Morgunblaðið - 26.08.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988
45
SUND / OLYMPIULEIKAR
Ragnheiður Runólfsdóttir, sundkona:
„Æfingamar veríð
langar og strangar
ii
„ÆFINGARNAR hafa verið .
langar og strangar, en nú fer
ég að slaka aðeins á, enda
ekki nema 15 dagar þar til við
förum til Seoul,“ sagði Ragn-
heiður Runólfsdóttir sund-
konan kunna ífyrradag.
Hún hefur orðið að leggja hart
að sér að undanförnu til að
ná settu marki og eftir linnulitlar
æfingar allan daginn vann hún frá
kvöldmat til mið-
Bjöm nættis á þrekmið-
Blöndal stöð. Hún hefur ver-
sknfar ið á svokölluðum
B-styrk ÍSÍ og feng-
ið 18 þúsund krónur á mánuði, en
í fyrradag bárust henni þær fréttir
að styrkurinn hefði verið hækkaður
um helming.
Ég fann að þetta var of mikið
álag og því hætti ég að vinna á
kvöldin. Við förum til Reykjavíkur
flóra morgna í viku og síðan eru
æfingar í Njarðvík eða í lauginni á
Keflavíkurflugvelli. Það kemur sér
náttúrlega vel að fá þessa peninga,
en þeir hefðu gjarnan mátt koma
fyrr,“ sagði Ragnheiður í samtali
við Morgunblaðið.
Ragnheiður náði ólympíulág-
mörkum í sínum uppáhaldssund-
greinum 100 og 200 metra bringu-
sundi á stórmóti í Noregi í mars
og setti í leiðinni glæsileg íslands-
met. Hún bætti síðan um betur á
móti á Spáni í júlí og setti þá aftur
íslandsmet í báðum greinunum og
í 200 m ijórsundi.
Ragnheiður sagði að þeir sem
færu með styrkveitingar hjá ÍSÍ
hefðu aldrei haft samband eða talað
við sig. Upp hefði komið sá mis-
skilningur hjá ÍSÍ mönnum að þeir
hefðu talið laugina í Noregi þar sem
hún náði lágmörkunum vera 25
metra en ekki 50 metra eins og
kraflst er, en þetta hefði verið leið-
rétt.
Ragnheiður sagði að hún myndi
æfa á fullum krafti út næstu viku
og síðan yrði létt á æfingarálaginu.
Hún ætlar að keppa í 3 greinum í
Seoul og verður fyrsta greinin 200
metra bringusund sem er hennar
uppáhaldsgrein. íslandsmet Ragn-
heiðar í greininni er 2.37.11 mín.
og hefur hún bætt metið um 4 sek-
úndur á árinu. Hún sagði að til
þess að komast í úrslit yrði hún að
bæta sig um 3 sekúndur enn og
það væri markmiðið. „Ég er á góðu
róli um þessar mundir og er miklu
öruggari með mig en áður. Því er
FOLK
■ OPIÐ öldungamót í golfi
verður laugardaginn 27. ágúst á
HlíðaveUi í MosfeUsbæ. Keppt
verður í flokki 50-54 ára og flokki
55 ára og eldri. Keppt verður með
og án forgjafar og veitir verslunin
Pfaff glæsileg verðlaun. Hér er um
að ræða mót þar sem árangur verð-
ur notaður til viðmiðunar við val á
landsliði öldunga.
■ NINA RICCI-MÓTIÐ,opið
kvennamót í golfí, fer fram á vegum
GS á HólmsveUi í Leiru á laugar-
dag og hefst kl. 10:00. Leiknai
verða 18 holur með og án forgjaf
ar. Jafnframt fellur niður opið golf
mót karlá sem áður hafði verii
auglýst á vellinum á sama tíma.
Morgunblaðið/KGA
Ragnhelður Runólfsdóttlr mætt á æfíngu í Laugardalslauginni í Reykjavík
í gærmorgun.
fyrir ísland í Seoul," sagði Ragn-
ég bjartsýn og jákvæð á framhaldið
og það verður stór stund að keppa
3.0G4. DEILD
Einherji
í 2. deild
Einheiji frá Vopnafírði hefur
tryggt sér sigur í B-riðli 3.
deildar og þar með 2. deildar-
sæti, þótt liðið eigi tvo leiki eft-
ir. í fyrrakvöld bar Einherji sig-
urorð af Þrótti N, 2:0 og skor-
uðu Viðar Siguijónsson og Bald-
ur Kjartansson mörkin.
Einherji féll í 3. deild fyrir
ári og hafði því skamma viðdvöl
í deildinni. Liðið, sem er undir
stjóm Njáls Eiðssonar, fór frek-
ar rólega af stað í sumar en
hefur unnið hvem leikinn á fæt-
ur öðrum upp á síðkastið.
Hveragerói vann
Hveragerði sigraði Skotfélag
Reykjavíkur 2:1 í leik liðanna í
úrslitakeppni 4. deildar Hvera-
gerði í fyrrakvöld. Ólafur Jós-
epsson skoraði bæði mörk Hver-
gerðinga en Jens Ormslev skor-
aði mark Skotfélagsins.
KNATTSPYRNA
Akureyrar-
mótíkvöld
Ikvöld mætast KA og Þór á
Akureyrarvelli kl. 19.00. Leikur
liðanna er í Akureyrarmótinu, og
verður aðeins um þessa einu viður-
eign að ræða.
heiður ennfremur.
Morgunblaðiö/Björn Blöndal
Ragnhelóur Runólfsdóttlr og EAvarð Þór EAvarðsson notuðu eftir-
miðdaginn í fyrradag til að hlaupa frá Njarðvík að afleggjaranum til Grindavík-
ur því sundlaugin á Keflavíkurflugvelli var lokuð.
ÍSLANDSMÓTIÐ 2. DEILD
FH - ÞRÓTTUR
á Kaplakrikavelli í kvöld kl. 19.00
FH-ingar fjölmennið
.GSft
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Víðir
kl. 19.00
Zenith tölvur
BYKO
<SAMEÍND> XNr/
'srn-2