Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraþjálfarar
Óskum að ráða:
★ Hjúkrunarfræðinga - strax eða eftir nánara
samkomulagi.
★ Sjúkraþjálfara - frá 1. janúar 1989.
Húsnæði til staðar.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra og/eða
yfirsjúkraþjálfara í síma 94-4500 eða 94-3014
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Lögfræðingur
óskar eftir starfi. Hef reynslu í lögfræðistörf-
um. Get byrjað strax.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„L - 14563".
Skrifstofustarf
Opinbera stofnun í miðbænum vantar skrif-
stofumann til afgreiðslustarfa, sem felast í al-
mennri upplýsingagjöf, gagnamóttöku og af-
hendingu og útgáfu vottorða og staðfestinga.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 12. október nk., merktar: „O - 6948".
Kennitala óskast tilgreind í umsókn.
íþróttakennari -
Bolungarvík
Af sérstökum ástæðum vantar íþróttakennara
nú þegar til starfa við Grunnskóla Bolungarvík-
ur. Fyrir hendi er einstaklega góð aðstaða til
starfa. Nýtt og fullbúið íþróttahús og mjög
góð sundlaug. Hlunnindi í boði.
Upplýsingar gefa formaður skólanefndar í síma
94-7540 og skólastjóri í símum 94-7249 og
94-7288.
Skóianefnd.
Verkamenn
vantar í byggingavinnu í Mosfellsbæ.
FinnurJóhannsson, húsasmíðameistari,
símar666463og 985-20963.
Atvinnurekendur
Duglegur starfskraftur um þrítugt leitar eftir
fjölbreyttu og vel launuðu starfi. Hef unnið
sl. 7 ár við skrifstofustörf en er ýmsu vön.
Upplýsingar gefur Sigrún í síma 41412.
Blindrabókasafn
íslands
Aðstoðarmann vantar í útláns- og upplýs-
ingadeild.
Upplýsingar í síma 686922.
Siglufjörður
Blaðberi óskast í Hvanneyrarbraut á Siglu-
firði. —
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
96-71489.
Hl**$
PR-BA-USA
Nýútskrifaður, ungur, hress fjölmiðlafræð-
ingur (Public Relations), frá Bandaríkjunum,
vijl takast á við lífið og tilveruna í krefjandi
starfi tengdu kynningar-, markaðs- og aug-
lýsingamálum.
Fyrirspurnir sendist auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 20. okt., merktar: „PR - 100".
2. stýrimaður
óskast strax á mb. Eyvind Vopna NS-70 sem
gerður er út á togveiðar.
Upplýsingar í símum 97-31143 og 97-31231.
Verkstjóri
- matsmaður
Verkstjóra með matsréttindi vantar í fyrirtæki á
suðvesturhorni landsins. Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar í símum 98-33965 á daginn og
98-33865 á kvöldin.
raðaugiýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
| tifboð — útboð |
Bílakaup ríkisins
1989
Innkaupastofnun ríkisins áætlar að kaupa
um 140 bíla fyrir ríkisstofnanir árið 1988.
Lýsing á stærðum og útbúnaði bílanna er
að fá á skrifstofu vorri og þurfa þeir bifreiða-
innflytjendur, sem vilja bjóða bíla sína, að
senda verðtilboð og aðrar upplýsingar til skrif-
stofunnar fyrir 11. nóvember nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7. simi 26844.
Reykjavfk
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík
leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir
sambýli í Reykjavík.
Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðu-
neytisins, Arnarhvoli, 150 Reykavík, fyrir 21.
október 1988.
Fjármáiaráðuneytið,
6. október 1988.
veiði
X .j.hv■ •
Stangveiðimenn
Flugukastakennslan hefst í Laugardalshöll
sunnudaginn 9. október kl. 10.20 árdegis.
Við lánum stengurnar. Innritun á staðnum.
Kastnefndirnar.
|_________þjónusta____________|
Húsbyggjendur
- húseigendur
Ertu að byggja eða breyta að utan eða innan?
Get bætt við mig verkefnum.
Gunnar Ingvarsson,
húsasmíðam., sími 54982.
Matvöruverslun
í fjölmennu íbúðahverfi á höfuðborgarsvæð-
inu. Hentar vel fyrir tvær samhentar fjölskyld-
ur, t.d. kjötiðnaðarmann og innkaupastjóra.
Verðhugmynd 15,0 millj.
Greiðslur eftir samkomulagi.
Áhugasamir leggi nöfn ásamt frekari upplýs-
ingum á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Núna
- 4763".
Til sölu
120 fm verslunar- eða skrifstofuhúsnæði á
jarðhæð í Mosfellsbæ. Laust 1. nóv.
Upplýsingar veitir Finnur Jóhannsson, húsa-
smíðameistari, sími 666463 og 985-20963.
atvinnuhúsnæði
Vöruskemma
Til leigu 300 fm vöruskemma á hafnarsvæði
Hafnarfjarðar.
Upplýsingar í síma 50595.
| ýmislegt |
Vistunarheimili
- Öskjuhlíðarskóli
Okkur vantar vistunarheimili á Stór-
Reykjavíkursvæðinu fyrir tvo nemendur utan
af landi, sem stunda nám við Öskjuhlíðarskól-
ann nú í vetur.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag og
greiðslur veitir félagsráðgjafi við skólann í
síma 689740 fyrir hádegi.
Langholtssöfnuður
Aðalfundur safnaðarins verður haldinn í safn-
aðarheimilinu Sólheimum 15 í dag, laugar-
daginn 8. október kl. 4 síðdegis.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin.
Hljóðfæraleikarar
Stjórn og trúnaðarmannaráð Félags
íslenskra hljómlistarmanna hefur ákveðið að
viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu við kjör
fulltrúa á 36. þing Alþýðusambands íslands.
Kjörnir verða 2 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Listar ásamt meðmælum 15 fullgildra félags-
manna verða að hafa borist kjörstjórn á skrif-
stofu félagsins á Laufásvegi 40 eigi síðar en
17. október nk.
Kjörstjórn.