Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 * Fullyrðingar Olafs Ragnars eiga ekki við um Kaupþing Hafa valdið óróa hjá sparifjáreigendum, segir Pétur Blöndal PÉTUR Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings hf., sagði á fundi með blaðamönnum í gær að ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Alþýðubandalagsins gætu á engan hátt átt við um þá sjóði sem Kaupþing ræki en þau hefðu valdið óvenjumiklum óróa hjá sparifjáreigendum. Vegna þessa hefði borið nokkuð á innlausn Ein- ingarbréfa, sérstaklega þó 22. ágúst. Innlausn hafi þá verið rúm 21 milljón en venjulega séu innleystar 1—3 milljónir á dag. Samkvæmt upplýsingum sem lagð- ar voru fram á fundinum var inn- lausn Einingabréfa rúmar 34 millj- ónir dagana 19—24. ágúst. Pétur Blöndal sagði að mikið hefði verið spurt um getu Kaupþings hf. til þess að innleysa Einingarbréf jafn- óðum. Væri greinilegt að sögusagn- ir væru í gangi um að verðbréfa- sjóðir hafí ekki getað orðið við ósk- um viðskiptavina sinna um að inn- leysa. Kaupþing hefði áður innleyst yfir 40 milljónir á einum degi og gæti ráðið við miklu stærri upphæð- ir í samvinnu við sparisjóðina. Eig- endur Einingarbréfa hefðu ætíð getað fengið bréf sín greidd út yfír borðið. „Við rekstur sjóðanna hafa verið hafðar í heiðri almennt viðurkennd- ar reglur um útjöfnun og dreifíngu áhættu. Þess vegna er þess gætt að ætíð sé til staðar nægt laust fé til þess að unnt sé að sinna úrlausn Einingabréfa við eðlilegar aðstæð- ur. Þá er fylgt varlegum reglum við mat á eignum sjóðanna, sem standa að baki útgefnum einingum. Allar þessar reglur hafa verið sam- ræmdar hjá Kaupþingi hf., Fjárfest- ingarfélaginu hf. og Verðbréfa- markaði Iðnaðarbankans hf. og hafa þær verið kynntar bæði banka- eftirliti Seðlabankans og viðskipta- ráðuneytinu," sagði Pétur. Pétur sagði ennfremur að ákveð- ið hefði verið að fella niður 2% inn- lausnargjald þeirra sem innleystu einingar sínar föstudaginn 19. ágúst til 26. ágúst, ef þeir óskuðu eftir að kaupa Einingabréf sín aftur til baka enda bærist ósk um það fyrir lok ágúst 1988. Þannig hyggð- ist stjórn Kaupþings hf. bæta þess- um sparifjáreigendum það tjón, sem ofangreindar fréttir hefðu bakað þeim. Baldvin Tryggvason, sparisjóðs- stjóri hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og stjómarmaður í Kaup- þingi hf. sagði á fundinum að þeir níu sparisjóðir sem væru eignaraðil- ar að Kaupþingi hf. hefðu keypt fyrirtækið að vel athuguðu máli. Vel væri fylgst með rekstrinum og fyrirtækinu væri fullkomlega treyst. _______________________________\______________ VEÐURHORFUR í DAG, 26. ÁGÚST1988 YFIRUT í GÆR: Yfir Norðursjó er 995 mb lægðarsvæði sem þok- ast austur og liggur þaðan lægðardrag til norðvesturs í átt til Jan Mayen. Yfir Norður-Grænlandi er 1.015 mb hæð. Heldur kólnar í veðri en þó verður áfram 12—15 stiga hiti aö deginum sunnanlands. SPÁ: Fremur hæg norðanátt, þó kaldi á Vestfjörðum þegar liður á daginn. Skýjað á Norður- og Austurlandi og dálítil súld við strönd- ina en bjart veður að mestu sunnanlands og vestan. Syöst á landinu gætu þó orðið skúrir annað kvöld. Hiti 7—14 stig, hlýjast á Suður- landi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustanátt, líklega nokkuð hvöss. Rigning norðan- og austanlands og 5—8 stiga hiti en bjart veöur og 10—14 stiga hiti syðra. y. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * f * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j* Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyrl 10 alskýjaS Reykjavík 12 léttskýjað Bergen 16 rígning Helsinkl 18 Rkýjað Kaupmannah. 18 þokumóða Narssarssuaq 7 alskýjað Nuuk 6 súld Ósló 16 skýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 14 skýjað Algarve 32 heiðskfrt Amsterdam 16 skúr Barcelona 27 hálfskýjað Chicago 17 léttskýjað Feneyjar 23 skýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow 16 skúr Hamborg 14 skúr Las Palmas 24 skýjað London 17 skýjað Los Angeles 19 heiðskfrt Lúxemborg 18 skýjað Madríd 29 heiðskfrt Malaga 32 heiðskfrt Mallorca 29 lóttskýjað Montreal 14 skúr New York 19 þokumóða Paris 18 skúr Róm vantar San Olego 21 heiðskfrt Winnipeg 14 léttskýjað Morgunblaðið/Einar Falur Doktor Gmoser sendiherra afhenti Sigurði Björnssyni heiðurs- krossinn. Signrður Björnsson hlýtur heiðurskross listamanna SIGURÐI Björnssyni framkvæmdastjóra Sinfóníuliljómsveitar ís- lands var í gær veittur austurrískur heiðurskross vísinda- og lista- manna fyrir störf sín í þágu listarinnar. Dr. Gmoser sendiherra Austurríkis á íslandi, með aðsetur í Kaupmannahöfn, afhenti Sigurði heiðurskrossinn og þakkaði honum um leið öflugt sam- starf við austurríska tónlistarmenn. Sigurður Bjömsson hefur starf- að við Sinfóníuhljómsveit íslands sl. 11 ár. „Ég er afar þakklátur fyrir að verða þessa heiðurs að- njótandi," sagði Sigurður m.a. við þetta tækifæri. Hann sagði þó að sér fyndist sem Sinfóníuhljóm- sveitin ætti líka heiður skilinn. „Því þó ég hafí fengið til landsins austurríska tónlistarmenn, þá hef- ur hljómsveitin orðið að spila með þessum listamönnum." Sigurður er fyrsti íslendingur- inn sem hlýtur austurríska heið- urskross vísinda- og listamanna að sögn Ludwigs Siemsen aðal- ræðismanns Austurríkis á íslandi. Eggjaverð: Framleiðendur fá frest til að gera grein fyrir verðmyndun VERÐLAGSRÁÐ hefur gefið eKKÍaframleiðendum frest út næstu viku til að gera grein fyr- ir verðiagningu eggja. Neytenda- samtökin telja að ólöglegt sam- ráð sé um varðlagninguna og hafa kært það til verðlagsyfir- valda. Neytendasamtökin segja, að eggjaverð hafi hækkað um tæp 60% síðan i byijun april á þessu ári, en framleiðendur hafa mótmælt þvi, segja hækkunina vera mun minni. A meðan frest- urinn varir verður ekki gripið til neinna aðgerða af hálfu verð- Iagsráðs. Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna sagði í gær, að það væri ótvírætt að eggin hafí hækkað um 59,9% á þessu tíma- bili. Verðkannanir sem gerðar eru til að mæla framfærsluvísitölu sanni það. í þeim könnunum er athugað verð í ákveðnum verslun- um, ávallt þeim sömu. „Þetta er meðalverð úr þeim verslunum sem hefur hækkað 59,9%,“ sagði Jó- hannes. „Annars vegar er miðað við verðið í byijun aprílmánaðar, hins vegar verð í byrjun ágústmán- aðar að viðbættri þeirri hækkun sem kom eftir að verð var athugað í ágústbyijun, þá kom 14,4% hækk- un. Þar af leiðandi hafa egg hækk- að um 59,9%. Það er búið að yfír- fara þessar tölur í tvígang og þær eru örugglega réttar. Ég veit að prósentuálagning verslananna hef- ur verið sú sama á þessu tímabili, þannig að ekki er hægt að skýra verðhækkunina með meiri álagn- ingu þeirra," sagði Jóhannes. Númeralaus lögreglubíll ÞRÍR gárungar gerðu Borg- arneslögreglunni hrekk við samkomuhúsið Logaland um helgina. Fjórir lögreglumenn voru á vakt á Logalandi vegna dans- leiks og höfðu að mörgu öðru að huga en lögreglubifreiðinni sem þeir ferðuðust á. Að lokn- um dansleiknum komust lög- reglumennimir að því að búið var að skrúfa báðar númera- plötumar af lögreglubílnum. Fljótt uppgötvaðist hveijir þama höfðu verið að verki og vom þeir fluttir í númera- lausri lögreglubifreiðinni til Borgamess þar sem þeir vom látnir sofa úr sér áfengis- vímuna. Þegar félagarnir vöknuðu daginn eftir viður- kenndu þeir verknaðinn og vísuðu á númeraplöturnar sem þeir höfðu falið utan við sam- komuhúsið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.