Morgunblaðið - 08.10.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
35
toyota
Neytandinn og tannlæknirinn:
Ríkisstjórnin ætlar að
„ Að öllu gamni slepptu,
þá hef ég þá trú að nú
fari virkilega að rofa
til í gjaldskrármálum
tannlækna.“
lækka laun tannlækna
eftir Vilhjálm Inga
í fyrsta skipti í íslandssögunni
hefur það gerst, að fellt hefur verið
inn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar,
að hún ætli að lækka laun tann-
lækna sérstaklega. Núverandi ríkis-
stjóm jafnréttis og félagshyggju
hefur sett sér eftirfarandi markmið.
„Fyrirkomulag tannlæknaþjón-
ustu verður endurskoðað í því skyni
að lækka tilkostnað heimila og ríkis
án þess að dregið verði úr þjón-
ustu.“
Ég hef á öðmm stað lofað að
skýra frá viðbrögðum þingmann-
anna okkar. Er skemmst frá því
að segja að fulltrúar allra þing-
flokka héðan úr kjördæminu, nema
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks, hafa
sýnt þessu málefni stuðning. Eftir
að hafa heyrt um vasklegt framlag
Jóhönnu Sigurðardóttur við samn-
ing yfírlýsingarinnar hér að fram-
an, treysti ég henni til að hysja
buxumar upp um Áma Gunnarsson
og láta strákinn fara að bursta
tennumar. Halldór Blöndal situr
sennilega upp á fjóshaug þeim sem
honum hefur verið svo tíðrætt um
að undanförnu, og galar í bundnu
og óbundnu máli um það hve illa
sé farið með „besta stjómmálamann
á íslandi“ og hefur ekki tíma til
að hafa áhyggjur af venjulegum
neytendum og smámennum.
Að öllu gamni slepptu, þá hef
ég þá trú að nú fari virkilega að
rofa til í gjaldskrármálum tann-
lækna. Rökin sem ég hef fyrir mér
í því efni eru þessi:
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, og
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, eiga ásamt fulltrúum
Alþýðubandalags og Samtaka jafn-
réttis og félagshyggju heiðurinn af
orðalagi um tannlækna í yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar. Ég veit að hugur
fylgir máli, og að þetta em ekki
innantóm orð. Ef svo væri, þá hefði
þessi málsgrein aldrei farið inn í
stefnuyfirlýsinguna, því það er ekki
á hvetjum degi sem ein starfsstétt
er dregin opinberlega fram í dags-
Ijósið í því skyni að lækka laun
hennar og það án þess að hún
minnki þjónustu sína. Þannig tala
ekki ábyrgir stjómmálamenn nema
að aðgerðir fylgi.
Þriðji ráðherrann, Steingrímur
J. Sigfússon, landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra, skrifaði mér bréf,
þar sem hann meðal annars bendir
á að fjórði ráðherrann í núveandi
ríkisstjórn, Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra, hefði á sínum
tíma sem heilbrigðisráðherra sett
reglugerð um endurgreiðslu tann-
læknakostnaðar. (Ef mig misminnir
ekki, þá var það eitt fyrsta verk
næsta heilbrigðisráðherra sem var
sjálfstæðismaður, að nema þau
ákvæði úr gildi. (Sjálfstæðismenn
og tannlæknar, þið vitið hvar aur-
amir koma að „góðum“ notum.)
Steingrímur minn, nú ert þú sam-
kvæmt bréfinu „aðgerðarskildur“ í
málinu, og varla stendur á Svavari.
Síðast en alls ekki síst verður svo
að geta þess, að Málmfríður Sigurð-
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík óskar eftir að
hafa tal af sjónarvottum að því
er ekið var á gráa Lancia fólks-
bifreið við hús Bjrfreiða- og
Landbúnaðarvéla í Ármúla.
Óhappið átti sér stað frá klukkan
23 að kvöldi laugardagsins 1. þ.m
og til klukkan 14 sunnudaginn 2.
þ.m.
Tjónvaldurinn fór af vettvangi án
þess að gera vart um óhappið og
er tjón eiganda Lanciunnar tilfinnan-
legt.
ardóttir hefur sýnt „tannlæknamál-
inu“ mjög mikinn áhuga og hefur
falast eftir gögnum sem hún og
Guðrún Agnarsdóttir hafa kynnt
sér. Þær ásamt stöllum sínum í
Kvennaframboðinu munu án efa
veita ríkisstjóminni nauðsynlegt
aðhald, og láta frá sér heyra ef
þeim fer að leiðast biðin eftir raun-
verulegum aðgerðum. Samkvæmt
því sem að framan er rakið ætti sú
bið varla að vera löng, því fá ein-
stök málefni hafa jafn margra ráð-
herra og alþingismenn á bak við
sig, eins og endurskoðun tann-
læknaþjónustunnar hefur.
Ég skora því á ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar að
standa við gefin fyrirheit, þannig
að ekki sannist á henni ummæli
sjálfstæðismanna um óheilindi og
ódrengskap og að slíkur áburður á
alþingismenn megi ómerkur vera
og á fjóshauga varpað.
Villijálmur Ingi
P.S.: Mér hefur verið tilkynnt frá
tryggingayfirvöldum, að Helgi V.
Jónsson, formaður samninganefnd-
ar ríkisins, ætli loksins að svara
mér varðandi forsendur tannlækna-
taxtanna. Það verður fróðlegt að
sjá hvemig hann ver þá ákvörðun
sína og samnefndarmanna sinna,
að ætla sumum tannlæknum yfir
12.000 krónur á tímann, í laun og
launatengd gjöld, af almannafé.
Höfundur er kennari við MA og í
stjórn Neytendafélngs Akureyrar.
1
«
é
4
VERÐLÆKKUN
SEM ENGINN GETUR
HORF FRAMHJÁ!
Við veitum nú heljarmikinn afslátt af Toyota Corolla ’88 árgerð
og gildir afslátturinn á meðan birgðir endast.
Bílarnir lækka um allt að 100.000 kr.
en staðgreiðsluverð þeirra er frá 459.000 kr. Ef þú átt nýlegan bíl fyrir,
kemur að sjálfsögðu til greina að taka hann upp í.
Á meðan þetta tilboð stendur er opið hjá okkur til kl. 20 virka daga
og á iaugardögum frá 13 til 16.
Umboðsmenn Toyota eru um allt land:
Keflavík, Akranesi, Borgarnesi, ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri,
iEgilsstöðum og Vestmannaeyjum.
TONOT Þ. eOVAOVAJ
COROL.LA
TOYOTA
rOYOTA
FjOLVENTLA
VÉLAR