nýtt, auk þess sem allt er betra en gengisfelling." Kettlingur fannst á Vesturgötu Bröndóttur kettlingur með hvíta sokka og bringu fannst neðst á Vesturgötunni síðastliðinn mánudag. Þetta er læða. Upplýs- ingar í síma 24867. Hvar eru lausnir Ás- mundar? Kona í Austurbænum hringdi: „Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ gagnrýnir allar ráðstafanir þessarar ríkisstjómar. Hins vegar heyrast aldrei frá honum neinar raunhæfar tillögur um efnahags- aðgerðir. Við vitum öll að það þarf að grípa til einhverra aðgerða og þess vegna skora ég á hann að gera okkur, almenningi í landinu ljóst, hvemig hann færi að því að leysa úr þeim vanda, sem þjóðin á við að stríða.“ Tjald týndist í Þórs- mörk Appelsínugult tjald með bláum himni hvarf í Þórsmörk um versl- unarmannahelgiria. Finnandi hringi í síma 30530. Fréttamaðurinn ætti að skammast sín Ragnheiður Jónsdóttir hringdi: „Eg er hneyksluð á þættinum um „Mann vikunnar", sem sýndur var í sjónvarpinu á laugardaginn. Það sem maðurinn sagði gekk alveg fram af mér. Mér finnst að fréttamaðurinn ætti að skammast sín fyrir að bjóða áhorfendum upp á viðtal við svona mann.“ Úlpa týndist á þriðju- daginn Sjö ára drengur týndi úlpu á bensínstöð Skeljungs við Lauga- veg, eða í Skipholtinu. Úlpan er svört með gulu fóðri. Finnandi hringi í síma 23887. Nefndarskipun heilbrigðismálaráðherra: Tillögur til að draga úr áfengisneyslu HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðherra hefur að höfðu samráði við dóms- og kirkjumála- ráðherra skipað nefnd til að gera tillögur um það hvernig draga megi úr heildameyslu áfengis. Er þetta í samræmi við ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 38/1988, þar sem heimiluð er bruggun og sala á áfengu öli. Nefndinni er meðal annars „falið að fjalla um verðlagningu áfengis og leiðir til þess að vara við hætt- um, sem fylgja neyslu þess. Einnig að gera tillögu um sérstaka fræðsluherferð um áfengismál, einkum meðal skólafólks, er hefjist eigi síðar en 1. febrúar næstkom- andi,“ segir í fréttatilkynningu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu. í ne&idinni eiga sæti: Hafsteinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri, formaður, Aldís Yngvadóttir, náms- stjóri, Höskuldur Jónsson, forstjóri, Ólafur W. Stefánsson, skrifstofu- stjóri og Óttar Guðmundsson, yfir- læknir. Starfsmaður og ritari nefndarinnar er Ámi Einarsson, erindreki. Nefndinni er ætlað að skila tillögum sínum fyrir áramótin. HITAMÆLAR Vesturgötu 16, sími13280. KÚPLINGSPRESSUR KÚPLINGSDISKAR KÚPLINGSLEGUR Fyrir flestar tegundir evrópskra og japanskra fólks- og vörubifreiða. Útvegum í allar helstu tegundir fólks- og vörubifreiða. Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKIN N SUÐURLANPSBRAUT 8. SIMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.