Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 ■ Sihanouk (t.h.) skálar við Hun Sen: er nú kallaður ættjarðarvinur. Rauðu Khmerarnir (Khmer Rouge) myrtu eina til þijár af sjö milljónum íbúa Kambódíu (Kampútsjeu) þegar þeir voru við völd 1975-1979 í nafni marxískra hugsjóna og undir yfirskini „þjóðfélagslegra tilrauna". Nú eru þeir ráðnir í að ná aftur völdunum og bíða þess eins að Víetnamar ljúki við að flytja 100-120.000 hermenn sína úr landi fyrir marz 1990, eins og þeir hafa lofað. Fyrirætlanir Rauðu Khmeranna hafa vakið skelfingu í Kambódíu og þeir sem svartsýnastir eru ótt- ast að Víetnamar muni aftur senda her inn í Kambódíu til að koma í veg fyrir valdatöku þeirra og verði í landinu til eilífðam- ■ Stríðsmenn Rauðra Khmera: birgja sig upp af vopnum og bíða átekta. ■ Skæruliðar andkommúnista: beijast nú einir gegn Víetnömum. ons. Kambódískir útlagar hafa barizt fyrir því að Pol Pot og aðrir leið- togar Rauðu Khmeranna verði ákærðir fyrir þjóðarmorð og leiddir fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag. Víetnamar, sem hafa verið í Kambódíu síðan þeir gerðu innrás 1978, leiddu nýjar hörmungar yfír þjóðina eftir ógnarstjóm Pols Pots. Eftir fall hans flúði hálf milljón manna til thailenzku landamær- anna. Margir settust að á Vestur- löndum, en 218.000 Kambódíu- menn dveljast enn í flóttamanna- búðum andstæðinga kommúnista og 72.000 í búðum Rauðu Khme- ranna á landamærum Thailands og Kambódíu og fá matvæli frá SÞ. Rauðu Khmeramir hafa fengið að stjóma búðum sínum eftir eigin höfði. Þótt Víetnamar séu illa þokkaðir voru margir þeim þakklátir í fyrstu fyrir að binda enda á fjöldamorðin. En skæruhemaði hefur verið haldið uppi gegn þeim og tvær hreyfíngar andstæðinga kommúnista hafa ver- ið í ótryggu bandalagi með Rauðu Khmemnum síðan 1982 — önnur undir forystu Norodoms Sihanouks fursta („Ijóðarherinn"), og hin und- ir stjóm Sons Sanns, fv. forsætis- ráðherra hans („Þjóðfrelsisfylking kambódískrar alþýðu"). Valdatafl Rússar hafa stutt Víetnama og veitt þeim þriggja milljóna dala aðstoð á dag. Kínverjar hafa stutt Rauðu Khmerana, en Bandaríkja- menn og samheijar þeirra Sihanouk og Son Sann. Sihanouk hefur beitt sér fyrir því að samsteypustjóm hans og leppstjóm Víetnama í Phnom Penh myndi bráðabirgða- stjóm eftir brottflutning Víetnama og að síðan verði efnt til kosninga undir eftirliti SÞ og ný stjómarskrá samin. Thailendingar hafa ekki amazt við árásum skæruliða Rauðra Khmera og hinna andspymuhreyf- inganna inn í Kambódíu frá bæki- stöðvum í Thailandi, því að þær hafa beinzt gegn Víetnömum, sem em erkióvinir þeirra. Rauðu Khmer- amir hafa fengið mikið af vopnum frá Kínveijum, sem eiga enn í úti- stöðum við Víetnama. Bandaríkja- menn, sem neita að viðurkenna leppstjóm Hengs Samrins, hafa ekki getað fengið Kínveija til að hætta stuðningi sínum við Pol Pot. Nú segjast Kínveijar hins vegar ekki vilja að Rauðu Khmeramir nái aftur völdunum og hvetja til mynd- unar samsteypustjómar og alþjóð- legs eftirlits með brottflutningi Víetnama — á sama hátt og Banda- ríkjamenn. Bandaríkjamenn vilja ekki að Rauðu Khmeramir snúi aftur. Því hafa þeir fagnað fréttum um að Kínveijar standi ekki lengur heils- hugar á bak við Pol Pot og geti hugsað sér að fóma honum og nán- ustu samstarfsmönnum hans, ef það mætti verða til þess að lausn fyndist á Kambódíu-deilunni. Talið er hugsanlegt að Kínveijar geti neytt Pol Pot til að fara í útlegð til Peking, þótt ýmsir efíst um að þeir hafi eins mikil áhrif á Rauðu Khmerana og af er látið. Brottflutningur Víetnama hófst í júnflok og kom öllum á óvart. Gert er ráð fyrir að 50.000 her- menn verði famir frá Kambódíu um næstu áramót, jafnmargir og Víet- namar hafa misst þar síðan 1978. Þeir lyifa reynt að sannfæra alla um að leppstjóm þeirra muni halda velli þegar brottflutningnum lýkur 1990. Þeir virðast vissir um að her leppstjómar þeirra muni hafa í fullu tré við Rauðu Khmerana og segja að hann sé miklu betri en almennt sé talið, en margir hermenn hafa hlaupizt undan merkjum og stjóm- arherinn á eftir að sýna hvers hann er megnugur. Víetnamar áskilja sér líka rétt til að snúa aftur, „ef það reynist nauðsynlegt vegna öryggis Kambódíu". Sameiningartákn Sihanouk, sem er 65 ára og var þjóðhöfðingi 1941-1970, stjómar fámennustu andspymuhreyfíng- unni, en þó er her hans skipaður 17.000 mönnum. Flestir landsmenn virðast vilja að hann snúi heim úr útlegð og taki aftur við stjóminni og enginn annar er talinn geta myndað ríkisstjóm, sem allir geti sætt sig við. Margir minnast valda- ára hans með söknuði, því að ekki hefur gengið á öðra en hungurs- neyð, bardögum og umróti síðan honum var steypt af stóli. Hingað tii hefur Sihanouk verið stimplaður leppur Rauðu Khmer- anna í Phnom Penh, en nú bregður svo við að blöðin þar kalla hann „ættjarðarvin". Svo virðist að stjóm Hengs Samrins sé fús að taka þátt í myndun samsteypustjómar með furstanum, án þátttöku Rauðu Khmeranna. Stjómin í Phnom Penh hefur verið einangrað og farið á mis við mikilvæga aðstoð, sem Víet- namar hafa ekki getað veitt, og vill ijúfa einangran sína. En óvíst er að Sihanouk fái mikil völd, ef hann snýr aftur. Sjálfur hefur furstinn verið nokk- uð tvístígandi. Yfírlýsingar hans hafa verið mótsagnakenndar. Hann hefur oft lýst því yfir að Víetnamar muni aldrei hvika frá því sögulega markmiði sínu að ráða lögum og lofum í Kambódíu. Hins vegar ræddi hann tvívegis við Hun Sen fv. forsætisráðherra í Frakklandi í vetur og í sumar áttu fulltrúar and- spymuhreyfínganna og stjómarínn- ar í Phnom Penh óformlegan fund í Indónesíu. Svo hataður er Pol Pot að kambódískir og víetnamskir emb- ættismenn era vongóðir um að Ráuðu Khmeramir geti ekki komizt aftur til valda. Stjómin í Phnom Penh heldur hatrinu við með mark- vissum áróðri, m.a. með árlegum „degi haturs á Pol Pot“. Fáir Kambódíumenn mundu líklega sætta sig við að Rauðu Khmerarnir fengju aðild að ríkisstjóm. Þó er viðurkennt að hreyfingin hafi enn talsvert fylgi í vissum sveitahérað- um og kynni að sigra í kosningum á svæðum, sem era á valdi hennar. Hörð andstaða þeirra gegn Víetnömum aflar þeim enn nokkurs fylgis. Útrýming haf in? Þá er ljóst er að Rauðu Khmer- amir munu hagnast mest á brott- flutningi Víetnama. Hreyfíngþeirra hefur um 40.000 ofstækisfullum skæraliðum á að skipa og er miklu öflugri en hinar andspymuhreyf- ingamar. Sihanouk hefur oft varað við þeirrri hættu að Rauðu Khmeramir hrifsi völdin þegar Víetnamar hverfa, þótt hann sé bandamaður þeirra. Hann missti fjölmarga ætt- ingja í dauðabúðum Rauðu Khmer- anna og segir að „aðeins fífl“ haldi að þeir hafí eitthvað breytzt á 10 áram — tilgangur þeirra sé að ná aftur völdunum og koma aftur á „polpotisma" með öllum þeim hörm- ungum, sem það mundi hafa í för með sér. Hann segir að þeir hafí komið fyrir útsenduram í öllum bæjum og þorpum og muni eiga auðvelt með að taka við stjóminni eftir brottför Víetnama. „Rauðu Khmeramir era byijaðir að útrýma stuðningsmönnum rnínurn," sagði hann nýlega. „Ég hef misst all-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.