Morgunblaðið - 26.08.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
3
Forsetinnþarf að hitta
fólkið sitt sem oftast
segir Vigdís Finnbogadóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Guðný Fríðriksdóttir fyrrum húsfreyja áYtra-Bjargpi sýnir frænku
sinni, Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands, minnisvarða um
Ásdísi á Bjargi, móður Grettis Ásmundssonar.
„SÁ SEM á Bessastöðum situr
þarf að hitta sitt fólk sem oft-
ast. Það er ógerningur að sinna
störfum forseta án þess að
þekkja þjóðina," sagði Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands
að loknum hádegisverði í
Reykjaskóla í Hrútafirði.
Reykjaskóli var annar við-
komustaður hennar f opinberrí
heimsókn í Húnavatnssýslur,
en heimsóknin hófst í gær.
Vigdís kom meðal annars við á
Efra-Núpi og skoðaði leiði
Skáld-Rósu og einnig kom hún
að Bjargi, þar sem er minnis-
varði um Ásdísi, móður Grettis.
Það var þungbúinn Hrútafjörð-
ur sem tók á móti forseta er hún
kom að sýslumörkunum við
Hrútafjarðará. En rétt í þann
mund sem Vigdís heilsaði Jóni
ísberg sýslumanni og sýslunefnd
Vestur-Húnavatnssýslu braust
sólin fram úr skýjunum og skein
þá stund sem móttakan stóð yfir.
Sagðist Vigdís hafa óttast að hún
kæmi með vont veður með sér,
rétt eins og í heimsókn sinni til
Austurlands, þar sem slíkt veður
væri nú kallað „Vigdísarveður".
Frá Hrútafjarðará var ekið rak-
leiðis að Reykjaskóla. Þar tók
Bjami Aðalsteinsson skólastjóri á
móti gestum og sýndi þeim
byggðasafnið sem þar er. Safnið
var opnað 1967 og er eitt af
stærstu byggðasöfnum landsins.
Þar gat meðal annars að líta
embættisbúning Guðbrandar ís-
berg fyrrverandi sýslumanns og
föður Jóns, núverandi sýslu-
manns. Þeir feðgar hafa gegnt
sýslumannsembætti Húnvetninga
í samtals 56 ár. Að lokinni skoð-
unarferð um byggðasafnið var
haldið til hádegisverðar í Reykja-
skóla í boði sýslumanns, sýslu-
nefndar og hreppsnefndar Staðar-
hrepps. „Við gerum okkur glaðan
dag að heyskap loknum og sýnum
forseta sýsluna okkar og okkur
sjálf," sagði Jón ísberg í ávarpi
við málsverðinn. Vigdís þakkaði
þann hlýhug sem henni var sýnd-
ur og sagði opinberar heimsóknir
í byggðir landsins vera á rrieðal
sinna allra skemmtilegustu emb-
ættisverka og það sama hefðu
forverar hennar í forsetaembætti
einnig sagt. Lagði hún ríka
áherslu á þátt bamanna, sem hún
sagði vera einn hinn mikilvægasta
í heimsóknum sínum. „Börnunum
finnst ákaflega gaman að fylgjast
með heimsókninni. Þau finna það
best, að þetta land á okkur og
við eigum það. Þessi ferð verður
vafalaust stjama á himni minn-
inga okkar allra,“ sagði Vigdís.
Bömunum var helgaður næsti
liður heimsóknarinnar, sem var
að gróðursetja tré. Með dyggri
aðstoð bama úr Staðarhreppi
gróðursetti Vigdís þijú birkitré.
Hún hvatti bömin til þess að
stofna skógræktarfélag og skrifa
sér síðan og segja frá árangri
starfsins. „Birkið er eðlilegasta
tréð að gróðursetja á íslandi.
Þetta er jafnsjálfsagt og að senda
sjómann á sjó fremur en land-
krabba," svaraði Vigdís er hún
var innt eftir því hvers vegna hún
hefði valið birki fremur en aðrar
tijátegundir. í heimsókn sinni
mun Vigdís gróðursetja tré á tíu
stöðum í sýslunum, þrjú birkitré
á hveijum stað, samkvæmt hefð
sem hún hefur komið á.
Þá var haldið aftur til skólans
þar sem kaffíveitingar voru í boði
fýrir íbúa sveitarinnar, en þeir em
106 talsins. Vel yfír helmingur
þeirra kom og spjallaði við forset-
ann yfir kaffibolla.
Frá Reylq'askóla var haldið yfir
í Miðfjörð. Forseti skoðaði leiði
Skáld-Rósu að Efra-Núpi í Núps-
dal. Þaðan var haldið að Bjargi í
Miðdal. Þar tók á móti Vigdísi
frænka hennar, Guðný Friðriks-
dóttir, fyrrverandi húsfreyja á
Ytra-Bjargi. Guðný sýndi Vigdísi
minnisvarða um Ásdísi .á Bjargi,
móður Grettis Ásmundssonar. Frá
Bjargi lá leiðin til Laugarbakka í
Miðfirði. Þar þágu sveitungar
Guðnýjar úr Fremri- og Ytri-
Torfustaðahreppi kaffiveitingar
og hittu forsetann. Var síðan
haldið til Hvammstanga þar sem
íbúar staðarins og Kirkjuhvamms-
hrepps hittu Vigdísi í félags-
heimilinu. Vigdís og fylgdarlið
hennar höfðu síðan næturstað á
Hvammstanga í nótt.
Eyrún Ósk Skúladóttir, sex ára, færir forseta íslands, frú Vigdfsi Finnbogadóttur, blómvönd við
komuna að sýslumörkum V-Húnavatnssýslu í gær.
Ríkisstjórnarfundur um niðurfærsluleið:
Formenn kynntu niður-
stöður þingflokksfunda
Á ríkissfjórnarfundi í gær
kynntu forustumenn ríkis-
stjórnarflokkanna niðurstöður
Loðnuveiðarnar:
Hólmaborg
landar um
400 tonnum
HÓLMABORG SU, skip Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, kom til
Eskifjarðar í gærkvöldi með
rúmlega 400 tonn af loðnu og fer
ekki aftur út fyrr en eftir tvo
til þrjá daga, að sögn Magnúsar
Bjarnasonar framkvæmdastjóra
frystihússins.
Magnús sagði að Hraðfrystihús
Eskifjarðar greiddi 3.300 krónur
fyrir tonnið af þeirri loðnu sem
Hólmaborg kom með í gær. Jón
Kjartansson SU, skip Hraðfrysti-
húss EskiQarðar, færi ekki á loðnu-
veiðar fyrr en þær færu að ganga
betur. Islensku loðnuskipin hefðu
ekkert veitt undanfarna daga og
Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað, hefði farið á Jan
Mayen-slóðina til loðnuleitar.
þingflokksfunda á miðvikudag.
Steingrimur Hermannsson ut-
anríkisráðherra sagði eftir
fundinn að Framsóknarflokkur
og Alþýðuflokkur hefðu sam-
þykkt að fara niðurfærsluleið
við efnahagsaðgerðir enda
verði hún færð útyfir allt kerfið
undanbragðalaust. Báðir flokk-
arnir ítrekuðu þau atriði sem
þeir telja að verði að fylgja nið-
urfærsluleiðinni, þar á meðal
að verðlækkun verði tryggð
með lögum. Sjálfstæðisflokkur-
inn telur það hins vegar for-
sendu að samráð og samstaða
takist með samtökum launþega
um framkvæmd niðurfærslu-
leiðar og flokkurinn gerír ekki
ráð fyrir að lækkun verðlags
og vaxta verði lögbundin.
Steingrímur Hermannsson
sagði að þrátt fyrir ótal erfiðleika
sæju framsóknarmenn ekki að
önnur leið en niðurfærsluleið væri
fær til að bjarga útflutningsat-
vinnuvegunum Hann sagðist að-
spurður ekki vilja útiloka aðra
möguleika en sagði að menn væru
mjög ragir við mikla gengisfell-
ingu og gengisfelling án róttækra
hliðarráðstafana væri vonlaus.
Þegar hann var spurður hvort
niðurfærsluleiðin væri fær, ef
verkalýðshreyfingin legðist gegn
henni, sagði hann að auðvitað
gæti verkalýðshreyfingin brotið
allt slíkt niður. Hins vegar væri
15-20% gengisfelling meiri kjara-
skerðing en þessi leið og það lang-
samlega versta væri að gera ekki
neitt og þá yrði meiri kjaraskerð-
ing en menn hefðu séð áður.
Hannes Hlífar Stefánsson.
Barðaströnd:
Grásleppu-
vertíðin léleg
Innri-Múla, Barðaströnd.
Grásleppuvertíðin gekk með
versta móti þetta voríð og kom
það sér mjög illa þvi keyptir
hafa verið fjórir nýir bátar hér
í sumar.
Þegar grásleppuvertíð lauk fóru
flestir bátarnir á skak og hefur það
gengið vel. Lögðu þeir upp afla sinn
í Flóka hf. á Bijánslæk og fískuðu
f Breiðafírði.
Vinna hefur verið stöðug í Flóka
í sumar, bæði við rækju og þorsk
og annað sem til hefur fallið. Skel-
veiðar hefjast á næstunni.
- SJÞ
Skákþing íslands:
Tvísýn barátta á toppnum
Hannes Hlífar náði síðasta áfanga til alþjóðiegs meistaratitils í gærkvöldi
TVÍSÝNT var um úrslit f skák
Margeirs Péturssonar og Karls
Þorsteins á Skákþingi íslands þeg-
ar síðast fréttist í gærkvöldi. Þá
var tefld tíunda og næst siðasta
umferð mótsins og var Margeir
efstur fyrir þá umferð með átta
vinninga. Jón L. Áraason vann i
gærkvöldi og hefur átta og hálfan
vinning. Það stefnir þvi i að
siðasta umferðin ráði úrslitum um
sigur á mótinu. Hannes Hlífar
sigraði í gærkvöldi og hefur þar
með náð siðasta áfanganum að
titli alþjóðlegs meistara.
Úrslit í tíundu umferð voru þau,
að Þröstur Þórhallsson vann Bene-.
dikt Jónasson, Róbert Harðarson
vann Davíð Ólafsson, Jón L. Ámason
vann Þráin Vigfússon, Ágúst Karls-
son vann Jóhannes Ágústsson og
Hannes Hlífar vann Ásgeir Þ. Áma-
son. Margeir og Karl sátu enn að
tafli þegar Morgunblaðið hafði síðast
spumir af í gærkvöldi. Staðan var
tvísýn í skák þeirra og var komin út
í hróksendatafl.
Með sigrinum í gær hefur Hannes
Hlífar sjö vinninga, sem nægir hon-
um til þriðja og síðasta áfanga að
titli alþjóðlegs meistara, að sögn
Gísla Ásgeirssonar blaðafulltrúa
mótsins. Hann verður því væntan-
lega útnefndur alþjóðlegur meistari
á næsta þingi FIDE.
Staðan í landsliðsflokki er þá
þannig fyrir síðustu umferðina, að
Jón L. er efstur með átta og hálfan
vinning, Margeir er næstur með átta
vinninga og ólokna skák, þriðji
Hannes Hlífar með sjö vinninga,
Karl hefur sex og hálfan og ólokna
skák, Þröstur fimm og hálfan, Ró-
bert og Ágúst hafa fimm vinninga,
Jóhannes þijá og hálfan, Davíð þijá,
Ásgeir og Benedikt tvo og hálfan
og loks er Þráinn með einn vinning.
Ellefta og síðasta umferð mótsins
verður tefld í Hafnarborg í Hafnar-
firði á morgun og hefst kl. 14.00.