Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 43

Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 43 Hús frá því fyrir 1500 f.Kr. í Akrotiri. Rauða ströndin á Santorini. Manolas AttrUia Mogalochori Monastiri y Emborion OIJ)' Akrotiri Perissa Akrotiri í sögu eyjarinnar. Árið 1956 varð eyjan fyrir jarðskjálftum, sem ollu miklu tjóni. íbúar Santorini eru um 7.000 í 16 þorpum og byggja þeir efna- hagslega afkomu sína á vínfram- leiðslu, tómötum, belgbaunum og útflutningi á vikursteini. Ferða- mannastaumur hófst ekki fyrr en fyrir 3 árum og er eyjan þess vegna að hluta til í uppbyggingu. Við hófum skoðunarferðina með því að halda f áttina að Perissa- ströndinni, sem er 8 km löng og er hún ein af bestu ströndunum á eyjunni og þar er einnig minni öldu- gangur. Strendumar á Santorini eru einungis á suður- og suðaustur- hluta eyjunnar, þ.e. frá Akrotiri til Monolithos, og er Kamari miðja vegu. Frá Perissa héldum við til Akrotiri, sem varðveittist í eldgos- inu í kringum 1500 fyrir Krist, og þar má sjá hús, götur og verslanir. Hér voru einnig kalkmálverk, sem voru flutt til Aþenu. Kalkmálverk þessi eru talin vera til stuðnings sögusögnum um að Santorini ásamt Krít og kannski annarri eyju hafí verið Atlantide, sem hvarf í miklu eldgosi. Með því að ganga eftir þröngum stígum fyrir ofan strönd- ina á Akrotiri kemur maður að rauðum kletti með rauðri strönd og tærum og hreinum sjó. Gullfallegur staður. Frá Akrotiri, sem er syðsti punkt- urinn á Santorini, förum við til nyrsta punktsins, sem er Oia. Fyrir jarðskjálftana árið 1956 voru íbúar þorpsins 4.000 en f dag eru þeir aðeins 400. Áður fyrr var Oia versl- unarsetur Santorini. Héðan nýtur maður best útsýnis yfír eyjamar í kring, þ.e. Thirassia, þar sem búa 300 manns og fengu þeir fyrst raf- magn í fyrra, Aspronisi, Nea Kam- eni, þar sem er virkur eldgígur og er hitastig hans 80-85°C, Palea Kameni, sem er lfkt og Bláa lónið okkar. Oia er líklega þrifalegasti staðurinn á Santorini og viðhald ágætt Héðan nýtur maður best sólsetursins. Hér var ekki vindur svo við flúðum sökum hita. Eftir 12 daga dvöl héldum við aftur til Aþenu. Ég hef ekki séð aðrar af hinum grisku eyjum, en ég hef lesið að Santorini sé ólík öllum öðrum. Ef þið ætlið að fara til Grikklandis þá er Santorini þess virði að heimsækja hana f 2 til 3 daga, ekki lengur. Flórens, ágúst 1988. TEXTI: Bergljót Leifsdóttir Vourvooli Kodocho Lxo Gonia / Mesa GoniH Pyrgoa Wine ta Kort af Santorini. Phinikia @THIRA \ ® KarteradíMi V Monoiithos Messaria 1 Vothon Ertþúíhúsgagnaleit? Ný sending af leðursófasett- um og hornsófum frá Þýska- landi og Frakklandi. Líttu í gluggann um helgina. UTSALA á persneskum teppum og renningum, afgönskum mottum og púðum. Takmarkaðar birgðir Verslunin P.M.T. Hrísateig 47, sími 680433. Opið frá 13-18 alla virka daga. Metsölublad á hverjum degi! nord REFO nordREFO (Norræna rannsóknastofnunin i byggðamélum) er rannsóknastofnun sem heyrir undir norrænu réðherranefndina. Stofnunin hefur með höndum frumkvæði og samræmingu á rann- sóknum á sviði byggðamála með þvi að skipa i sérstaka rann- sóknahópa aðila, sem vinna að rannsóknum og stjómsýslu á sviði byggðamála. auglýsir eftir FRAM KVÆM D ASTJÓRA nordREFO flytur tíl Kaupmannahafnar sumarið 1989 og auglýsir i tengslum við það eftir framkvæmda- stjóra til fjögurra óra. Starfið felur m.a. í sér eftirfarandi: • að undirbúa rannsóknaáætlun fyrir starfsemina • að starfa með rannsóknahópum • að sjá um útgáfustarfsemi stofnunarinnar • að sjó um daglega stjórnun og fjármálastjórn stofnunarinnar. Krafist er þekkingar og gjarnan reynslu af störfum á sviði byggðamála. Leitað er að áhugasömum manni með stjórnunarhæfileika. Það er einnig kostur ef umsækjandi hefur doktorsgráðu. Starfiö felur í sér að sjá um starfsemi rannsóknahópa vegum nordREFO og hefur i för með sér mikil ferðalög, einkum innan Norð- urlandanna. Laun ákvarðast með tilliti til hæfni umsækjanda á bilinu 20.000-30.000 DKK ó mánuði. Sérstakur ftutnings- styrkur verður veittur umsækjendum utan Danmerkur og aö auki mánaöarleg uppbót á bilinu 2.000-4.000 DKK. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. júli 1989. Upplýsingar veitir fulltrúi íslands í stjóm nordREFO, Sigurður Guðmundsson, Byggðastofnun, sími: 2 51 33 eða Gösta Oscarsson, institutschef för nordREFO, Helsingfors, sími 90/604 737. Umsóknir sendist eigi síðar en 17. október tíl: nordREFO Postbox 257 00171 Helsingfors 17 Finland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.