Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 24

Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 Enn um ráðningu fram kvæmdastj óra UA eftir Gísla Konráðsson Allmikið fjaðrafok hefur orðið út af skoðunum mínum um ráðn- ingu eftirmanns míns, sem ég hef látið í ljós í blaða- og útvarpsvið- tölum að undanfömu, einkum er vefengt það sem ég hef haldið fram að framkvæmdastjórar hafi verið ráðnir hér á þann hátt að skapað væri pólitískt jafnvægi í þeim til- gangi, að losa félagið við stjóm- máladeilur um rekstur þess og framgang. Ég kann því illa að vera talinn ósannindamaður og vil því greina frá nokkmm sögulegum staðreynd- um sem renna stoðum undir mál- flutning minn. Þegar verst vegnaði hjá félaginu logaði hér allt í pólitískum deilum um málefni þess. Þá hafði frá upp- hafi verið hér einn framkvæmda- stjóri, sem var sjálfstæðismaður og af þeim sökum varð sá flokkur fyr- ir mestu aðkasti. Um þetta leyti vom eftirtaldir menn í stjóm ÚA: Frá Sjálfstæðis- flokki Helgi Pálsson og Steinn Steinsen. Frá Framsóknarflokki Jakob Frímannsson. Frá Alþýðu- flokki Albert Sölvason og frá Al- þýðubandalagi Tryggvi Helgason. Eins og þeir vita sem til þekkja vom þama saman komnir fimm alkunnir heiðursmenn. Á stjómarfundi í ÚA 20. janúar 1958 er skráð eftirfarandi bókun: „Fram kom tillaga frá Albert Sölvasyni og Tryggva Helgasyni um að segja upp framkvæmdastjóra félagsins með 6 mánaða fyrirvara og sé framkvæmdastjóra jafnframt uppálagt að segja upp öllu starfs- fólki félagsins á skrifstofum ásamt frystihússtjóra með löglegum fyrir- vara (3 mánuðum) frá næstu mán- aðamótum.“ Þeir tillögumenn og Jakob Frímannsson greiddu tillögunni meðatkvæði, en Helgi Pálsson óskar bókað: „Þar sem upplýst er að sam- komulag er orðið milli framsóknar- manna, alþýðuflokksmanna og kommúnista um stjóm bæjarmál- anna, sem einnig á að ná til stjóm- ar og reksturs ÚA, tek ég enga afstöðú til uppsagnarinnar þar sem fulltrúar þessara flokka hafa meiri- hluta í stjóm félagsins og geta ráð- ið málum þess.“ Steinn Steinsen óskar bókað: „Þar sem ekkert liggur fyrir um afstöðu bæjarstjómar til þessarar tillögu mun ég ekki greiða atkvæði um hana.““ Undir fundargerð þessa rita síðan 5 fyrrgreindir stjómarmenn nöfn sín. Af því sem fram kemur í framan- skráðri bókun má glögglega sjá flokkspólitískan ágreining og að minnihlutinn var hvergi nærri ánægður og þótti á sig hallað. Skömmu síðar gerast þau tíðindi að Akureyrarbær tekur ábyrgð á framhaldsrekstri félagsins og felur mér (4. febrúar 1958) að vera full- trúi sinn hjá félaginu í sambandi FttUkomm adsiuAa ttg aáluAandi hverfi fyriv hrers kcmor rehtur, rúés m fundi. Giesíleg utamöliggjanÆ glcfiyfia / jpníí upp i Surínuifoúft. VEISLU- OG RAÐSTEFNUSALUR i Þórsh&H, Brautarholti 20. Símar: 29099 23335. Tit útkigu ú hvada tima sótarhrings sem er! ÁS Atlar veitmf'ar allt eftir óskum hvers OR eins. «« Hqfió samband i rið reitinf’astjóm ■ Kristjón Damchson sem nefur , oltar nónari J mptþsmgmr /j læsilegasti mn veislu og ráðstejnusalur borgarinnar Gísli Konráðsson „Ef um það væri að ræða að hjá þessu fé- lagi væri aðeins einn framkvæmdastjóri og til stæði að ráða hann þá myndi ég hiklaust leggja áherslu á að hann hefði ekki komið nærri flokkapólitík.“ við téða ábyrgð. Þann 21. maí er mér veitt prókúruumboð fyrir félag- ið en endanleg ráðning mín sem framkvæmdastjóra fór ekki fram fyrr en í ágústmánuði sama ár. Um þetta leyti hefur sú breyting orðið á stjóminni að Kristján Kristjáns- son er þar kominn í stað Steins Steinsen. Þá er það næst, að á stjómar- fundi 24. október tilkynnir stjómar- formaður, Helgi Pálsson, að félag- inu standi til boða meðfram- kvæmdastjóri, sem sé Andrés Pét- ursson frá Reykjavík, og þann 27. október er samþykkt að ráða Andr- és. Um þetta hef ég sagt að sjálf- stæðismenn hafi staðið fyrir því að ráða Andrés sem pólitískt mót- vægi. Ég hef næga vitneskju um þetta til þess að geta fullyrt það, þótt ég telji af ýmsum ástæðum ekki rétt að fara lengra út í það hér. Ég var mjög sáttur við þessa ráðningu, en með henni skapaðist sú pólitíska jafnvægiskenning, sem ég hef boðað. Nú líða 6 ár og samvinna okkar Andrésar er með ágætum. Þá ger- ist það, að Andrési býðst gott starf syðra og segir því upp starfi sínu hjá ÚA. Þá liggur fyrir að ráða menn í hans stað og nú fullyrði ég enn að í hugum manna hér þótti sjálfsagt að sá maður væri frá Sjálf- stæðisflokki. Ráðinn var Vilhelm Þorsteinsson, sem uppfyllti vel allar kröfur, harðduglegur skipstjóri bú- inn að starfa hjá félaginu um mörg ár og þekktur sem góður stjórnari. Átti ég þátt í því að hann var val- inn því að ég taldi hann mjög líkleg- an til góðrar samvinnu, sem líka kom rækilega á daginn. Og nú höf- um við Vilhelm unnið hér hlið við hlið í 24 ár og ég læt öðrum eftir að dæma störf okkar. Þá fer nú að koma að sögulokum. Það hefur sem sé engin fram- kvæmdastjóraráðning farið hér fram í 24 ár, en ég tel mig nú hafa sýnt hvemig mín skoðun er til kom- in, og ég fæ ekki séð að neinar breytingar hafi orðið á akureyrskri pólitík á þessum tíma, vinstri er enn vinstri og hægri er enn hægri, og að því ber að hyggja þegar nú skal ráða mann í minn stað. Á mig hefur verið borið að ég skeytti ekki um annað en pólitískan lit þegar um væri að ræða ráðningu framkvæmdastjóra. Svona þvætt- ingi ætti ekki að þurfa að svara, enda tók ég það mjög skýrt fram í útvarpsviðtali, hvemig ég lít á það. Auk þess treysti ég stjóm fé- lagsins svo vel að hún myndi aldrei ráða mann sem ekki væri vel hæfur til starfsins. Ef um það væri að ræða að hjá þessu félagi væri aðeins einn fram- kvæmdastjóri og til stæði að ráða hann þá myndi ég hiklaust leggja áherslu á að hann hefði ekki komið nærri flokkapólitík. Mergurinn málsins er sá, að ÚA er eign allra Akureyringa og á að vera það áfram, blómgast og dafna til hagsbóta þessu bæjarfélagi og það má ekki lenda í höndum pen- ingaafla sem em til alls vís. Um það verða Akureyringar að halda vöku sinni. Um þetta mál mun ég svo ekki skrifa meira nema sérstakt tilefni gefist. Höfundur er fráfarandi fram- kvæmdastjári Útgerðarfélags Ak- ureyringa. FLUGLEIÐIR -fyiirþig- Rýmri farangursheimild er á Saga Class, Msm 30 kg í stað 20 kg. Þú svalar lestraiþörf dagsins á^íðum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.