Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
5
Heimilistæki hf
Tæknideild • Sætúni8
SÍMI: 69 15 00
!/eó i samuK^u/tc
Skoðanakönnun Stöðvar 2 og Skáís:
Hlutfallslega flestir
Reyknesingar hafa
bragðað áfengan bjór
HÆST hlutfall þeirra sem hafa
bragðað áfengan bjór er í Reykj-
aneskjördæmi samkvæmt niður-
stöðun skoðanakönnunar sem
Skáís gerði fyrir Stöð 2 dagana
19. og 20. ágúst. Þar kemur einn-
ig fram að 67,9% þeirra sem tóku
afstöðu vildu að innlendur bjór
verði ódýrari en erlendur.
í þessari könnun var m.a. spurt
hvort svarendur hefðu bragðað
áfengan bjór, hvort þeir teldu
íslenska vatnið gefa meiri mögu-
leika en ella á góðri bjórfram-
leiðslu, hvort þeir teldu líklegt að
íslendingar geti flutt út íslenskan
bjór, hvort þeir telji rétt að Áfengis-
verslunin selji allar bjórtegundir
sem íslenskir framleiðendur geta
boðið og hvort sanngjamt sé að
innlendur bjór verði ódýrari en er-
lendur.
85,2% þeirra sem tóku afstöðu
hafa bragðað áfengan bjór. Reyk-
nesingar eru fámennastir í hópi
þeirra, sem ekki hafa bergt á bjóm-
um, 19% miðað við 33% í Reykjavík
og 48% á landsbyggðinni. Af þeim
sem ekki hafa sopið bjórinn em
karlar 35%, konur 65% og 66% em
50 ára eða eldri.
Af þeim sem tóku afstöðu telja
84,1% að íslenska vatnið gefi meiri
möguleika en ella á góðri bjórfram-
leiðslu. 76,8% telja líklegt að íslend-
ingar geti flutt út áfengan bjór.
77,8% telja rétt að Áfengisverslunin
selji allar þær bjórtegundir sem
íslenskir bjórframleiðendur geta
boðið upp á. Loks telja 67,9% sann-
gjarnt að innlendur bjór verði ódýr-
ari en erlendur.
Spurt var í gegn um síma og var
spumingum beint til þeirra sem
vom 18 ára eða eldri. Haft var
samband við alls 700 einstaklinga
og af þeim svömðu 636, eða 90,9%.
Kona slas-
ast í veltu
KONA var flutt á slysadeild,
sködduð á hrygg, eftir að hún
hafði ekið bíl sínum út af, hann
oltið og hafnað í ánni Bugðu
skammt ofan Leirvogsvatns.
Að sögn lögreglu mun konan
hafa blindast af sól og því misst
bílinnút af veginum.
Verktaki Blaðprents-
húsanna gjaldþrota
PERSÍA HF., verktakafyrirtækið
er byggir hús Blaðaprents,
Tímans, Alþýðublaðs og Þjóðvilja
við Lyngháls, óskaði eftir gjald-
þrotaskiptum hjá Borgarfógeta-
embættinu í Reykjavík á mánu-
dag. Ragnar Ámason, formaður
stjórnar Blaðaprents segir alltaf
áhyggjuefni þegar fyrirtæki sem
eigi í viðskiptum og hafi gengist
Skipverji
meiddist
áfæti
SKIPVERJI klemmdist illa á
fæti um borð í togaranum
Hrímbak, er hann var staddur
um 20 sjómílur norður af
Grfmsey um klukkan 14 f gær.
Ekki þótti ástæða til að þyrla
Landhelgisgæslunnar færi í sjúkra-
flug vegna þessa heldur hélt togar-
inn áleiðis til hafnar með manninn.
undir skuldbindingar verði gjald-
þrota. Hann telji þó að tekist hafi
að tryggja hagsmuni Blaðaprents
og blaðanna eins vel og auðið sé.
Byggingamar sem hér um ræðir
eru tvær, bygging Blaðaprents er svo
að segja fullfrágengin en þar eru
einnig til húsa Tíminn, sem ásamt
Blaðaprenti er þegar fluttur inn. Hin
byggingin er skemur á veg komin
en þar hefur m.a. Þjóðviljinn fest
kaup á húsnæði.
Hafsteinn Baldvinsson lögmaður
Persíu segir ástæðu gjalþrotsins þá
að kostnaðurinn við húsið hafi farið
úr böndunum og söluverð þess sé of
lágt. Húsin voru eina verkefni fyrir-
tækisins.
Deilur komu upp á milli Blaða-
prents og Persíu á byggingartíman-
um og spunnust þær hver af annari
að sögn Hafsteins Baldvinssonar,
lögfræðings Persíu hf. „Blaðaprent
taldi að ekki hefði verið staðið við
afhendingardaga en Persía sagði
greiðslur Blaðaprents af húsinu ekki
hafa verið skilvísar. Það var svo ótal-
margt sem kom til, m.a. fékkst hús-
ið seint samþykkt. Allt varð þetta á
endanum til þess að verktakinn varð
gjaldþrota," sagði Hafsteinn.
infotec
Sendðierrar
reiéubúnir í þína þjónustu-
borga sig upp ó tveimur
mónuðum og þurfa enga
kauphœkkun!
Gjaldskrá gæsluvalla
hækkar úr 30 krónum í 50
BORGARRÁÐ ákvað á fundi
sínum í vikunni að hækka gjald-
skrá gæsluvalla í Reykjavík úr
þijátíu krónum í fimmtíu fyrir
hvert skipti og 25 miða afsláttar-
kort hækka úr 600 krónum í
1000.
„Mér finnst þetta ekki háar upp-
hæðir fyrir góða gæslu barna með-
an við borgum til dæmis fímmtíu
krónur fyrir bílastæði," segir Elsa
Theodórsdóttir forstöðukona
gæsluvallanna. „Þá held ég að ekki
sé ýkja mikið að borga þúsund krón-
ur fyrir bamagæslu hálfan daginn
í heilan mánuð, á afsláttarkortunum
era 25 miðar en 22 vinnudagar í
venjulegum mánuði.
Gjaldið hefur alltaf verið afskap-
lega lágt og þótt þetta sé dálítið
stökk mætti hafa í huga að nú er
verið að byggja þessa velli upp. Ný
leiktæki hafa verið að bætast á
gæsluvellina og verða komin á þá
alla í haust. Þá er víða brýn þörf,
á að gæslukonur fái betri aðstöðu."
Gæsluvellimir era opnir á hveij-
um degi frá klukkan 9 til 12 og
13.30 til 17, en á tímabilinu frá 1.
nóvember til 1. mars frá 10 til 12
og 13.30 til 16. Að sögn Elsu Theo-
dórsdóttur era nú 27 gæsluvellir í
Reykjavík, þar af vora tveir opnað-
ir í fyrra, við Frostaskjól og Fanna-
fold. Verið er að reisa gæsluvöll í
Malarási 17. A flestum völlunum
starfa tvær gæslukonur en þijár á
þeim fimm stærstu. Yfir sumartím-
ann era stúlkur úr Vinnuskóla
Reykjavíkur konunum til aðstoðar.
Aðsókn á gæsluvellina hefur að
sögn Elsu verið mjög góð í sumar
og komu liðlega 22.500 böm á
„róló" í júlí. Það er þó um þúsund
bömum færra en í sama mánuði í
fyrra. Flest börn, yfír 1900 talsins,
komu á gæsluvöllinn við Stakkahlíð
í júlímánuði síðastliðnum.
Ákveðið var í vikunni að hækka
gjaldskrá gæsluvalla úr 30 krón-
um í 50 fyrir hvert skipti. Elsa
Theodórsdóttir forstöðukona tel-
ur gjaldið ekki hátt fyrir góða
gæslu barnanna.