Morgunblaðið - 18.09.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 18.09.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 41 Jón og Sigrún í baðstofunni á Reynistað. Vetrar löngu vökumar voru öngum þungbærar, við Ijóðasöng og sögumar söfnuðust föngin unaðar. Hver sér réði rökkrum i, rétt á meðan áttum fri, þá var kveðið kútinn í, kviknaði gleðin oft af þvL Teygjast lét ég lopann minn ljóða metinn söngvarinn, þuldi hetju þrekvirkin, þá var setinn bekkurinn. Ein þegar vatt og önnur spann, iðnin hvatti vefarann, þá var glatt í góðum rann, gæfan spratt við arin þann. ★ Jón á Reynistað var fyrst á þing kosinn 1919, þá fyrir Framsóknar- flokkinn. Sat hann á þingi fyrir þann flokk til 1922, en þá skildu leiðir með honum og Jónasi Jóns- syni frá Hriflu, sem þá var aðal- ráðamaður Framsóknar. Þeir Jón og Jónas voru skólabræður frá Akureyri og Askov. Voru með þeim góðir kunnugleikar, og skiptust þeir á bréfum. Fyrir atbeina Jónas- ar, og þó fremur fyrir áeggjan manna heima í héraði, ma. Olafs Briem alþingismanns á Alfgeirsvöll- um, lét hann tilleiðast að fara í framboð, sem hann hafði þó ekki sérstakan áhuga á. En fljótlega varð ágreiningur með þeim skóla- bræðrunum. Jóni þótti Jónas gerast öfgafullur um of og svo ráðríkur, að flokksbræður hans urðu að sitja og standa sem hann vildi og fara að vilja hans í einu og öllu. Gerðu þeir það ekki, fengu þeir bágt fyr- ir. Jón á Reynistað var þannig gerð- ur, að hann vildi ráða sér sjálfur og fór sínar eigin götur og þoldi því illa tilskipanir Jónasar, enda voru þeir um flesta hluti ólíkir. Við kosningamar 1923 var Jón í kjöri fyrir Spamaðarbandalagið, undanfara íhaldsflokksins, sem stofnaður var 1924. Var Jón einn af stofnendum hans og síðar Sjálf- stæðisflokksins 1929, er varð til með samruna íhaldsflokksins og Fijálslynda flokksins. Var Jón þing- maður í 33 ár, sat á 35 þingum og var þvf í hópi þeirra jþingmanna, sem lengsta hafa átt þingsetu. Flestir munu sammála um það, að Jón á Reynistað hafí reynst nýt- ur og giftudijúgur þingmaður. Hann var skyldurækinn og mikill starfsmaður á þingi sem annars staðar, vel metinn af andstæðingum í stjómmálum sem samheijum og naut trausts og virðingar. Mál- skrafsmaður var Jón enginn og pólitískt þras og þref var honum Qarri skapi. Kaus hann fremur að koma málum fram með forsjá en kappi. Vel var hlustað á úrræði hans og tillögur, því hann var til- lögugóður, réttsýnn og fyrirhyggju- samur og gerði sér far um að leiða menn til samlyndis, en var engu að síður fylginn sér í þeim málum, sem áttu hug hans. ★ Þess var getið í upphafsorðum þessarar ritsmíðar, að Jón á Reyni- stað hefði verið einn helsti hvata- maður að stofnun Sögufélags Skag- firðinga, en með honum voru saman í för aðrir áhugasamir unnendur skagfirzkra fræða, svo sem vildar- vinir hans Sigurður sýslumaður, fyrsti formaður félagsins, og séra Helgi Konráðsson. í erindi, sem Jón flutti á sýslu- fundi 1941, lýsti hann þannig mark- miðum Sögufélagsins: 1. Að varðveita þann bókmennta- arf, er við höfum hlotið og snertir Skagafjörð, og lýtur að sagnfræði, ættfræði og skáldskap. 2. Að skrásetja alls konar skag- firzkan fróðleik, er ella myndi glat- ast. 3. Að gera skagfirzkum fræðimönn- um auðveldara fyrir með sjálfstæð- ar rannsóknir, með því að vinna að því að sýslubókasafnið eignist ekki aðeins fullkomið safn prentaðra heimilda, heldur einnig afrit af helztu óprentuðu heimildarritum, er snerta sögu héraðsins. Að þessum markmiðum hefur Sögufélagið og Héraðsskjalasafnið ósleitilega unnið og hafa þar komið að verki margir og merkir áhuga- menn. En á engan er hallað, þótt sagt sé, að í þessum efnum hafi hlutur Jóns á Reynistað verið hvpð mestur, a.m.k. lengi framan af árum og allan þann tíma, er hann var í stjóm Sögufélagsins og safns- ins. Jón var í útgáfunefnd Sögufé- lagsins frá byijun og mestu mun hann hafa ráðið um útgáfu bóka félagsins á fyrstu áratugum þess. Réði hann mjög vali þeirra og rit- aði margt sjálfur, en fékk til glögga menn og fróða að rita annað. Hið mikilsverða Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781—1958 og Skagfirzku æviskrámar eru verk, sem varðveita munu nafn og minn- ingu Jóns um ókomnar tíðir. Hann var forgöngumaður um útgáfu þessara heimildarrita, sagði fyrir um skipulag og uppsetningu og rit- aði sjálfur margt af efni þessara bóka. Þau Reynistaðarhjón, Jón og Sigrún, stofnuðu sjóð með 12 þús- und króna framlagi árið 1961 og nefndu Fræðasjóð Skagfirðinga. Sjóði þeim er ætlað að vera til styrktar Sögufélaginu og til tiygg- ingar framhaldandi starfsemi þess. Sýnir þessi sjóðsmyndun, hversu hugstætt og kært Sögufélagið var Jóni og það fremur en nokkur fé- lagsskapur annar, sem hann lét sig varða. Þegar Sögufélagið varð 30 ára, 1967, var Jón kjörinn heiðurs- félagi þess. Á áttræðisafmæli Jóns, 13. mars 1968, var hann kjörinn heiðurs- félagi Búnaðarfélags íslands „fyrir maigháttuð og mikilvæg störf { þágu íslenzks landbúnaðar, al- mennra þjóðfélagsmála og hið merka þjóðfræðastarf". Þá var hann sæmdur riddarakrossi hinnar islensku fálkaorðu 1951. Ungmennasamband SkagaQarð- ar varð 50 ára 1960, var stofnað 17. apríl 1910. í tilefni af því voru nokkrir þálifandi frömuðir ung- mennafélagshreyfingarinnar f Skagafirði kjömir heiðursfélagar UMSS, og þeirra á meðal var Jón á Reynistað. Upphafið að stofnun byggða- safns í Skagafirði var, að á aðal- fundi Búnaðarsambands Skagfirð- inga 1939 lagði Jón á Reynistað, ásamt þeim Hermanni Jónssyni á Yzta-Mói og Jóni Konráðssyni í Bæ, fram erindi um undirbúning að stofnun byggðasafns í Skagafirði. Hafði Jón á Reynistað aflað sér upplýsinga um slík söfn á Norður- löndum. Erindi þeirra Jóns var vel tekið, en til þess mælzt, að Sögufé- lag Skagfirðinga hefði forgöngu. Sögufélagið treystist þó ekki til þess að sinna þessu verkefni, með- fram af fjárhagsástæðum, og taldi þetta fremur málefni, sem Búnaðar- sambandið og hreppsbúnaðarfélög- in ættu að sinna. Fýrsta söfnun til safnsins fór fram á vegum Búnað- arsambandsins og safnaði mestu Ámi Sveinsson bóndi á Kálfsstöð- um. Nokkur ágreiningur hafði risið um, hvar safnið skyldi staðsett. Vildu ýmsir, að safninu yrði komið fyrir í bæjarhúsunum á Hólum í Hjaltadal vegna sögulegra minn- inga og almennra óska Skagfirð- inga um að hlúa að hinu foma bisk- upssetri. Aðrir vildu, að safnið yrði í Glaumbæ, þar væri bær stærri og veglegri og í alfaraleið. Varð það úr, að safninu var þar búinn staður, enda fór þá fram á þessum ámm viðgerð. á bæjarhúsum í Glaumbæ og tók þjóðminjavörður bæinn í sína vörzlu samkvæmt lög- unum frá 1947 um viðhald fomra mannvirkja. Er ekki að efa, að það var Jóni á Reynistað mjög að skapi, að svo skipaðist um staðsetningu safnsins. Jón á Reynistað hreyfði því máli þegar árið 1937 við Matthías Þórð- arson þjóðminjavörð, að leita þyrfti1 ráða til að varðveita bæinn í Glaumbæ. „Torfbæimir væru óðum að hverfa og þama byðist tækifæri til þess að varðveita fyrir síðari tíma ágætt sýnishom af gömlum stórbæ. Auk þess væri bærinn eign ríkisins og því hægara um vik en ella." Þjóðminjavörður tók mjög vel þessari málaleitan og var sammála því, að koma þyrfti í veg fyrir að bærinn yrði rifinn og afla þyrfti fjár til viðhalds og viðgerða á bæn- um. En fé lá ekki á lausu á þessum ámm og leit helzt út fyrir, að ekk- ert gerðist að sinni í viðhaldi bæjar- ins. En þá barst óvæntur stuðning- Glaumbæ og skoðaði bæinn og leizt svo þessar gömlu byggingar, að einsýnt væri, að þeim yrði við hald- ið og þær varðveittar. Til viðgerða á bænum gaf svo þessi enski höfð- ingi 200 pund sterling. Þessi rausn vakti athygli, og álit útlendingsins á bænum í Glaumbæ opnaði augu margra fyrir menningarsögulegu gildi gömlu bæjanna. Auk þess varð peningagjöfin Qárveitingavaldinu hvatning til þess að leggja fram nauðsynlegar Qárveitingar til bæj- arviðgerðarinnar, þegar gjafaféð var þrotið. Á fundi sýsiunefndar Skaga- fjarðarsýslu 29. maí 1948 var sam- þykkt, að sýslunefndin hefði í sam- starfí við þjóðminjavörð forgöngu um að koma á stofn byggðasafni í Glaumbæ. Veitti sýslunefndin nokkru fé til safnsins og ksás þriggja manna byggðasafnsnefnd. Varð Jón á Reynistað formaður hennar. ★ Jón á Reynistað lifði langa ævi og skilaði margháttuðu og farsælu ævistarfi. Lengst af hafði hann verið heilsuhraustur, en á síðustu misserum, sem hann Iifði, náði Elli kerling tökum á þessum mikla starfsmanni. En yfir farinn veg gat hann litið þakklátum og glöðum huga. Hann hlaut það ævistarf, sem hann kaus sér helzt, að verða bóndi á fögru og frægu höfuðbóli í W*- aði, sem hann unni og helgaði krafta sína. Og hann gat fagnað því, að langflest áhugamál hans höfðu fengið farsælan framgang. Á aldarafmæli Jóns, þegar litið er jrfir æviferil hans og getið helztu verka þessa iðjusama héraðshöfð- ingja, má glöggt greina, að allt var starfíð unnið, hvort heldur var starf bóndans, alþingismannsins eða fræðimannsins, til fremdar íslenzk- um landbúnaði og bændamenningu þjóðarinnar, þeirri menningu, sem var í aldanna rás gildasti þáttuffía í menningarlífi íslendinga. Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, Þessar hendingar úr frægu ljóði Jónasar Hallgrímssonar eru með ur. Enskur maður, Mark Watson að nafni, ferðaðist hér um land sumur- in 1938 og 1939. hann kom að höfðaletri skráðar á skrautbekk undir giugga í baðstofunni á Reyni- stað. Þeirra má minnast, þegar Jóns á Reynistað er minnst. Allt aó 40% afsláftur á hinum giæsilesu bíltækium frá roadstar AUTO-HiFi ViSA E SKIPHOLT119 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.