Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 1
96 SIÐUR B
213. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tyrkland:
Grófu sig
út úr fang-
elsinu
Ankara. Reuter.
Vinstrisinnaðir fangar, átján
að tölu, flúðu í gær úr ramm-
byggilegu fangelsi skammt frá
höfuðborg Tyrklands, Ankara.
Að sögn yfirvalda grófu fang-
arnir 118 metra löng göng út úr
fangelsinu með klaufjárni.
Rikissaksóknari landsins taldi
víst að fangamir hefðu notið að-
stoðar fangavarða. Talið er að
gröfturinn hafi staðið yfir í fjóra
eða fimm mánuði og hafi fangamir
þurft að fjarlægja flögur bflhlöss
af mold.
Þrír fahganna höfðu verið dæmd-
ir til dauða og fjórir í ævilangt fang-
elsi. Flestir fangamir vom félagar
í kúrdískri deild hins bannaða
kommúnistaflokks Tyrklands.
Gilbert
fór aftur
inn yfir
Mexíkó
Dl a£st £* L cz
icelaÍTd”"
Reuter
Gengið inn á Ölympíuleikvanginn
Ólympíuleikamir í Seoul í Suður-Kóreu voru settir við hátiðlega athöfn í fyrrinótt. Á myndinni sjást íslenskir þátttakendur og farar-
stjórar ganga inn á Ólympíuleikvanginn. gjá & ^ 6g Qg 6?
Mexíkóborg. Reuter.
Fellibylurinn Gilbert tók í
fyrrinótt stefnu á Mexíkó og
gerði þar usla í gærmorgun, öðru
sinni í þessari viku.
Óttast var að mikið tjón yrði í
Monterrey, þriðju stærstu borg
Mexíkó, af völdum fellibylsins, eink-
um vegna flóða, sem honum fylgja.
Þjóðvegir í nágrenni borgarinnar
höfðu lokast af völdum skriðufalla
um hádegið í gær. Brottflutningur
fólks úr fátækrahverfum og úr
borgum og fískimannabæjum við
austurströndina hófst í fyrrakvöld,
þegar fellibylurinn tók að nýju
stefnu á Mexíkó í stað þess að fara
inn yfir Texas í Bandaríkjunum.
Sjötíu rrianns hafa beðið bana af
völdum óveðursins, 21 á Yucatan-
skaga í Mexíkó á miðvikudag og
a.m.k. 49 er það fór með eyðilegg-
ingarkrafti sínum yfír eyríki í
Karíbahafí.
Svíar ganga að kjörborðinu í dag:
Jafnaðarmenn í vam-
arstöðu síðustu dagana
Fjölskyldumál og einkavæðing helstu mál
í hringborðsumræðu stjómmálaleiðtoganna
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins, og Reuter.
TALSVERT á sjöundu milljón
manna hafa kosningarétt í þing-
kosningunum sem fram fara i
Sviþjóð í dag. Þess er vænst að
úrslit verði liós um sjöleytið i
kvöld að islenskum tíma. Tveim
dögum fyrir kosningarnar var
talið að 700 þúsund kjósendur
hefðu ekki enn ákveðið hvernig
þeir myndu veija atkvæði sínu.
Búrma:
Skotið á stjórnarandstæðinga
Rangoon. Reuter.
HERMENN hófu skothríð á
stjórnarandstæðinga í Rangoon,
höfuðborg Búrma i gær. At-
burðurinn átti sér stað um það
leyti sem Morgunblaðið fór i
prentun og því óljóst hver varð
frekari framvinda mála.
Sjónarvottar sögðu að hermenn,
sem stóðu vörð á byggingu við-
skiptaráðuneytisins, hefðu skyndi-
lega hafíð skothríð á um eitt hundr-
að þúsund stjómarandstæðinga,
sem gengu eftir götunum hrópandi
slagorð gegn stjóm Maungs
Maungs, forsætisráðherra.
Stjómarandstæðingar gerðu í
gær lítið úr þeirri ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að segja hermenn og
ríkisstarfsmenn úr sósíalistaflokkn-
um, sem hefur verið einráður í
landinu í aldarfjórðung.
Af hálfu flokksins var sagt að
þessi ráðstöfun hefði verið gerð til
að tryggja frjálsar og óháðar þing-
kosningar sem em væntanlegar í
landinu. Stjómarandstæðingar
sögðu að ákvörðunin breytti engu
og væri „misheppnað kurteisis-
bragð“.
Síðustu skoðanakannanir bentu
til þess að Umhverfisflokkurinn,
flokkur græningja, yrði fyrsti
nýi stjómmálaflokkurinn á
sænska þinginu i 70 ár. Flokkn-
um var spáð 6-7 af hundraði at-
kvæða í síðustu könnunum sem
bendir þó tál þess að fylgi græn-
ingja hafi dvinað nokkuð síðustu
daga.
Vemlegar líkur em á því að
Umhverfísflokkurinn komist í odda-
aðstöðu og gæti hann þá annað-
hvort stutt vinstri stjóm jafnaðar-
manna, er njóta stuðnings komm-
únista, eða samsteypustjóm borg-
araflokkanna þriggja, þ.e. Hægri
flokksins, Miðflokksins og Þjóðar-
flokksins.
Hringborðsumræður leiðtoga
fimm helstu stjómmálaflokkanna
fóm fram í sjónvarpi á föstudags-
kvöld, án fulltrúa frá Umhverfís-
flokknum, sem ekki á mann á þingi
og átti því ekki rétt á þátttöku sam-
kvæmt settum reglum. Fulltrúar
flokksins mótmæltu þessu og fyrir
utan sjónvarpsbygginguna héldu
græningjar á loft spjöldum með
áletmninni: „Það er ekki hægt að
þagga niður í okkur!“ Oryggisverðir
ráku fólkið fljótlega á brott
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra var harðlega gagnrýndur af
andstæðingum sínum fyrir stefnu
stjómarinnar í flölskyldumálum og
átti í vök að veijast er hann reyndi
að útskýra hvers vegna ekki kæmi
til greina að leyfa einstaklingum
að reka dagvistir ásamt opinbemm
aðilum. Borgaraflokkamir lofuðu
að lækka skatta og auka valfrelsi
í útvarps- og sjónvarpsmálum. Þeir
hétu því að komið yrði á fót þriðju
rás ríkissjónvarpsins sem fjármögn-
uð yrði með auglýsingatekjum.
Urslit kosninganna gætu orðið
til þess að Carlsson forsætisráð-
herra legði fram lausnarbeiðni fyrir
sig og stjóm sína en sennilegast
er þó að stjómin sitji áfram og
treysti þvi að geta fengið stuðning
þingmeirihluta í hveiju einstöku
máli með því að leita til flokkanna
á víxl en slík staða er mjög óvenju-
leg í síðari tfma sögu Svíþjóðar.