Morgunblaðið - 26.08.1988, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 26.08.1988, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 \ HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ stöðugleika vantar Jarðsamband liðsins, aðstandenda þess og annarra nauðsynlegt því lokaprófið verður ekki þreytt fyrr en í Seoul Steinþór Guðbjartsson skrifar ÍSLENSKA landstiðið í hand- knattleik getur lagt þau bestu að velli, þegar sá gállinn er á þvf, en það getur einnig lagst lágt og tapað fyrir minni spá- mönnum. Liðið er skipað leik- mönnum, sem hafa vakið mikla athygli í handbolta- heiminum og náð langt með félagsliðum; leikmönnum, sem þekkja vel hvern annan og eru saman til alls líklegir inni á vellinum. Liðíð erfrá- bært og getur sigrað hvaða mótherja sem er, en óstöðug- leikinn gerir það að verkum að óraunhæft er að ætla því sæti í allra fremstu röð á stór- mótum. Arangur landsliðsins á Plug- leiðamótinu sýnir að hinn mikii og erfíði undirbúningur skil- ar sér hægt og sígandi. Sigurinn AF gegn Sovétmönn- INNLENDUM um sýndi að þegar VETTVANGt mikið liggur við, þá leggjast allir á eitt og árangurinn er samkvæmt því. Tapið gegn Sviss- lendingum stað- festir hins vegar óstöðugleikann. Álag Eftir heimsmeistarakeppnina f Sviss árið 1986 var markið sett hátt og ákveðið að leggja allt í sölumar til að halda liðinu á með- al a-þjóða á Ólympíuleikunum í Seoul. Tæplega hundrað leikir voru skipulagðir með kerfís- bundnum æfíngatimabilum inni á milli. Bogdan landsliðsþjálfari hefur á þessum tíma skipulagt starfíð með Ólympíuleikana fyrst og sfðast í huga. En hann hefur einnig sett ákveðin markmið fyrir hin ýmsu mót og náð þeim. Hann ætlaði að ná verðlaunasæti á Júgóslavíumótinu í fýrra og það tókst. Hann stefndi að fjórða sæti í heimsbikarkeppninni í Svíþjóð í janúar sem leið og sú varð á raun- in. Praman af sumri var áherslan lögð á þrekæfingar og gert ráð fyrir að liðið sýndi um 85% af eðlilegri getu á Flugleiðamótinu. Hópurinn hefur verið saman síðan í byijun júnf og segir það allt um hið mikla álag. „Því fylg- ir áhætta eins og ofæfíng og leiði en við höfum ekki um annað að velja. Þetta er sem póker, þú tek- ur áhættu og vinnur eða fellur á eigin bragði. íslenskir þjálfarar hlógu að undirbúningnum fyrir HM í Sviss, töldu hann of langan og ónauðsynlegan. Annað kom á daginn. Nú er undirbúningurinn enn lengri, en við verðum að spyija að leikslokum. Við gerum allt sem við getum og stöndum og föllum með því.“ Þetta sagði Bogdan f viðtali við Morgunblaðið 19. apríl síðast liðinn. Peningar Þessi glfurlegi undirbúningur hefur auðvitað verið fjárfrekur. Stjóm HSÍ hefur þurft að hafa allar klær úti til að fjármagna dæmið og því miður neyðst til að nýta krafta leikmanna í því efni. „Ljóst er að léikmennimir verða undir gífurlega miklu álagi," sagði Bogdan í fyrmefndu viðtali. „Því er nauðsynlegt að liðið fái að undirbúa sig í friði. í fyrsta lagi verða allar æfingar lokaðar. í öðru lagi verða strákamir að fá nauðsynlega hvíld án afskipta utanaðkomandi aðila. Mörg fyrir- tæki hafa styrkt og vilja styrkja landsliðið, en menn verða að skilja að leikmennimir eru ekki fyrir- sætur. Þeir eiga ekki að koma nálægt auglýsingum, heldur fá frið til að einbeita sér að verkefn- inu.“ Gallar Hinn viðamikli rekstur HSÍ gengur ekki án landsliðsins og ijáröflunin stendur liðinu að mörgu leyti fyrir þrifum. í Seoul verður fyrst ljóst hvort undirbún- ingurinn hefur verið réttur. Álag- ið hefur verið mikið og óvíst er hvort leikmennimir þoli þessa miklu spennu, þegar á hólminn er komið. í öðru lagi verður erfítt að yfírstíga óstöðugieikann. Ef árangur á að nást verða leikmenn- imir að fara í hvem leik með sama hugarfari og gegn Sovétmönnum í fyrrakvöid. Bandaríkin og Alsír eru sýnd veiði en ekki gefín. I þriðja lagi er breiddin langt því frá að vera nægjanleg. Bogdan hefur mikið til „keyrt" á sömu mönnunum og spyija má hvort hann hefði ekki átt að nota tæki- færið í leikjum sumarsins og láta „bekkinn" spreyta sig meira. Bekkjarformaðurinn sló skemmti- lega í gegn á Flugleiðamótinu, en spumingin er hvort „bekkurinn" veldur hlutverkinu í Seoul. Jarðtanglng Tæpur mánuður er í fyrsta leik á Ólympíuleikunum í Seoul. Liðið á eftir að leika tvo leiki við Dani í Laugardalshöll fyrir förina og síðan verður leikur við Austur- Þjóðveija fyrir luktum dyrum skömmu fyrir setningu leikanna. Úrslitastundin er því skammt undan, tlminn verður vel nýttur til að lagfæra og bæta það sem þarf, en fólk verður að vera jarð- bundið. ísland á að sigra Banda- ríkin og Alsír, en leikurinn við Svía sker úr um hvort liðið verður í hópi sex efstu. Stuðningur Áhorfendur snéru ekki baki við lands- liðinu í fyrrakvöld, eftir tvo tapleiki í röð; troðfylltu Höllina og léku á als oddi. Sálfræðilegur sigur var í höfn öðru sinni á skömmu tíma. Svíar voru lagðir að velli á Spáni og nú Sovét- menn. En fólk verður að vera jarð- bundið. Lokaprófið verður þreytt í Seoul. Frábært lið en

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.