Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 37 Myndin er tekin á Kleppjárnsreykjum, þar sem Slysavarnarkonur úr Hafnarfirði settust að snæðingi. Slysavarnarkonur: Lögðu land undir fót Slysavamarkonur úr slysavam- ardeildinni Hraunprýði í Hafn- arfirði fóru í sína árlegu sumarferð nú á dögunum. Var farið Borgar- fjörðinn, suður Kaldadal, Þingvöll og á Selfoss, þar sem snæddur var kvöldverður. Bflstjórinn, Jón Gestsson, var hér að fara í tímamótaferð, en þetta var tuttugasta og fimmta skiptið sem hann ekur slysavarnarkonum á ferðalögum þeirra. Skyldi maður ætla að Jón nyti mikils trausts þeirra Slysavarnarkvenna í Hafnar- firði. Sumir ungar skríða seint úr „Til hvers að halda aftur af kæti sinni? Skellum saman egginu. hælum.“ Jón Gestsson er hér ásamt einum ferðalanganna að gæða sér á eggjum. Dawnn Lewis hefur bæði metnað og mikla hæfileika. DAWNN LEWIS Ný stjarna er iippgötvuð Dawnn Lewis, betur þekkt hér á landi sem „Jaleesa" í þáttunum „Vistaskipti" er spáð mikilli velgengni í Ameríku. Hún er miklum hæfíleikum gædd, getur sungið, dansað, leikið og samið lög og texta, betur en margir aðrir. Hún hefur til dæmis samið texta og titillagið í þáttunum Hún hefur próf frá söng og leiklistarsviði háskólans í Miami. Rödd hennar og sviðs- framkoma hef- ur vakið mikla athygli, meðal annars hefur hún gert garð- inn frægan á Broadway, og fékk hún mjög góða dóma þar fyrir bæði leik og söng. Sagt er að hún skipti úr sígildri tónlist yfír í popp- músík eða jazz án þess að hafa nokkuð fyrir því. Sjálf tekur hún öllu með ró, og segin „Ég hef erfíðað mikið til þessa og ég á eftir að ná miklu lengra." Bill Cosby bauð henni að leika í þáttunum, og hefur hún síðan fengið Qölmörg tilboð. Hún hefur gefíð út sína fyrstu sólóplötu, „Funky Thang“. Næst hjá henni er eigin LP plata og éigin sjónvarpsþattur. Hún er þegar með 22 ný lög tilbúin, og 14 tilboð hefur hún fengið frá þremur mismunandi sjónvarpsstöðvum. Foreldrar hennar eru frá Suður Ameríku, faðir hennar er leigubílstjóri og móðir hennar er hjúkrunarkona, búsett í New York. Sjálf býr hún í Los Angeles. Hún hefur sungið og leikið á sviði síðan hún var fj'ögurra ára göm- ul, og er í dag 27 ára. Þá er bara að bíða og sjá hve langt þessi fjölhæfa stúlka nær á frama- brautinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.