Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
19
m Mwðsem.
, .5... m «acíSSOH»
- i ■ :]y @
K'^Wi? ■ ' ^'"C. v&áM ’-'• ^
' jy^jus V’"
Svar viðskiptaráðherra við bréfi Alþýðubandalagsins:
Fjármálafyrirtæki
eru ekki án efdrlits
Bankaeftirlit hefur litið eftir með fyrirtækjunum
Bækur sem væntanlegar eru frá Bókaklúbbi barnanna, Disneyklúbb-
num.
Vaka- Helgafell:
Bókaklúbbur
fyrir börnin
ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Vaka-Helgafell er þessa dagana að hleypa
af stokkunum bókaklúbbi sem eingöngu er ætlaður börnum, að því
er segir í frétt frá fyrirtækinu. Hefur hann hlotið nafnið Bókaklúbb-
ur barnanna, Disneyklúbburinn og verður bókavalið miðað við börn
allt að 10 ára aldri.
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur sent efnahagsmála-
nefnd Alþýðubandalagsins svar
við bréfi nefnarinnar um starf-
semi fjármálafyrirtækja. í bréf-
inu segir ráðherra það rétt að
vöxtur fjármálafyrirtækja hafi
verið mikill á siðustu misserum.
Það sé hins vegar misskilningur
að þau hafi verið án formlegs
eftirlits af hálfu opinberra aðila.
í gildi séu lög er heimili banka-
eftirliti Seðlabankans að hafa
eftirlit með verðbréfamiðlun og
Félögum Disneyklúbbsins mun í
upphafi gefast kostur á að eignast
myndskreyttar sögubækur úr bóka-
Guðrún Ein-
arsdóttir sýnir
í Hafnarg-allerí
GUÐRÚN Einarsdóttir opnar
sýningu á olíumálverkum í Hafn-
argallerí Hafnarstræti 4, föstu-
daginn 26. ágúst og stendur sýn-
ingin til 7. september.
Guðrún útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
síðastliðið vor. Sýningin er opin
virka daga frá klukkan 9-18 og
laugardaga frá 9-12.
Fyrirlestur um
næringarfræði
Dr. med. Gerhard Schmidt,
sérfræðingur í næringarfræði og
antrópófískum jurtalækningum,
heldur fyrirlestur um næringar-
fræði.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsakynnum Yggdrasils á Smiðju-
vegi 11, Kópavogi, laugardaginn
27. ágúst kl. 17.00.
Fyrirlesturinn verður haldinn
undir heitinu „The reality of human
nutrition“.
(Fréttatilkynning)
Kappflug bréf-
dúfna á morgun
Bréfdúfnafélag Reykjavíkur
heldur bréfdúfnakeppni á morg-
un laugardag og verður keppnis-
leiðin sú lengsta sem bréfdúfur
hafa flogið hérlendis i ár, um 250
kílómetrar. Styrktaraðili keppn-
innar er VISA ísland.
Dúfunum verður sleppt frá Fag-
urhólsmýri klukkan átta í fyrramál-
ið að sögn Stefáns Ragnarssonar
og fljúga þær til síns heima. í
keppninni taka þátt bréfdúfnaeig-
endur af Suðvesturhorninu,-en þeir
mynda þijú félög á höfuðborgar-
svæðinu, auk félags á Akranesi og
Suðumesjum. Þá er starfandi félag
bréfdúfnaeigenda á Húsavík. I
síðustu keppni tóku þátt 19 dúfna-
eigendur sem slepptu 340 dúfum á
loft.
Félög bréfdúfnaeigenda sjá til
skiptis um keppnishald að sögn
Stefáns Ragnarssonar og er þetta
tíunda keppnin í sumar. VISA hefur
verið styrktaraðili að þremur
keppnum fram að þessu og veitir
efstu keppendunum fóður í verðlaun
auk farandbikars er kemur í hlut
sigurvegarans.
flokki frá Walt Disney sem ber
heitið Ævintýraheimurinn. Þar er
að fínna sígild ævintýri í nýjum
búningi, svo sem Mjallhvíti, Þyrni-
rós, Hróa Hött, Öskubusku, Pétur
Pan og Gosa. Öðru hveiju munu
svo koma út bækur með þekktustu
söguhetjum Walt Disnev.
Ævintýrabækumar munu koma
út mánaðarlega og verða einungis
til sölu í Bókaklúbbi bamanna, Di-
sneyklúbbnum. Með bókunum fylg-
ir endurgjaldslaust blað bamabóka-
klúbbsins, Gáski. í því verður ýmis
fróðleikur, tómstundaviðfangsefni,
gamanmál cg getraunir, þar sem
íjölskylduferðir til Disneylands í
Flórída í Bandaríkjunum em meðal
verðlauna. Einnig munu stofnfélag-
ar klúbbsins fá gefíns svonefnt
Minnisspil.
Fyrstu bækumar í bókaflokknum
Ævintýraheimurinn munu koma út
í næsta mánuði og heita þær Bambi
og Skógarlíf.
Messíana sýn-
ir í FEVÍ-salnum
MESSÍANA Tómasdóttir sýnir
rýmisverk úr málmi, tré, steini
og speglum og myndir unnar
með akril i pappír i FÍM-salnum,
Garðastræti 6, frá 27. ágúst til
1. september.
Klukkan 15 og 17 á laugar- og
sunnudaga^ sem sýningin stendur
yfír flytur Ása Björk hreyfíverk við
söng Ásu Hlínar Svavarsdóttur, en
það verk byggist á ljóðum og tón-
list sem urðu til samhliða rýmis-
verkunum.
í verkunum á þessari sýningu
gefur myndlistarmaðurinn sér þá
forsendu að fegurðin í skilningi
þeirra Muggs og Matisse sé ekki
tímaskekkja og tekur jafnframt af-
stöðu gegn forfrömun ljótleikans í
samtíðinni.
Messíana hefur um árabil starfað
hér heima og erlendis að leikmynda-
gerð og brúðuleikhúsi auk fyrir-
lestra og kennslu í þessum greinum.
Hún fékk starfslaun listamanna til
að vinna að þessari sýningu, en
áður hefur hún m.a. hlotið náms-
styrk hjá franska ríkinu, dvalar-
styrk í Norrænu listamiðstöðinni í
Sveaborg og starfslaun Reykjavík-
urborgar til að vinna að brúðuleik-
„Flotinn mættur“ eftir Messíönu
Tómasdóttur, sem nú sýnir verk
sín í FÍM-salnum.
sýningunni Bláu stúlkunni. Á
síðasta ári hlaut hún svo styrk
menntamálaráðuneytisins/leiklist-
arráðs til að vinna að sýningunni
Sjö spegilmyndir. Þessar tvær leik-
sýningar hafa einnig verið sýndar
á leiklistarhátíðum erlendis.
(Fréttatilkynninsr)
rekstri verðbréfasjóða. Sam-
kvæmt þeirri heimild hafi bank-
eftirlitið litið eftir með rekstri
fyrirtækjanna.
Segir ráðherra að skort hafí á
ýmis ákvæði um reksturinn og
starfsemi svokallaðra fjármögnun-
arleigufyritækja. „Þar má nefna
skýr ákvæði er girði fyrir hags-
munaárekstra verðbréfafyrirtækis
og verðbréfasjóðs, sem það rekur,
ákvæði um upplýsingaskyldu gagn-
vart eigendum hlutdeildarskírteina
í verðbréfasjóði, ákvæði um eigin-
fjárstöðu verðbréfafyrirtækis o.fl.,“
segir í bréfínu. Því hafí ráðherra
skipað nefnd i febrúar sl. er kanni
nauðsyn á frekari lagasetningu um
þessa starfsemi. Tryggja þurfi að
félögin og stjómendur þeirra séu
ekki eigendur þeirra fyrirtækja sem
þeir kaupi skuldabréf af.
Nefndin fjallaði um verðbréfavið-
skipti og verðbréfasjóði og samdi
drög að frumvarpi til nýrra laga.
Segist ráðherra vænta endanlegra
frumvarpsdraga á næstu dögum og
muni hann þá leggja þau fyrir ríkis-
stjóm og þingflokka hennar til að
ákvarða hvort þau verði lögð fram.
Þá fjallaði nefndin um fjármögn-
unarleigur og samdi hún síðan drög
að frumvarpi tii laga um eignar-
leigu. Það verður sömuleiðis lagt
fyrir ríkisstjóm og þingflokka.
I þriðja lagi var athugaður rekst-
ur á sviði greiðslumiðlunar, af-
borgunarviðskipta o.fl. en sú athug-
un er skemmra á veg komin.
í niðurlagi bréfsins þakkar ráð-
herra þann áhuga er Alþýðubanda-
lagið hafí sýnt framgangi málsins
og segir fiokkinn fá tækifæri til að
vinna að honum.
Tillögur efnahagsmálanefndar
Alþýðubandalagsins:
Millifærsla og
kerfisbreytingar
í stað niðurfærslu
Morgunblaðið/Einar Falur
Nokkrir hundar, sem taka munu þátt í hundafimisýningunni sýndu
blaðamönnum listir sínar í gær. Þarna stekkur labrador-tíkin Dimma-
limm í gegnum eina hindrunina.
Hundasýning í Reiðhöllinni:
Keppt í hundafimi í fyrsta sinn
HUNDARÆKTARFÉLAG ís-
lands heldur hina árlegu hunda-
sýningu sína sunnudaginn 28.
ágúst í Reiðhöllinni í Viðidal og
hefst hún kl. 9. Þetta er fimmt-
ánda sýningin, sem félagið efnir
til, frá því að það var stofnað
árið 1969. Til þátttöku hafa ver-
ið skráðir 170 hundar af 10 mis-
munandi hundakynjum. Tvö kyn
verða nú sýnd í fyrsta sinn, ensk-
ur Springer Spaniel og
stríðhærður langhundur. Guðrún
R. Guðjohnsen, formaður Hunda-
ræktarfélagsins, sagði í samtali
við blaðið, að áhersla væri lögð
á að öll fjölskyldan kæmi saman
á sýninguna og væri því margt
til skemmtunar.
Auk þess sem hundar keppa inn-
byrðis um titla, eins og „besti hund-
ur tegundarinnar" og „besti hundur
sýningarinnar", þá fara þeir í
hundaleiki, sem felast í ýmsum
þrautum, og sýna hundafími. Fjög-
ur blönduð hundafimilið keppa sin
á milli í að fara hindrunarbraut, sem
smíðuð var fyrir keppnina. Gunnilla
Lundbom, hundafímileiðbeinandi
fra Svíþjóð, stjórnar keppninni.
Þetta er í fyrsta sinn, sem hunda-
fimisýning er hér á landi og Gunn-
illa segir, að hundamir hafí ekki
hlotið langa þjálfun og því sé ekki
að búast við því að allt gangi
snurðulaust fyrir sig. En þeir njóti
hundafiminnar í ríkum mæli.
Hundaleikimir verða í hádeginu
og hundafimin milli 16 og 17, en
hver tegund fyrir sig verður dæmd
milli 9 og 17. Byijað verður á
íslenska fjárhundinum og svo rekur
hver tegund aðra. Dómarar verða
Ole Staunskjær frá Danmörku og
Kirsti Wuorimaa frá Finnlandi.
Efnahagsmálanefnd Alþýðu-
bandalagsins hefur sett fram til-
lögur um aðgerðir í efnahags-
málum. Á blaðamannafundi sem
nefndin hélt á miðvikudag, sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, form-
aður Alþýðubandalagsins, enga
raunverulega kreppu vera i efna-
hagslifi þjóðarinnar, heldur væri
rangri hagstjórn um að kenna.
Legði nefndin því til að farin
yrði leið millifærslu og kerfis-
breytinga i stað niðurfærslu. Er
þar gert ráð fyrir stöðugu gengi
krónunnar, óskertum kaupmætti
launa og fullri atvinnu. Til að
verðbólga hjaðni og jafnvægi
komist á í efnahagslífinu verði
að stokka upp rekstrarkerfi út-
fluningsatvinnuveganna, lög-
binda lækkun raunvaxta, fjár-
magnskostnaðar og ýmissa ann-
arra kostnaðarliða og flytja til
fjármagn í gegnum skattakerfið.
„Grundvallarspumingin er hvort
skerða eigi tekjur launafólks enn
einu sinni eða skerða tekjur fjár-
magnseigenda, sem hafa verið
skattfíjálsar undanfarin ár,“ sagði
Steingrímur Sigfússon, einn nefnd-
armanna og formaður þingsflokks
Alþýðubandalagsins.
Olafur Ragnar sagði leið kerfís-
breytingar fela í sér að knýja þyrfti
atvinnurekendur til varanlegrar
endurskipulagningar á rekstrinum.
Fj ármagnseigendur ættu að bera
meginkostnaðinn af millifærslunni.
Taka þyrfti upp markvissa stýringu
á vöxtum og peningamarkaði og
beita lögum til að færa raunvexti
niður í 3% og minnka vaxtamuninn
niður í sama hlutfall og í nágranna-
löndunum. Halda þyrfti genginu
stöðugu, ríkissjóður yrði í jafn-
vægi, erlendri skuldasöfnun yrði
hætt og verðbólgan færi niður í
sama stig og í nágrannalöndum.
Svavar Gestsson alþingismaður,
sagði meginorsök efnahagsörðug-
leikanna vera stjómleysi í vaxta-
og peningamálum. Endurskipu-
leggja þyrfti bankakerfið, afnema
núgildandi lánkjaravísitöu og sam-
ræma lækkun á vöxtum lífeyrissjóð-
anna. Óheimilt verði að breyta vöxt-
um á lánum til lengri tíma. Þá vill
nefndin að erlend skuldasöfnun
verði stöðvuð, eftirlit verið haft með
„gráa fjármagnsmarkaðnum" og
að fjármagnseigendur borgi sömu
skatta og launafólk.
Auk Svavars, Ólafs Ragnars og
Steingríms, á sæti í nefndinni
Svanfríður Jónasdóttir, varaform-
aður Alþýðubandalagsins.