Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 29 Borgarstjórn Reykjavíkur: Áætlanir um flutning Hringbrautar staðfestar BORGARSTJÓRN Reylgavíkur staðfesti áætlanir um flutning Hringbrautar um 200 metra til suðurs á fundi sínum á fímmtu- daginn. Á fundinum var einnig rædd tillaga minnihlutaflokk- anna um stofiiun „ Atvinnuefling- arsjóðs", en henni var vísað fi*á af borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins. Fyrir fundi borgarstjómar lá til- laga borgarverkfræðings um stað- festingu á áætlunum um færslu Hringbrautar. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson (S) tók fyrstur til máls um það efni. Hann minnti á, að áætlanir um breytta legu Hring- brautar byggðu á samningum milli ríkis og Reykj avíkurborgar frá 1969 og 1976, sem meðal annars hefðu falið í sér, að borgin afhenti ríkinu dýrmætt byggingarland án þess að krafíst yrði gatnagerðar- gjalda, en á móti hefði ríkið sam- þykkt að kosta gerð nýrrar Hring- brautar, 200 metrum sunnar en hún er nú. Flutningiir Hringbrautar staðfestur í aðalskipulagi Vilhjálmur benti á, að í staðfestu Aðalskipulagi Reykjavíkur væri færsla Hringbrautar sýnd nákvæm- lega í samræmi við samninga og að fulltrúi ríkisins, Yfirstjóm mann- virkjagerðar á Landspítalalóðinni hefði tvívegis sent borgaryfírvöld- um erindi, þar sem lögð var áhersla á að samkomulag ríkis og borgar yrði staðfest í aðalskipulaginu. Yfir- stjómin hefði ekki gert fyrirvara fyrr en 8. september á þessu ári og í umræðum í samstarfsnefnd um skipulag Háskólasvæðisins hefði verið gert ráð fyrir þessum fram- kvæmdum. Vilhjálmur sagði, að í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 1988 væri gert ráð fyrir byijunar- framkvæmdum og ekki hefðu kom- ið fram mótmæli í borgarráði vegna færslu götunnar. Rök yfirstjórnar haldlaus Vilhjálmur ræddi þá fyrirvara, sem komu fram í bréfí yfirstjómar mannvirkjagerðar á Landsspítala- lóð frá 8. september. Hann taldi að röksemdir um að framkvæmd- imar væm óþarfar næstu 20 árin haldlausar, því ekkert í samkomu- lagi ríkis og borgar rökstyddi þetta. Forráðamenn hinna sex nor- rænu deilda í Amnesty Intemati- onal koma saman til árlegrar ráðstefnu í Skálholti dagana 7.—10. október. íslenskir þátttak- endur verða 15 talsins, en frá öðrum Norðurlöndum koma sam- tals 15 fulltrúar; 4 frá Dan- mörku, 4 frá Noregi, 3 frá Svíþjóð, 2 frá Færeyjum og 2 frá Finnlandi. í frétt frá Amnesty segir að helstu umræðuefni ráðstefnunnar verði tillögur um skilvísari ráðgjaf- arþjónustu og fljótvirkari ákvarð- anatöku í alþjóðlegu samstarfi, áætlun um praktískt samstarf milli hinna norrænu deilda Amnesty Int- emational, leiðir til að fá ungt fólk til að starfa fyrir samtökin og úr- ræði til að gera Norðurlandaráð virkara í starfí Amnesty fyrir flótta- fólk og þá sem leita sér pólitísks Yfirstjómin sagði enn fremur í bréf- inu, að færsla Hringbrautarinnar klyfí athafnasvæði Háskólans í sundur. Vilhjálmur taldi þau rök ekki standast, því breytt lega Hringbrautar væri í samræmi við samkomulagið. í þriðja lagi teldi yfírstjómin að í áformum Reykjavíkurborgar fælust frávik frá samkomulaginu, því borgin gerði ráð fyrir því að Hringbrautin í núverandi legu sinni yrði áfram hluti af gatnakerfi borgarinnar, en ekki eingöngu ætluð umferð á lóð Landspítalans. Vilhjálmur sagði, að á meðan ríkið byggði ekki fyrr- greinda götu yrði að notast við núverandi Hringbraut og að hún yrði safngata fyrir Landspítalalóð- ina og nærliggjandi hverfi. Vilhjálmur lagði í lok ræðu sinnar áherslu á að hraða yrði fram- kvæmdum við færslu Hringbrautar vegna aukins umferðarþunga á Hringbraut, Miklubraut og Bú- staðavegi og vitnaði hann í bókun meirihluta skipulagsnefndar þar að lútandi. Framsókn vill fresta framkvæmdum Næst tók til máls Sigrún Magn- úsdóttir (F). Taldi hún að staðið hefði til að keyra málið í gegn í borgarkerfinu. Hún sagði að fresta hælis. Loks verður stuttlega fjallað um baráttu samtakanna fyrir tafar- lausum mannréttindum um heim allan og herferð þeirra gegn dauða- refsingum. Formaður íslandsdeildar Amn- esty Intemational, Sigurður A. Magnússon, setur ráðstefnuna í Skálholti, en fundarstjórar verða Eyjólfur Kjalar Emilsson og Jó- hanna Eyjólfsdóttir. Framsögumað- ur um fyrsta umræðuefni verður Ævar Kjartansson en aðrir fram- sögumenn verða frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Ráðstefnunni lýkur um hádegis- bil á mánudag en síðdegis verður móttaka fyrir þátttakendur hjá Vigdísi Finnbogadóttur forseta á Bessastöðum, þar sem Einar Páls- son rithöfundur verður sérstaklega heiðraður fyrir stórmannlegt fram- lag sitt til íslandsdeildar Amnesty Intemational. ætti framkvæmdum við flutning götunnar og taka að nýju upp samn- ingaviðræður við fulltrúa ríkisins um málið. Sigrún taldi einnig, að kanna hefði átt ódýrari aðferðir til að leysa umferðarvandann, svo sem að framlengja Bústaðaveginn alla leið að Sóleyjargötu. Sigrún bað um að afstaða fram- sóknarmanna í Borgarstjóm yrði bókuð. í bókuninni kemur fram sú skoðun, að ekki sé lengur þörf á að flytja Hringbrautina, heldur beri að breikka hana upp í sex akrein- ar. Einnig segir þar að óæskilegt sé að flytja umferðargötu fast að enda flugbrautar og auk þess leng- ist aksturleiðin á þessum kafla um ca. 100 metra. Einnig er spurt í bókuninni, hvort réttlætanlegt sé að ráðast í þessar framkvæmdir, þar sem kostnaður muni lenda á borgarsjóði til að byija með, og óvíst sé um endurgreiðslur frá ríkinu. Sigrún bar einnig fram til- lögu, þar sem lagt er til að við endurskoðun á legu umferðarmann- virkja vegna færslu Hringbrautar verði umferð gangandi fólks og tengsl við útivistarsvæði athuguð sérstaklega. Ríkið stendur ekki við samninga Davíð Oddsson, borgarstjóri sagði að mikið væri til í þeim um- mælum Sigrúnar að ríkið borgaði ekki skuldir sínar. „Ríkisvaldið er einhver versti viðsemjandi sveitar- félaganna,“ sagði hann. „Það stafar af því, að það telur sér ekki skylt að standa við gerða samninga. Það samkomulag Reykjavíkurborgar og ríkisins.sem hér um ræðir, er 20 ára gamalt, og ríkisvaldið hefur notið góðs af því og byggt án þess að greiða gatnagerðargjöld. Borgin hefur efnt sinn hluta samningsins og sparað ríkinu stórfé. En nú á ríkið að standa við sinn hluta samn- ingsins og þá er farið að draga í land. Þetta er mikið umhugsunar- efni fyrir alla sveitarstjómarmenn og borgarfulltrúar ættu að standa saman í þessu rnáli." Davíð sagðist líta svo á, að Yfir- stjóm mannvirkjagerðar á Lands- pítalalóð hefði ekki umboð til að afturkalla samninginn. Þrír ráð- herrar hefðu undirritað hann og ríkið hefði notið hans í 20 ár. Hann ræddi möguleika borgarinnar ef ríkið færðist undan greiðslum. Hann taldi tvær leiðir hugsanlegar, annars vegar að rifta samningi og krefja ríkið um gatnagerðargjöld en hins vegar að stefna ríkinu til fullnustu samninginum. Davíð lagði að lokum til að tillögu Sigrúnar yrði vísað til borgarráðs. Aðalatriðið að leysa umferðarvandann Næstur á mælendaskrá var Bjarni P. Magnússon (A). Hann sagðist samþykkur tillögu meiri- hlutans, enda væm tillögur fram- sóknarmanna bráðabirgðalausnir. Hann sagði aðalatriðið vera að leysa umferðarvandann og að ríkinu bæri að standa við gerða samninga. Bjami óskaði eftir að sú afstaða sín yrði færð til bókar, að þannig yrði gengið frá mannvirkjagerð við færslu Hringbrautar, að hún þjón- aði öllum vegfarendum vel og að umferðarvandann yrði að leysa til frambúðar. Að ræðu Bjama lokinni tók Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson aftur til máls. Svaraði hann ýmsum rökum Sigrúnar Magnúsdóttur og sagði að sér fyndist sem hún neitaði að viðurkenna umferðarþungann á Hringbraut og vandann sem af hon- um hlytist. Hann benti einnig á, að ekki væri fyrir hendi ódýrari lausn á þessum vanda, sem jafnframt auðveldaði umferðina. Elín G. Ól- afsdóttir(Kl) kvaddi sér hljóðs á eftir Vilhjálmi. Hún lét bóka þá afstöðu sína, að erfitt væri að standa gegn flutningi Hringbrautar en ýmsum spumingum væri enn ósvarað. Því sæti hún hjá við.at- kvæðagreiðsluna. Stækkunarmögnleikar Landspítala takmarkaðir í dag Páll Gíslason (S) sagði ástandið í umferðinni ekki viðunandi og þetta væri það minnsta, sem hægt væri að gera til að bæta úr því. Hann talaði um að færsla Hringbrautar væri einnig nauðsynleg til að tak- marka ekki stækkunarmöguleika Landspítlans. Að síðustu tók Sigrún Magnúsdóttir aftur til máls. Hún benti á að 1976 hefðu framsóknar- menn í borgarstjórn varað við því að borgin léti land af hendi við ríkið. Að lokum óskaði hún eftir því, að tillaga sín yrði send til borg- arráðs. Þá var gengið til atkvæða. Tíu borgarfulltrúar Sjálfstæðis- og Al- þýðuflokks greiddu atkvæði með flutningi Hringbrautar, borgarfull- trúi framsóknarmanna greiddi at- kvæði á móti en fulltrúar Alþýðu- bandalags og Kvennalista sátu hjá. Borgarstjóm samþykkti samhljóða að vísa tillögu Sigrúnar Magnús- dóttur til borgarráðs. Amnesty á Norðurlönd- um þingar í Skálholti býðurARNARHÓLL sérstakanmatseðil á föstudags- og laugardags- kvöldum-fyrirogeftir sýningu. REGNBOGAKÆFA CLÖRU kr. 325,- (Regnbogakæfa með hunangssósu) WALDGRAVE SÚPA kr.275,- (Súpa kvöldsins) NÆR ÖLDUNGIS GÓMSÆTT HREKKJUSVÍN í P0KA kr.995,- (Innbakaður grísavöðvi með osti, sveppum og kryddjurtasósu) RISTUÐ SMÁLÚÐA HJÁ RICK 0GRANSÝ kr.795,- (Ristuð smálúðuflök með pöstu, hrísgrjónum og kræklingasósu) KOMDU 0G FÁÐU ÞÉR RUGULKOLLU Á BARNUM Amarhóll RESTAURANT opinn á kvöldin frá kl. 18:00, þriðjud. til laugard. pantanasími 18833 Hverfisgötu 8-10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.