Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Vigdís viðleiði Skáld-Rósu Morgunblaðið/Þorkell „HINGAÐ kom hún og baðst næturgist- ingar og hún komst ekki lengra,“ sagði Þórhildur ísberg sýslumannsfrú er hún sýndi forseta íslands, frú Vigdísi Finn- bogadóttur, leiði Skáld-Rósu. Einn fyrsti viðkomustaður forsetans í hinni opin- beru heimsókn i Húnavatnssýslur var Efri-Núpur í Núpsdai, þar sem leiði Rósu er. „Það er vel við hæfi að ég sæki heim leiði Skáld-Rósu, þvi að í minni leik- hússtjóratíð var samið og sett upp leik- rit um hana eftir Birgi Sigurðsson," sagði Vigdís. Hún var leikhússtjóri í Iðnó áður en hún tók við embætti forseta. Á myndinni eru, frá vinstri^ sýslu- mannshjónin Jón og Þórhildur fsberg, frú Vigdís Finnbogadóttir, Inga Her- steinsdóttir og Kornelíus Sigmundsson forsetaritari. Sjá nánari frásögn og myndir á bls. 3. Efnahagsvandinn: Miðstjóm ASÍ ræðir við ríkisstjórnina árdegis Rostungur í Siglufirði Rostungur sást á sundi í Siglu- firði síðastliðinn þriðjudag. Nokkrir trillukarlar reyndu að reka hann inn fjörðinn, en höfðu ekki erindi sem erfiði. „Hann synti rétt við hliðina á bátnum og kom alveg upp að borð- inu hjá okkur, alls ófeiminn," sagði Guðjón Jónsson, sem var einn þeirra sem sáu rostunginn. „Við ætluðum að reka hann inn fjörðinn, ekki þó í þeim tilgangi að ná honum, heldur meira til gamans. Hann kærði sig lítið um það og við sáum hann hverfa út með fjörunni. Þetta var heljarmikil skeþna, tennumar sennilega hátt í 40 sm langar." Guðjón sagði að í Siglufirði hefðu menn engar kenningar um það hvaðan rostungurinn væri kominn. „Þetta var eflaust einhver flæking- ur, það er ekki algengt að þeir sjá- ist svona inni á fjörðum," sagði hann. Trilla í vanda SEND var út hjálparbeiðni frá trillunni Ernu Maríu RE 166 klukkan 20.15 í gær. Trillan var þá 2,5 sjómílur norður af Garð- skaga með bilað drif. Björgunarbáturinn Sæbjörg tók trilluna í tog og var kominn með hana til Sandgerðis klukkan 21.45. Einn maður var um borð í trillunni. Metheimtur á hafbeitarlaxi METHEIMTUR hafa verið á hafbeitarlaxi hjá Laxeldisstöð- inni í Kollafirði í sumar, að sögn Ólafs Ásmundssonar stöðvar- stjóra. „Við erum búnir að heimta 20.600 eins árs gamla laxa í sumar sem eru 10,8% heimtur því við slepptum 190 þúsund seiðum í fyrra,“ sagði Ólafur í samtali við Morgun- blaðið. „Bestu heimtur til þessa voru árið 1986 þegar við heimtum 14.300 eins árs gamla laxa, eða um 8% af þeim 180 þúsund seiðum sem við slepptum sumarið 1985. Við fengum svo 1.500 laxa til við- bótar úr þeirri sleppingu í fyrra- sumar. Við erum ennþá að heimta lax og reiknum með að fá um 2.000 tveggja ára gamla laxa á næsta ári,“ sagði Ólafur. FERÐAKOSTNAÐUR ríkisins vegna ferða opinberra starfs- manna nemur i ár um 600 milljón- um króna. Hér er um mjög var- lega áætlun að ræða. Engar tölur er að fá um þennan kostnað i kerfinu fyrir árið í ár, né 1987 og 1986. Talan 600 milijónir er fengin með þvi að framreikna kostnaðinn frá árínu 1985. í fylgiskjali með ríkisreikningi 1985 kemur fram að ferðakostnaður ríksins nam 321,5 milljónum króna og skiptist nokkuð jafnt eftir ferðum innanlands og utan. Hægt er að framreikna þessa tölu á tvennan hátt, samkvæmt vísitölum eins og MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís- lands samþykkti i gær að ganga i dag til fundar við ríkisstjórnina um fyrirhugaðar efnahagsaðgerð- ir. Gert er ráð fyrir, að þessi fund- ur verði haldinn árdegis. Sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun nokkur skoðana- framfærsluvísitölunni og kemur þá út talan 600 milljónir. Einnig er hægt að gefa sér þá forsendu að þessi kostnaður sé sama hlutfall af ríkisútgjöldum í ár og hann var 1985. Þá kemur fram mun hærri tala eða 750 milljónir króna. Bolli Bollason skrifstofustjóri hag- deildar fjármálaráðuneytisins segir það álitamál hvora aðferðina beri að nota. Hann bendir á að dagpeningar þeir sem greiddir eru á ferðalögum erlendis hafi svo til nákvæmlega fylgt þróun framfærsluvísitölunnar þannig að sennilega sé réttara að nota þá viðmiðun. Tryggvi Friðjónsson deildarstjóri munur hafa verið innan miðstjórn- arínnar um málsmeðferð. Hug- myndir komu fram þar um að ganga til viðræðna við ríkisstjórn- ina með vissum skilyrðum en því var hafnað af meirihluta mið- stjómar. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- í félagsmálaráðuneytinu segir að í sumum stofnunum sem heyra undir embættið séu svo til allar ferðir utan- lands tilkomnar vegna ákvæðis í kjarasamningum nokkurra hópa inn- an BHM sem kveður á um að viðkom- andi starfsmenn fái eina utanlands- ferð á ári, ásamt dvalarkostnaði, til endurmenntunar. Sem kunnugt er af fréttum Morg- unblaðsins hefur félagsmálaráðu- neytið skorið niður ferðakostnað sinn, og þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið, um fjórðung. Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra segir að þeirri stefnu verði haldið meðan hún sé í embættinu. Sjá Af innlendum vettvangi á bls. 27. herra sagði við Morgunblaðið í gær að niðurfærsluleið kæmi ekki til greina nema tryggt væri að eitt gengi yfir alla og það væri augljóslega hlut- verk aðila kjarasamninga að tryggja slíkt. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun gæti mikil eftispum eftir vinnuafli um þessar mundir leitt til þess að laun lækki um minna en 9% að meðaltali og jafnframt er bent á að óvissa ríki um þau 10-20% vinnuaflsins sem starfi á eigin vegum eða í mjög litlum fyrirtækjum. Formenn stjómarflokkanna héldu fund með forustumönnum Vinnuveit- endasambandsins og óskuðu eftir að ræða við fulltrúa Alþýðusambandsins í dag. „Við göngum á fund ríkisstjórnar- innar í því skyni að fá fram hvaða hugmyndir hún hefur um efnahags- aðgerðir. Við viljum ekki binda hend- ur okkar áður en ljóst er hvaða vilji er til þess að gera raunhæfar ráðstaf- anir," sagði Ásmundur Stefánsson formaður ASÍ. „Léttasta leiðin fyrir okkur og sú vinsælasta væri sjálfsagt að hafna þessum kosti. Mér finnst hinsvegar farsælt að ræða málið við ríkisstjóm- ina. Mér lýst betur á niðurfærsluna en meira en tuttugu prósent gengis- lækkun og verðbólgukollsteypu," sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins. „Þetta er auðvitað svipað og að spyija hvort maður vilji láta slqóta sig eða hengja. Eins og niðurfærslan er sett fram er hún mjög óaðgengi- leg. Ég þarf að sjá miklu betri trygg- ingu fyrir vaxta og verðlækkunum," sagði Guðmundur. I samtali fyrir miðstjómarfund Alþýðusambandsins sagði Guðmund- ur Þ. Jónsson að samráð um launa- lækkanir félagsmanna Iðju kæmi ekki til greina. Lífeyrisþegar og þeir sem vinna á taxtakaupi em hvað varnarlausastir fyrir niðurfærslunni og fólk sem hefur laun á bilinu 39.000-45.000 geturekki borið neina skerðingu. Aðrir hafa möguleika á að bæta sér það upp. Stjóm Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hafnar niðurfærsluleið með öllu og sendi frá sér harðyrt mótmæli í gær. Launamálaráð BHMR varar við öllum hugmyndum um kjaraskerðingu og segir að launa- fólk beri enga ábyrgð á efnahags- vandanum. Ríkisstjómin hefur ekki boðað til funda með samtökum ríkisstarfs- manna að sögn Kristjáns Thorlacius formanns BSRB. „Við treystum því á engan hátt að verðlagið lækki til samræmis við kjaraskerðinguna. Þessi leið virðist óframkvæmanleg og út í bláinn að ræða launalækkun við okkur," sagði hann. Hið opinbera: Um 600 millj. í ferðakostnað Úttekt undirbúin í fjármálaráðuneyti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.