Morgunblaðið - 08.10.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
33
dagaskóli kl. 11. Munið skóla-
bílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Kvenfélagskonur lesa lexíu og
pistil. Kór Keflavíkurkirkju syng-
ur. Organisti og stjórnandi Örn
Falkner. Sóknarprestur.
KFUM og KFUK: Almenn sam-
koma sunnudagskvöld kl. 20.30
að Amtmannsstíg 2B. Ræðu-
maður verður Lindsay Brown frá
Alþjóðlegu kristilegu skóla- og
stúdentahreyfingunni. Athugið
að þetta verður síðasta kvöld-
samkoman á þessu hausti.
Næsta sunnudag verður sam-
koma kl. 16.30.
STRANDARKIRKJA: Messa kl.
14.
ÞORLÁKSKIRKJA: Barnamessa
kl. 11.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
messa kl. 11 í umsjá Kristínar
Sigfúsdóttur. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
NÝJA POSTULAKIRKJAN á Háa-
leitisbraut: Messa sunnudag kl.
11.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Fyrirbænaguðsþjónusta mánu-
dag kl. 17.30. Beðið fyrir sjúkum.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Sr. Björn Jónsson.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Lágafellskirkja. Barnasamkoma
kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 14. Séra Árni
Pálsson og kirkjukór Kársnes-
sóknar annast messugjörðina.
Sóknarprestur.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta í Hrafnistu kl. 10. Guðs-
þjónusta í Víðistaðakirkju ki. 11.
Kór Víðistaðasóknar syngur.
Organisti Kristín Jóhannesdóttir.
Sr. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.00. Almenn
guðsþjónusta kl. 14.00. Orgel-
leikari Pavel Smid. Sr. Cecil Har-
aldsson.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarfið hefst í safnaðar-
heimilinu ki. 11 í umsjá Láru
Guðmundsdóttur og Helgu
Óskarsdóttur. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarfið hefst kl. 11. Messa
kl. 14. Organisti Oddný Þor-
steinsdóttir. Fundur með foreldr-
um fermingarbarna að lokinni
messu. Sóknarprestur.
KAPELLA HÁSKÓLANS: Messa
á ensku fyrir allar kirkjudeildir
verður haldin í kapellu Háskólans
á sunnudag kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli fyrir börn kl.,14. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30. Ofursti
Edward Hannevik aðalritari og
frú Margaret syngja og tala. Kaft-
einn Daniel Óskarsson stjórnar.
Heimilasambandsfundur á
mánudaginn kl. 16, frú ofursti
Matrgaret Hannevik talar.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Barnastarfið
hefst með sunnudagaskóla á
sunnudaginn kl. 11. Nýtt
fræðsluefni. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA: Barnastarf-
ið hefst með sunnudagaskóla á
sunnudag kl. 14 í grunnskólanum
í Sandgerði. Nýtt fræðsluefni. Sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLA-
DELFÍA: Almenn bænasamkoma
laugardag kl. 20.30. Almenn
vakningarsamkoma sunnudag kl.
20. Ræðumaður Hafliði Kristins-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 14. Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30. Munið skóla-
bílinn. Organisti Helgi Braga. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA:
Guðsþjónusta á sunnudag kl. 14.
Sr. Stefán Lárusson.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Þykkvabæjar-
kirkju kl. 10.30. Guðsþjónusta kl.
14 í Þykkvabæjarkirkju. Organisti
er Sigurbjartur Guðjónsson. Séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma í kirkjunni laugardag kl. 13.
Kirkjuskólinn í safnaðarheimilinu
Vinaminni sama dag kl. 13. Sr.
Björn Jónsson.
I
Hundrað Hollendingar í
hádegisverð til íslands
Keflavík.
FJÖRUTÍU sölumenn frá Peuge-
ot-bílaumboðinu í Hollandi, eigin-
konur þeirra og yfirmenn, aUs
99 manns, komu til landsins frá
Amsterdam laust fyrir hádegi á
miðvikudaginn. Þeir flugu með
hljóðfráu þotunni Concord frá
franska flugfélaginu Air France
og var ferðin til Islands verðlaun
til sölumannanna fyrir góðan
árangur í starfi. Ekki var viðdvöl-
in á Islandi löng að þessu sinni,
hópurinn snæddi hádegisverð á
Hótel Sögu, skoðaði Höfða í
Reylgavík, fór til Hveragerðis og
drakk að lokum sídegiskaffl i
Skiðaskálanum í Hveradölum áð-
ur en haldið var aftur tíl Hol-
lands síðdegis.
„Af hveiju ísland? Okkur datt í
hug að gera þetta að eftirminnilegri
ferð og fara þangað sem enginn
okkar hafði komið áður,“ sagði
C.H.M. Hermanns einn af fram-
kvæmdastjórum Peugeot í Hollandi.
„Þegar við settumst niður til að velja
iand, kom í ljós að flest lönd í Evr-
ópu höfðu verið heimsótt af ein-
hveijum úr hópnum og margir höfðu
komið til Afríku. Því fannst okkur
upplagt að fara til íslands og geta
sagt frá því að við hefðum skropgið
í hádegisverð til Reylq'avíkur á ís-
landi í gær. Menn eru ákaflega án-
ægðir með að fara í þessa ferð og
hún mun áreiðanlega líða okkur seint
úr minni," sagði Hermanns ennfrem-
ur.
Nokkur viðhöfn var við komu
hópsins til Keflavíkur og tóku
franski sendiherrann, hr. Mer, og
aðalræðismaður Hollands á íslandi,
Ámi Kristjánsson, á móti Hollend-
ingunum. Þá lék Skólahljómsveit
Morgunblaöið/Bjöm Biöndal
Hollensku gestirnir ganga frá bordi Concord-þotunnar við undirleik
Skólahljómsveitar Kópavogs.
Kópavogs fyrir gestina á meðan ot á íslandi skipulögðu ferðina hér
þeir gengu frá borði. Starfsmenn á landi.
Jöfurs hf. sem er umboðsaðili Peuge- _ BB
Markvisst samstarf við Damstahl A/S eykur styrk
okkar í birgðahaldi á ryðfríu stáli. Með stærsta lager-
fyrirtæki Norðurlanda að bakhjarli tryggir Sindra Stál
viðskiptavinum sínum örugga þjónustu.
Skjót afgreiðsla á sérpöntunum vegna ýmissa
verkefna.
Damstahl
Ryðfrítt stál er okkar mál!
SINDRAimSlAL HF
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684