Morgunblaðið - 26.08.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
Dior kynnir nýtt
ilmvatn á íslandi
Von á 150 erlendum fréttamönnum
í tengslum við kynninguna
Kynningin fer að mestu fram 7.
september, en síðan verður ferðast
með blaðamennina um landið. Ilm-
vatnið verður ekki sett á markað
fyrr en 10. september.
FYRIRTÆKIÐ Parfume Christ-
ian Dior ætlar að kynna heimin-
um nýtt ilmvatn fyrir karlmenn
á íslandi dagana 7.-8. september
nk. Af því tilefni eru væntanleg-
ir hingað til lands aðalforstjóri
og stjórnarformaður fyrirtækis-
ins ásamt fjölmennu fylgdarliði.
Einnig koma 150 fréttamenn
hvaðanæva úr heimininum.
Ólafur Kjartansson er umboðs-
maður Dior á íslandi og sagði hann
f samtali við Morgunblaðið að von
væri á fjölda manns til landsins í
tilefni kynningarinnar. Ásamt aðal-
forstjóranum og stjómarformannin-
um sem kóma til landsins í einka-
þotu verða t\ ær prinsessur sem
starfa hjá Parfume Christian Dior
og sex aðrir starfsmenn. Fjöldinn
allur af tækniliði kemur á undan
til undirbúnings og þann 7. septem-
ber koma fréttamennimir 150 hing-
að frá París.
Að sögn Ólafs er hér um að
ræða heimskynningu á nýju ilm-
vatni fyrir karlmenn frá Dior. vel sunnanverða Vestfirði."
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Hópur starfsmanna
ræðir kaup hlutabréfa
Helgarveðrið:
Bjart á Suður-
og Vesturlandi
ÚTLIT er fyrir norðanátt á
landinu um helgina. Að sögn
Guðmundar Hafsteinssonar veð-
urfræðings verður væntanlega
bjart á Suður- og Vesturlandi,
en þungbúið og einhver væta á
Norður- og Austuriandi.
„Þetta verður þónokkuð ákveðin
norðanátt, ég held það geti orðið
leiðinlega hvasst," sagði Guðmund-
ur. „Bjartviðrið mun líklega ná frá
Skaftafellssýslum og vestur um
land norður á Breiðafjörð eða jafn-
HÓPUR tfu til fimmtán starfs-
manna Ferðaskrifstofu ríkisiná á
í viðræðum við fulltrúa sam-
gönguráðuneytis um kaup á
ferðaskrifstofunni. Ákvörðun
um kaup hlutabréfa þarf að sögn
Kjartans Lárussonar, forstjóra
Ferðaskrifstofu ríkisins, að
liggja fyrir um mánaðamótin.
Stofnfundur hlutafélags ferða-
skrifstofunnar verður haldinn 7.
september og viku síðar tekur hið
nýja hlutafélag, Ferðaskrifstofa fs-
lands hf., við rekstrinum. Lögum
samkvæmt má selja tvo þriðju hluta
f fyrirtækinu en ríkið heldur þriðj-
ungi. Að sögn Kjartans Lárussonar
stefnir starfsmannahópurinn að
kaupum á fullum tveimur þriðju
hlutum. Þó segir hann ýmis ljón í
veginum og enn sé of snemmt að
segja til um málalyktir.
Þar sem starfsmenn hafa for-
gangsrétt um kaupin hefur ekki
verið rætt við aðra aðila að sögn
Ragnhildar Hjaltadóttur í sam-
gönguráðuneytinu. Matsverð á
Ferðaskrifstofu ríkisins er 32 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Tvíburarnir Guðmundur og Sæmundur Jónssynir aka hér Uxahryggjaleið f alþjóðaralli Hjólbarða-
hallarinnar. Þeir náðu forystu í gær eftir að hafa náð besta aksturstíma á erfiðustu leiðunum. í
dag aka þeir Nissan 240 RS sínum á vegum sem þeir þekkja mjög vel og það kemur þeim til góða.
Alþjóðarallið
Oheppnin elti ökumennina
VELTUR og ólán settu svip sinn á alþjóðarallkeppni Hjólbarða-
hallarinnar f gær. Tvfburarnir Guðmundur og Sæmundur Jónssyn-
ir á Nissan 240 RS voru einu toppökumennirnir sem sluppu klakk-
laust frá fyrsta keppnisdeginum af þremur og höfðu forystu
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
íslandsmeistararnir Jón Ragn-
arsson og Rúnar Jónsson á Ford
Escort RS töpuðu miklum tíma
eftir að dekk hafði sprungið og
voru í sjöunda sæti. Ólánssamari
voru þó félagamir Steingrímur
Ir.gason og Witek Bogdanski á
Nissan 510, sem hættu keppni
vegn bilunar í drifbúnaði. Jón S.
Haildórsson og Guðbergur Guð-
bergsson á Porsche 911 náðu að
halda áfram keppni, þrátt fyrir
að hafa misst framhjól undan á
fullri ferð. Urðu þeir að aka hluta
Kaldadalsleiðar á þremur hjólum,
en náðu að halda áfram. í flokki
óbreyttra bíla kollkeyrði Ámi
Sæmundsson Mazda 323 4x4
keppnisbíl sinn, fór þijár veltur
og varð að hætta keppni. Sömu-
leiðis velti Bretinn Andrew Orc-
hard á Peugeot 205 sínum bíl og
varð að hætta því gat kom á
bensíntank bílsins.
Keppendur í rallinu aka sérleið-
ir um Heklubraut, Dómadal og
Línuveg við Sigöldu í dag en síðan
verður næturhlé síðdegis við Hjól-
barðahöllina í Fellsmúla. Staðan
síðdegis í gær: 1. Guðmund-
ur/Sæmundur 43,02 mín í refs-
ingu, 2. Jón/Guðbergur 45,18, 3.
Ólafur/Halldór 46,59, Sigurð-
ur/Amar 47,42.
G.R.
Þjóðhagsstofnun telur launalækkun ekki ná til 10-20% launþega:
Undir aðilum kjarasamninga
komið að eitt gangi yfir alla
- segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
ÞJ ÓÐHAGSSTOFNUN telur að
óvissa riki um hvort 9% lækkun
launa nái til 10-20% launþega,
þeirra sem starfi á eigin vegum
eða f mjög litlum fyrirtækjum.
Einnig telur stofnunin að lög-
bundin lækkun á verðlagi gæti
haft f för með sér 2-3% lækkun á
næstu 2-3 mánuðum. Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra segir
að það sé forsenda fyrir niður-
færsluleið að eitt gangi yfir alla,
Þörf á verulegri hækkun
búvöru um mánaðamótin
- segir hagfræðingur Stéttarsambands bænda
GRUNDVÖLLUR á verði búvöru er laus um næstu mánaðamót og
kemur þá til kasta fimm-mannanefndarinnar að ákveða verð-
hækkun. í stjórnarflokkunum hafa heyrst hugmyndir um að fresta
ákvörðuninni um einn mánuð á meðan fjallað er um efnahagsaðgerð-
iraar. Jafnt bændur sem sláturleyfishafar og seljendur teija sig
eiga rétt á hækkunum. Ef tekið er tillit til hækkunar á kostnaði
bænda einna þyrftu búvörur, mjólk og kjöt, að hækka um 4-5% að
sögn Gunnlaugs Júlíussonar hagfræðings Stéttarsambands bænda.
Eins og aðrir launþegar og at-
vinnurekendur telja aðilar í land-
búnaði kostnað hafa vaxið að und-
anfömu. Búvöruverð var síðast
ákveðið í júní. Hækki verð afurð-
anna ekki þurfa bændur að skerða
eigin laun, sauðfjárbændur um
5-6% og mjólkurframleiðendur um
9-10% að sögn Gunnlaugs. Verði
laun og annar kostnaður lækkaður
í anda „niðurfærslunnar" finna
bændur ekki áhrifm fyrr en að ári
að hans mati.
„Annan kostnað þurfa menn að
greiða og stór hluti hans hefur
þegar gjaldfallið. Verðhækkanir
búvöru miðast í rauninni aðeins við
þær breytingar sem þegar eru
orðnar. Bændur eru búnir að skuld-
binda sig, féð á fjalli og heyið kom-
ið í hlöðu. Þótt kostnaður lækkaði
almennt kæmi það ekki til góða
fyrr en síðar. Árangurinn gæti skil-
að sér yfir lengra tímabil, á næsta
ári,“ sagði Gunnlaugur.
Sláturleyfishafar og heildsalar
búvöru hafa ekki mótað kröfur um
verðhækkun en ljóst er að staða
margra í greininni er slæm, að
sögn Margeirs Daníelssonar hag-
fræðings sem situr í fímm-manna-
nefndinni fyrir hönd kjötframleið-
enda.
„Uppgjör sláturhúsanna hefur
verið á einn veg. Framleiðslan
stendur ekki undir kostnaði. Það
er þörf á verulegri hækkun," sagði
Margeir.
Margeir kvað launaliðina aðeins
brot af sláturkostnaði og myndi
kauplækkun því skila litlum ár-
angri. „Allur tilkostnaður hefur
hækkað í takt við það uppstreymi
sem verið hefur í efnahagslífinu. Á
meðan sláturfé fækkar hefur fasta-
kostnaðurinn vaxið hröðum skref-
um og fjármagnskostnaðurinn er
farinn að vega mjög þungt hjá
sumum húsanna.
Fjárfesting hefur verið lítil í
greininni undanfarið en þau bera
flest byrðar frá fyrri árum. Beri
þau ekki meira úr býtum er hætt
við hruni í greininni á næsta ári.
Öll rökin hníga að leiðréttingu á
búvöruverði en við ráðum ekki ein-
ir ferðinni," sagði Margeir Daníels-
son.
og það sé augljóslega komið und-
ir því hvort aðilar að kjarasamn-
ingum séu tilbúnir að leggjast á
þá sveif. Hann segir að í dag verði
ríkisstjómin að taka endanlega
ákvörðun um hvort niðurfærslu-
leið verði farin, og hvort frestað
verði launa- og verðhækkunum
sem eiga að verða 1. september.
Þjóðhagsstofnun telur áhrif niður-
færslu launa á verðlag vera mjög
vandmetin og fari eftir því hvemig
hún sé framkvæmd. Komið hafi fram
að verðlagsstjóri meti verðáhrif nið-
urfærslu launa mjög takmarkað ef
lækkun launa sé ekki fylgt eftir með
lagaskyldu. Sé siíkt gert telur Þjóð-
hagsstofnun að miðað við þá lækkun
tilkostnaðar fyrirtækja, sem launa-
lækkun veldur, gæti verðlag lækkað
um 2-3% á næstu 2-3 mánuðum.
Gert er ráð fyrir að vegið meðalhlut-
fa.ll launa af rekstrartekjum fyrir-
tækja sé um 20%. Fyrstu áhrifin á
framfærsluvísitöluna, samkvæmt
lauslegu mati Hagstofu íslands á
þessum forsendum, gætu verið
1-1V2%, sem hefði í för með sér, að
vísitala framfærslukostnaðar, sem
áætlað er að hækki um l'/2% 1.
september gæti hækkað um nálægt
>/2%.
Þorsteinn Pálsson sagði við Morg-
unblaðið að það væri forsenda fyrir
þessari leið að þetta næði til því sem
næst allra þannig að það gengi eitt
yfir alla. Það væri augljóslega undir
aðilum kjarasamninga komið að
tryggja slíkt. Formenn stjórnar-
flokkanna áttu í gær fund með form-
anni og framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambandsins, og sagði Þor-
steinn þá hafa lýst því yfir að þeir
myndu styðja niðurfærslu, ef í hana
yrði ráðist, en þeir hefðu engin ráð
til þess að knýja sína félagsmenn
til að greiða lægri laun en þeir vildu.
Formennimir munu í dag sitja fund
með miðstjóm Alþýðusambands fs-
lands. Þorsteinn sagðist aðspurður
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
ályktanir þeirra launþegasamtaka
sem í gær ályktuðu gegn niður-
færsluleiðinni.
Þegar borið var undir Þorstein
hvort áætlun Þjóðhagsstofnunar,
væri hún nærri lagi, þýddi ekki ann-
aðhvort að niðurfærsluleiðin væri
ófær eða að verslun og þjónusta
yrði að taka á sig kjaraskerðingu,
sagðist hann ekki eiga annað svar
en Þjóðhagsstofnun hefði gefið, og
hann hefði ekkert í höndunum um
að hægt væri að ná meiri árangri.
„Ég myndi auðvitað fagna því og
vera tilbúinn til að styðja slíkt, ef
ég fengi vísbendingar og staðreynd-
ir þar um, umfram það sem Þjóð-
hagsstofnun hefur þegar látið í té,“
sagði Þorsteinn.
Hann benti einnig á að þótt kom-
ið væri fram að mánaðamótum
ágúst-september hefðu engar tillög-
ur sést í ríkisstjóminni frá fjármála-
ráðuneytinu um fjárlög og lánsfjár-
lög næsta árs. Þannig að í sjálfu sér
væri enn óljóst um þá megin for-
sendu þess hvort niðurfærslan tæk-
ist sem væri mjög aðhaldssöm fjár-
lög og lánsfjárlög.
Þorsteinn svaraði því játandi þeg.
ar hann var spurður hvort ekki yrði
að taka endanlega ákvörðun í dag
um hvort niðurfærsluleið yrði farin
svo tími gæfist til launaútreiknings
fyrir mánaðamótin. Miðstjóm Sjálf-
stæðisflokksins mun halda fund í
dag þar sem niðurfærsluleiðin verður
rædd.