Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
Sin ögnin af hveiju. Jólatúlípaninn „Brílliant Star“.
Lokaspjall um lauka þetta haustið
Senn líður að lokum „laukat-
íðar“ og vonandi hafa garðrækt-
endur komið laukunum sínum í
moldina og ekki orðið verulega
fyrir barðinu á skassinu Helenu
sem við hér á suðvesturhominu
sluppum furðu vel úr klónum á
þó ekki hafi allir landsmenn sömu
sögu að segja, því miður. Vetur-
nætur eru á næsta leiti og á skrif-
stofu GÍ á Amtmannsstíg 6 hefur
brúnu pokunum dijúgum fækkað,
en ef vera kynni að einhveijir
ættu ósóttar pantanir enn, em
þeir hinir sömu minntir á að sækja
þær sem allra fyrst. Skrifstofan
er opin á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 1—6, auk þess á
fimmtudagskvöldum kl. 8—10.
Laukapokum fækkar líka óðum í
hillum og körfum blómaverslana,
þó gmnar mig að enn leynist þar
eitthvað sem þeir síðbúnu geta
notfært sér til ræktunar úti eða
inni og í þessu lokaspjalli verður
aðeins minnst á þá síðamefndu.
Allflesta haustlauka má rækta
inni með góðum árangri, jafnt
hávaxna túlípana og páskaliljur
sem smálauka svo sem vetrar-
gosa, krókus, snæstjömuliljur og
svo ótal margt annað, sem of
langt yrði hér upp að telja. þeir
laukar sem eftirsóttastir em til
að prýða heimilin nýútspmngnir
um jól em lágvöxnu túlípanamir
„Brilliant Star" (rauður) og
„Joffre" (gulur) og svo auðvitað
hyasintumar fögm og ilmandi,
sem um langt árabil hafa þótt
sjálfsagðar til þess að lífga upp
svartasta skammdegið. ílát geta
verið hverskyns dallar, krúsir og
stampar en ákjósanlegastir em
þó venjulegir blómapottar með
afrennslisgötum á botni. Þyki þeir
ekki nógu fallegir til þess að hafa
í stofu má setja þá ofaní potta-
hlífar eða skrautpotta. Notið
venjulega gróðurmold blandaða
vikri eða fremur grófum sandi.
Moldin þarf að vera laus og létt
og varast skal að þjappa henni
saman. Ekki má kúfylla ílátið,
heldur hafa á því nokkurt borð.
Látið laukana standa þétt og þrýs-
tið þeim ofan í moldina þannig
að um það bil helmingurinn af
þeim standi upp úr, nema ef um
mjög smáa lauka er að ræða þá
má hylja þá alveg með mold.
Vökvið vel og gætið þess að mold-
in þomi ekki um of. Um drifningu
Iaukanna leyfí ég mér að vitna í
grein eftir Hafstein Hafliðason
garðyrkjufræðing:
„Setjið pottana á kaldan stað
og vitjið þeirra af og til. Kjörhiti
er á bilinu 4—10°C. Sé hann
hærri er hætta á að laukamir
rotni eða fari of hratt á stað og
kasti blómunum. Lágur hiti lengir
ræktunartímann. Lauka sem sett-
ir em niður í byijun otkóber má
fara að drífa í janúarlok. Þegar
laukar em teknir inn til drifningar
verður að gæta þess að fara ekki
of geyst af stað með hitann. Best
er að byija við 12—15°C og láta
hann síðan hækka hægt upp í
18—20°C þegar fer að sjást í
blómin. Til að blöð og blóm fái
sterkan og eðlilegan lit þurfa
laukjurtimar að fá eins mikla
birtu og mögulegt er eftir að þær
em komnar í drifninguna.
Það launar ekki fyrirhöfn að
reikna með framhaldslífí fyrir
driflaukana. Hendið þeim bara
með góðri samvisku!" (tilvitnun
lýkur).
Góðir lesendur! Blóm vikunnar
óskar ykkur góðs gengis, gleði
og skemmtunar við laukaræktun-
ina.
Borghildur
Oskarsdóttir
sýnir í Nýhöfti
SÝNING Borghildar Óskarsdóttur
verður opnuð i Listasalnum Ný-
höfti, Hafnarstræti 18, laugardag-
inn 8. október kl. 14—16.
Á sýningunni verða 11 verk unnin
í leir og gler á þessu ári.
Þetta er fjórða einkasýning Borg-
hildar en hún hefur einnig tekið þátt
í flölda samsýninga hér heima og
erlendis. Hún er meðal annars þátt-
takandi í samsýningunni „5 víddir"
sem var sumarsýning í Röhsska-
safninu í Gautaborg og verður sett
upp í Færeyjum og opnuð 17. októ-
ber.
Borghildur stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
og Edinburgh College of Art. Hún
var kennari við Myndlistaskólann í
Reykjavík á áranum 1973—1984.
Borghildur vann 1. verðlaun í sam-
keppni um merki Listahátíðar 1988.
Sýningin, sem er sölusýning, er
Borghildur Óskarsdóttir sýnir
verk sín í Listasalnum Nýhöfii í
Hafiiarstræti.
opin virka daga kl. 10—18 og um
helgar frá 14 til 18.
Sýningunni lýkur 26. október.
NYTT
SIMANUMER
67 42 22
Blikksmiðja Gylfa hf.
Vagnhöfða 7,112 Reykjavík
Kvikmyndin Nico sýnd í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina Nico með
Steven Seagal, Pam Grier og
Henry Silva í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Andrew Davis.
Nicola Toscani, fyrrverandi
starfsmaður CIA, sem starfar fyrir
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Chicago handtekur einn helsta
fíkniefnasala borgarinnar í fyrirsát
en fær fyrirmæli um að láta hann
lausan því hann gegni mikilvægu
hlutverki fyrir stjómvöld. Nico
sættir sig ekki við þessa afgreiðslu
mála og leggur líf sitt og fjölskyldu
sinnar í hættu þegar hann heldur
áfram rannsókn þvert ofan í fyrir-
mæli. Hann kemst síðan að því að
háttsettir menn innan CIA em síður
en svo með hreinan skjöld.
(Úr fréttatilkynningu)
Atríði úr kvikmyndinm Nico sem sýnd er í Bíóhöllinni.
Elín Magnúsdóttir sýnir í Tunglinu
ELÍN Magnúsdóttir myndlist- ur. Elín lauk prófí frá Gerrit Riet-
arkona opnaði sýningu í Þar sýnir hún stórar akrýl- veldt Akademiunni í Amsterdam
Tunglinu föstudaginn 7. októ- myndir sem allar hafa svipað vorið 1987.
ber og stendur hún í tvær vik- þema, „piano forte".
SJALFSTÆÐISMEININ
Dregið í dag.
Happdrætti Sjáifstæðisflokksins.