Morgunblaðið - 08.10.1988, Side 24

Morgunblaðið - 08.10.1988, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 Chile: Pinochet ætlar að sitja í fimmtán mánuði enn Hafiiar afsögn ríkisstj órnarinnar Santiago. Reuter. AUGUSTO Pinochet, forseti og einræðisherra í Chile, játaði í Kontra-liðar: Gegn frið- argæsluliði Managua. Reuter. EINN af leiðtogum skæruliða í Nicaragua sagði i fyrradag, að ekki væri til neins að senda friðar- gæslulið frá Sameinuðu þjóðunum til að halda uppi gæslu á landa- mærum Hondúras og Nicaragua. „Meðan sandinistastjómin er við völd verður að betjast gegn henni með vopnum," sagði Roberto Ferrey, einn af sjö foringjum skæruliða, í viðtali, sem átt var við hann á Miami í Bandaríkjunum. „Gæslulið á landa- mæmnum mun engan vanda leysa." Carlos Lopez Contreras, sendi- herra Hondúras, hvatti til þess í fyrradag á þingi Sameinuðu þjóð- anna, að samtökin sendu friðar- gæslulið til Nicaragua. fyrrakvöld ósigur sinn í þjóðar- atkvæðagreiðslunni á miðviku- dag. Hann hafiiaði um leið öll- um hugmyndum stjórnarand- stöðunnar um að hann sæti skemur en 15 mánuði í viðbót á forsetastóli. Sömuleiðis neit- aði hann að taka til greina af- sagnarbeiðni ríkisstjórnar Chile frá því fyrr um daginn. Tveir menn féllu fyrir skotum óeirðalögreglu í höfuðborginni Santiago á fimmtudagskvöld er mikill mannfjöldi fagnaði úrslitum atkvæðagreiðslunnar. „Ég viðurkenni og virði dóm meirihlutans eins og hann birtist ? gær,“ sagði Pinochet meðal ann- ars í sjónvarpsávarpi. Hershöfð- inginn kom nú fram í einkennis- búningi í fyrsta skipti síðan boðað var til kosniganna. Hann sagðist staðráðinn í að sitja sem fastast uns stjómartíð hans rennur út samkvæmt stjómarskránni, þ.e.a.s í mars árið 1989. Einungis hefði verið kosið um forsetaemb- ættið en ekki um breytingar á stjómarskránni. Talsmaður forset- ans sagði síðar að hann tæki ekki til greina afsögn ríkisstjómarinna frá því á fimmtudagsmorgun er úrslit kosninganna vour ljós. Rafmagn fór af höfuðborginni og nokkmm stærri borgum á fimmtudagskvöld. Að sögn lög- reglu var orsakar að leita í spreng- ingum óeirðaseggja. Víða kom til átaka milli mannfjöldans í Sant- iago sem fagnaði sigri og lög- reglu. Rúmlega þrítugur maður og 14 ára unglingur féllu fyrir byssukúlum lögreglu aðfaramótt föstudags. Rcut«r Augusto Pinochet forseti Chile kom fram í sjónvarpi á fimmtudags- kvöld og játaði ósigur sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu. 8. þing Hansasambands- ins nýlega haldið í Köln Köln. ÐaD. HAN SASAMBANDIÐ var í yfir 300 ár valdamesta samband verslunarborga í Evrópu. Yfir 100 borgir í Mið- og Norður- Evrópu bera þess enn merki að Ensk öldurhúsamenning: Býflugnabúið ræð- ur sér heimspeking Daily Telegraph. TÉKKNESKI andófsmaðurinn og heimspekingurinn Julius Tomin hefrir nú loksins ftmdið starf við sitt hæfi eftir átta ára atvinnuleit í Englandi. Hann hefiir verið ráðinn heimspek- ingur Býflugnabúsins, sem er krá í bænum Swindon, vestur af Lundúnum. Fær hann fimm þúsund pund (rúmar (jögur- hundruð þúsund ísl. kr.) á ári fyrir að ræða lífsgátuna við krárgesti. Þessari nýbreytni hefiir verið feikivel tekið og Býflugnabúið var fiillt út úr dyrum þegar Tomin hóf störf í vikunni. í fyrsta fyrirlestrinum á fimmtudaginn, sem nefndist Inn- gangur að heimspeki, sagði Tomin frá þvf hvemig hann sótti baráttu- þrek í heimspekina í viðureigninni við tékknesk yfirvöld. Eftir að hafa lokið doktorsprófi við Char- les-háskólann í Prag fékk hann hvergi háskólastöðu vegna skoð- ana sinna. Hann vann ýmsa verkamannavinnu og notaði hvert tóm til að lesa samræður Platóns, uppáhaldsheimspekingsins síns, á grísku. Tomin var einn af þeim sem undirrituðu Mannréttindaá- skorunina 1977. Hann sat um tíma í fangelsi vegna þess að hann neitaði að gegna herþjón- ustu. Seint á áttunda áratugnum gat Tomin sér orð um vfða veröld fyr- ir að halda heimspekinámskeið á eigin vegum í óþökk stjómvalda, svipað og Sokrates gerði í Aþenu á fimmtu öld fyrir Krist. Árið 1980 var Tomin boðið til Oxford til að halda fyrirlestur. Hann ákvað að snúa ekki aftur og reyndi án árangurs að fá stöðu við háskólann í Oxford. Skýringin er að hans sögn sú að skoðanir hans á heimspekikennslu þykja nýstárlegar. Hann telur fræði- greinina hafa fjarlægst uppruna Tékkneska andófsmanninunum og doktornum í heimspeki, Jul- ius Tomin, var vel tekið þegar hann hóf störf á Býflugnabúinu í Swindon i vikunni. sinn í Grikklandi um of. Sókrates ræddi lífsgátuna og hversdagsleg vandamál á götum úti við hvem þann sem hlýða vildi en nú á dög- um stunda námsmenn einkum heimspeki til að „öðlast fæmi í rökræðum," eins og Tomin orðar það. Undanfarin ár hefur hann unnið að ritsmíð um Platón á bókasafni í Oxford og dregið fram lífið á þurfamánnastyrk frá hinu opinbera. Noel Reilly, eigandi krárinnar Beehive í Swindon, sá að við svo búið mátti ekki standa og bauð Tomin þriggja ára samning sem felur m.a. í sér að heimspekingur- inn flytur þijá opinbera fyrirlestra á ári. Reilly segir að „á breytin- gatímum í þjóðfélaginu þar sem efnishyggjan færist í vöxt sé sífellt mikilvægara að skeggræða andleg og siðferðileg verðmæti og reyna að sjá samfélagsþróun- ina fyrir.“ Þegar kráreigandinn var spurður hvort drykkja og heimspeki færu saman, svaraði hann: „Það hafa þær stöílur alltaf gert.“ hafa verið í Hansasambandinu og ráðamenn stærstu hafiiar- borga Vestur-Þýskalands eins og Hamborgar, LUbeck og Bremen eru stoltir að geta kennt sig við Hansasambandið. Fyrir átta árum var sambandið endurvakið í ZwoUe í HoUandi og síðan hafa þing verið haldin á hveiju ári. FuUtrúar 94 borga frá Vestur- Þýskalandi, Austur-Þýskalandi, Póllandi, Svíþjóð og Sovétrílqun- um héldu áttunda þing Hansa- sambandsins í Köln nýlega. Fyrsta þing Hansasambandsins var haldið í Liibeck árið 1356 og í margar aldir voru höfuðstöðvar Hansasambandsins, sem þjóðir allt frá Rússlandi til Bretlands voru aðilar að, í Liibeck. Velmegun Hansasambandsrílqa endurspe- glaðist í stærð flota þeirra. Liibeck átti til að mynda eitt kaupskip á hvetja tíu borgarbúa. Nafnið Hansasambandið var val- ið af kostgæfni en „Hanse" merkti „vopnaður flokkur" á miðháþýsku. Kaupmenn á miðöldum voru undan- tekningarlaust vopnaðir á ferðum sínum því þeir urðu að veijast árás- um ribbalda og sjóræningja jafnt á vegum úti sem á sjó. Það var af stjómmálaástæðum sem 170 þjóðir í Norður- og Mið- Evrópu tóku höndum saman og mynduðu samtök sem tryggðu þeim yfirburði á sviði stjómmála og við- skipta í Norður-Evrópu í yfir 300 ár. Stjómmálaleg sundmng Evrópu og stöðugur stríðsrekstur hömluðu alþjóðlegum viðskiptum og hinar ríku Hansaborgir sáu sig tilneyddar til að veijast. Hansaríkin tóku sameiginlega áhættu af alls kyns viðskiptum, Með slikum skipum tókst Hansa- sambandinu að viðhalda viðskipt- um um Mið- og Norður-Evrópu í yfir 300 ár. skipulögðu sameinginlegar verslun- arferðir og kynntu hvert annað í útlöndum höfnum. Hansasamband- ið hafði skrifstofur og hafnarað- stöðu í svo fjarlægum borgum sem Lissabon, Antwerpen, London og Hólmgarði og stóð fýrir friðarvið- ræðum við borgaryfirvöld og léns- herra. Afleiðingamar urðu aukið öryggi á sjóleiðum, ábyrgð á versl- unarvamingi og oft á tíðum niður- felling á tollum. Fulltrúum borga sem vom í Hansasambandinu þykir sem draga megi lærdóm af þessari arfleifð ábatasamrar samvinnu sem að sínu leyti er undanfari Efnahagsbanda- lags Evrópu. Sælgætisskortur í Sovétríkjunum Hoskvu. Reuter. í Sovétríkjunum tekur skorturinn á sig ýmsar myndir og nú er það súkkulaðið, sem er að verða ófá- anlegt. Þar sem það er ennþá selt má víða sjá hálfs kílómetra langar biðraðir fyrir utan búðirnar. Sagði dagblaðið Sovjctskaja Ros- síja frá þvi i gær. Sagði í blaðinu, að súkkulaðiþurrð- in stafaði af langvarandi sykurskorti og einnig af því, að margir reyndu að bæta sér upp fábreytt mataræðið með sætindum. Þá kemur það líka til, að sovéskir heimabruggarar, sem eru orðnir allfjölmenn stétt síðan yfirvöldin fóru að amast við áfengis- neyslunni, nota súkkulaði og annað sælgæti við mjaðargerðina þegar annar sykur er ekki til. Blaðið sagði, að hvað sem skortir um liði ætu Sovétmenn allt of miki af sælgæti eða 16,5 kíló á hvei mannsbam á ári. „Enda leynir þa sér heldur ekki á fólkinu sjálfu. Oi fita er vandamál fyrir meirihlut landsmanna." I ágústmánuði var ekkert sælgæi til í 33 borgum í Sovétrílq'unun ekkert súkkulaði í 87 og í öðrum 6 var það stundum fáanlegt og stunc um ekki. Það, sem af er árinu, vanl ar 450.000 sælgætistonn upp á eftii spurnina. „Á Kfrov-stræti í Moskvu er bié röðin nærri hálfs kílómetra löng, sagði í Sovjetskaja Rossíja. „Innflutt ir skór? Astrakhan-frakkar? Hollens rakvélarblöð? Nei, bara venjuleg súkkulaði."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.