Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 67
morgunblaðið, ÓLYMPl'ULEiKARIMIR Q$^> í SEOUL '88 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 67 Reuter Sohn Km Chung, virtasti íþróttamaður Kórebúa hljóp sfðasta sprettinn með Ólympfueldinn og var vel fagnað er hann kom inn á völlinn. Chung er 76 ára að aldri og vann gullverðlaun f maraþonhlaupi á ólympíuleikunum í Berlín 1936. Einn svartur blettur tenging himins og jarðar var sem rauður þráður. í byijun var byggt á fomri trú Kóreumanna þar sem atriðin tákn- uðu hreinsun svæðisins af því illa og fögnuð fyrsta sólargeislans. Pleiri hundmð og jafnvel þúsundir manna og kvenna tóku þátt og í hveiju atrði var hópurinn samtaka sem ein heild. Tjáningin var full- komin og áhorfendur hrifust sem til _var ætlast. í miðkaflanum, sjálfri setningar- athöfninni, var athyglinni beint að sameiningu íþróttamanna hinna óiíku þjóða. Þar sást að fólk getur sameinast þrátt fyrir ólíka siði og venjur. Flestir gengu spenntir og reyndu að ganga í takt eins og fyr- •r var lagt á æfíngum, en allir veif- uðu glaðir til áhorfenda og margir dreifðu gjöfum. Bandaríkjamenn, sem vom fjölmennastir, fóm mest út af laginu og notuðu sumir þeirra tækifærið til að heilsa mömmu — 1 gegnum sjónvarpið. Þegar allt íþróttafólkið var komið inn á völlinn varð það afslappaðra og margir settust á grænt grasið eða hlupu um og tóku myndir. Ekki skipulagð- ar athafnir en táknrænar fyrir þarf- ir hvers og eins sem allir virtu. í byijun var andrúmsloftið hreinsað og í lokakaflanum var áhersla lögð á að viðhalda kærleik- anum, viðhalda samljmdinu. Fall- hlífarstökkvarar mynduðu Ólympíuhringina í lofti og svifu síðan gullnir til jarðar — tengingu var komið á með friði og velmegun. En Adam var ekki lengi í Paradís og fljótlega fór allt 1 upplausn. Enn byggt á fomri trú þar sem heildim- ar Yin og Yang skiptust á. Yin var tákn friðar og grósku en Yang tákn ólgu og umbrota. En að lokum var öllum hindrun- um mtt úr vegi, stríðandi öfl sam- einuðust og urðu að einni heild frið- ar og samlyndis. 88 sjö ára böm, sem fæddust 30. september 1981, daginn, sem Seoul var úthlutað leik- unum, fögnuðu af gleði og ánægju, tákn um bjartari framtíð. Elnn heimur Tæplega sjö þúsund einstakling- ar tóku þátt í sýningunni og í lokin byrptust þeir allir inn á völlinn. Heimurinn var og orðinn að einni heild, þátttakendur héldust 1 hendur og verðlaunalagið „Hand in Hand“ var sungið. Frábærri hátíð var lokið og verð- u? ekki annað sagt en Ólympíuleik- arnir f Seoul hafí byijað á hrífandi hátt. Víst er að opnunarhátíðin verður ógieymanleg, þeim sem við- staddir vom, og ósk um frið, sam- lyndi og framfarir hefur eflaust blundað í hveiju hjarta. Innganga þeirra þjóða sem gengu inn á Olympíuleikvanginn í Seoul heppnaðist vel, að einu undan- skildu. Bandaríkjamenn, sem vom ^■■M með óþolandi kjána- SigmundurÓ. læti, settu svartan Steinarsson blett á setninguna. sknfar frá Það var ekki nóg með að íþróttamenn frá Bandaríkjunum hafi gert sjálfa sig að fíflum, heldur skemmdu þeir inngöngu næsta þjóða sem komu á eftir. Agaleysi bandarískra íþrótta- manna er orðið umhugsunarefni. Setningarathöfn Ólympíuleikanna er virðulegasta athöfri sem nokkur íþróttamaður gengur í gegnum, og það em 80% af mannfólki heimsins sem horfa á. íþróttamenn frá einni þjóð af 160, sem taka þátt í þess- ari mestu íþróttahátfð heims, eiga ekki að komast upp með að haga sér eins og heimurinn snúist um þá. Menn verða að kunna sig við slfka athöfn. Setningarathöfii á Ólympíuleikum á ekki að vera tæki- færi fyrir einn og einn lq'ána til að senda mömmu sinni kveðju, með þvf að halda uppi spjaldi sem á stendur: „Mamma, ég er hér.“ Ef fþróttamenn vilja sýna heiminum að þeir séu mömmuböm eiga þeir að halda sig heima. í framtíðinni þarf að koma í veg fyrir að slfkt hendi aftur og það er orðið um- hugsunarefhi hvort ekki eigi að banna keppendum að ganga með ljósmyndavélar til leiks. „Hitinn óþolandi - sagði Sveinn Bjömsson, forseti ÍSÍ. íþróttamenn þurftu að standa í glampandi sól í þrjá tíma GANGA íslenska Ólympfuliðs- 'ns inn á Ólympfuleikvanginn f Seoul heppnaðist vel, og voru Böngumenn landi og þjóðtil •nikils sóma. Yfr 30 stiga hiti var á meðan setningarathöfnin fór fram og var sá hiti erfiður fyrir göngumenn. Já, þátttaka íþróttamanna á opn- unarathöfn er alltaf erfíð og þeir taka lítið þátt í gleðinni sem er inni á vellinum," sagði Sveinn Bjömsson, forseti sigmundurÓ. íþróttasambands ís- Steinarsson lands, eftir setning- arathöfnina hér í Seoul, sem var æv- 'ntýri lfkust. „Við vöknuðum klukkan hálf sjö um morguninn og lögðum af stað í rútubifreiðum af stað til ólympfu- leikvangsins klukkan átta. Þijú hundmð rútur fóm héðan frá ólympíuþorpinu með fþróttafólkið. Við vomm komin að Ólympíuleik- vanginum klukkan tæplega nfu, þannig að við þurftum að standa á fijálsíþróttavelli við hliðina á aðal- leikvanginum f á annan klukk- utfma, þar sem opnunarhátfðin hófst klukkan hálf ellefu, og inn- ganga fþróttamanna ekki fyrr en rúmlega ellefu. Hltlnn Hitinn var óþolandi. Það er lítið spennandi að standa upp á endann í fullum herklæðum í glampandi sól í þijá klukkutíma," sagði Sveinn. Strax eftir að fánaberar þjóðanna höfðu myndað fánaborg fyrir fram- an heiðursstúkuna og svarið Ólympíueiðinn fyrir> hönd þjóða sinna, fóm fþróttamennirnir af leik- velli. „Við fómm strax upp í rútu- bflana og héldum til Ólympfuþorps- ins. Við sáum því minnst af því sem fram fór á vellinum. Eins og greint var frá í gær vom sex fslensir keppendur ekki á setn- ingarnátíðinni. Vésteinn Hafsteins- son er enn í Svíþjóð, siglingamenn- imir Gunnlaugur og Isleifur em í Pusan og þau Bryndís Ólafsdóttir, Magnús Már Ólafsson og Amþór Ragnarsson vom í Ólympíuþorpinu og horfðu á setningarathöfnina f sjónvarpinu. Þau áttu að keppa í sundi í gær- kvöldi, laugardagskvöld. Biyndís f 100 m skriðsundi, Magnús f 200 m skriðsundi og Amþór í 100 m bringusundi. Þá hætti Jón Hjaltalín Magnús- son, formaður HSÍ, einnig við að ganga inn á völlinn. Hann horfði á setningarathöfnina ofan úr stúku. HANDKNATTLEIKUR: Sovétmenn sögðu „Njet“ — vilja ekki leika að morgni SigmundurÓ Steinarsson skrifar fráSeoui Sovétmenn sýndu hvað þeir hafa mikil völd innan Alþjóða handknattleikssambandsins, þegar þeir létu breyta leiktfma á fyrsta leik sínum á Ólympíuleikunum í Seoul. Þeir áttu að leika gegn Júgóslöv- um að morgni 20. september — kl. 10, en með frekju fengu þeir leik Ungveijalands og S-Kóreu færðan fram til kl. 10. Sovétmenn leika því gegn Jú- góslövum kl. 11.30, en Ungveijar og S-Kóreumenn leika kl. 10. Það var þjálfari Sovétríkjanna sem neit- aði að láta lið sitt leika kl. 10. „Leik- menn mínir em ekki tilbúnir að leika fyrr en í fyrsta lagi 2-3 tímum eftir að þeir vakna. Það em rúm- lega 40 km til Suwan, þannig að ég fer ekki að vekja mína menn upp um hánótt til að leggja á stað,“ sagði Anatoli Jewtuscenko. Þess má geta að íslendingar leika Anatoll Jewtuscenko, þjálfari sovéska landsliðsins, neitaði að lið sitt leika kl. 10 að morgni. einn leik kl. 10 um morgun. Gegn Júgóslövum 26. september. FERÐALÖG: „Islenska liðið" skrautlegt og — seint á ferðinni Dani nokkur hafði orð á því, að það hafí vakið athygli manna í flugvél frá Kaupmannahöfn til Seoul sfðastliðinn föstudag, hve fslenska Ólympfuliðið væri seint á ferðinni og hve liðið tæki lffínu létt. Hefði gert sér glaðan dag og haft hátt. Þegar Dananum var sagt að fslenska liðið væri fyrir löngu kom- ið til Seoul, hváði hann og sagði: „Ég trúi því ekki. Það var stór hóp- ur í flugvélinni, sem bar íslenska fánann á bijósti og á klæðum stóð áletrað stómm stöfum: ísland." Misskilningur Danans var leið- réttur á staðnum og honum sagt að þama hefði verið á ferðinni ferðamannahópur frá íslandi. Bryndfs Ólafsdottir — óheppin með braut eins og Magnús bróðir hennar. SUND: Áfyrstu braut Systkinin Bryndís og Magnús Már Ólafsson vom óheppinn með drátt á brautum þegar dregið var í sundgreinamar þegar þau keppa í,“ sagði Guðfinnur ðlafsson, formaður Sundsambands íslands, eftir að dregið var í riðla í gær. Bryndís átti að keppa á fyrstu braut í fjórða riðli í 100 m skriðsundi snemma í morgun, sunnudag. Magnús átti einnig að keppa á fyrstu braut, í 200 m skriðsundi, í sjötta riðli. Amþór Ragnarsson, sem keppir í 100 m bringusundi, var heldur ekki heppinn með braut. Hann var dreginn á aðra braut í öðmm riðli. SUND: Markmiðið aðbætasig m Islensku sundmennimir sex, sem keppa hér á ÓL í Seoul, hafa æft tvisvar á dag undan- fama daga. Þeir fengu ekki nema einn æfingatíma í fyrra- dag, þar sem sundlaugin er þétt synt alla daga. „Ég vakti krakkana upp kl. 5 í gærmorgun þar sem við feng- um æfíngatíma kl. 7,“ sagði Guðmundur Harðarson, lands- liðsþjálfari f sundi, við frétta- menn Morgunblaðsins í Ólympíuþorpinu á föstudag. Guðmundur var þá á leið með sundfólkið í sundlaugina. „Við munum reyna að smygla okkur ofan f laugina. Danir era með æfíngatfma á eftir, og ég á von á við fáum að nota eina braut í æfíngatfma þeirra,“ sagði Guð- mundur. „Ég er ánægður með krakk- ana — stígandinn er góður. Þau verða betri og betri með hveijum degi. Em f jafnvægi — bæði andlega og Ifkamlega. Markmið- ið hjá þeim er að bæta sig hér á ÓL.“ Bryndís Ólafsdóttir verður fyrsti íslendingurinn sem keppir á ÓL í Seoul. Hún keppir f 100 m skriðsundi í fyrramálið. Hún keppir einnig sfðust sundmanní^ — í 50 m skriðsundi 25 septem^ r ber.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.