Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 Ágúst Þórarins- son — Minning Fæddur 16. ágúst 1916 Dáinn 29. september 1988 Hann lést hér í sjúkrahúsinu 27. september sl., 72 ára að aldri, eftir frækilega baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Með æðruleysi trú og þolgæði tók hann sínum örlögum. Eins og hann oft sem sjómaður varð að kljúfa bratta báru, heyja erfíðan róður, en náði heill í höfn, eins var hans seinasta för hér í mannlegu samfélagi traust og örugg til þeirr- ar hafnar sem mannkyn stefnir að eftir æviferð hér á jörð. Tilgangur lífsins var Ágústi ekki hulinn, skiln- ingur hans og trúaröryggi vísaði honum rétta leið, var hans áttaviti. Við hittumst oft bæði á förnum vegi og eins í starfí. Um 20 ára skeið áttum við samleið í Lions- klúbbi Stykkishólms. Þar unnum við saman og trúðum því að um leið værum við að vinna Hólminum gagn, bænum sem við bárum fyrir bijósti og þráðum velferð hans. Alltaf þegar til hans var kallað mætti hann og lagði lið og seinasta vetur mætti hann á hverjum fundi, þótt þá væri baráttan við sjúk- dóminn hafín. Það sást ekki á Ágústi að nein æðra væri til stað- ar. Bros hans og það sem hann lagði til mála, handtök hans og kveðja var slík að hún yljaði sam- ferðamanninum. Hann var góður þegn okkar lands og hvar sem hann kom hafði hann bætandi áhrif. Þannig kom hann mér fyrst fyrir sjónir þegar við hittumst fyrir um 40 árum og þannig skildum við tveim dögum fyrir andlát hans þeg- ar ég færði honum þakkir og kveðju okkar Lionsmanna á sjúkrabeð. Hans hlýja kveðja þá, þakklæti og skilaboð til félaganna, verður lengi ofarlega í huga mínum og Ágústar verður gott að minnast. Hann barst ekki mikið á en var því mun traust- ari. Hann kom hingað sem skip- verji á nafna sinn mb. Ágúst Þórar- insson, var þar stýrimaður. Eftir þá komu varð Hólmurinn hans heimahöfn. Hér búsetti hann sig, giftist góðri og samhentri konu og þegar sjómennskunni lauk sneri hann sér að smíðum og vann lengi í Skipasmíðastöðinni Skipavík, eða þar til kraftar hans dvínuðu. Þar sem annars staðar vann hann sín störf af alúð. Þau hjónin María Bæringsdóttir frá Bjamarhöfn ög hann eignuðust tvær dætur sem nú eru uppkomnar og eiga heimili. Góður og gegn borgari kveður. Lionsfélagar þakka honum trygga og góða samfylgd. Stykkishólmur sér á bak nýtum og góðum borgara og við góðum félaga. Góður Guð fylgi honum á eilífðarbraut. Ástvin- um hans sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Lionsklúbbur Stykkishólms Ámi Helgason Ávallt er það svo að þegar maður kveður vin hinstu kveðju verður maður þess áskynja að í þeim hólf- um hugans sem geyma vináttu og væntumþykju verður einskonar uppstokkun. Vinur er horfínn og ekkert mun nokkum tíma fylla hólf hans. Því rými verður ekki öðrum úthlutað, þar situr minningin ein eftir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR fyrrverandl Ijósmóðir frá Sólvöllum, Grundarflrði, andaðist ( Sjúkrahúsinu Stykkishólmi aðfaranótt 6. október. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, t INGÓLFUR GUÐMUNDSSON húsasmrðameistari, Sörlaskjóli 6, er látinn. Karftas Magnúsdóttir. t Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir, JÓN JÓNSSON, áöur til helmllis f Skaptahlfð 10, Reykjavfk, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík þann 6. október. Laufey Jóhannsdóttlr, Jóhann Jónsson, Sólvelg Gunnarsdóttir. t Þökkum öllum innilega fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, KJARTANS ÞORKELSSONAR, sem var jarðsettur þann 16. september siðastliðinn. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Sjúkrahúsi Akra- ness. Krlstfn KJartansdóttlr, Björn Kjartansson, Guörún Kjartansdóttir, Þorkell Kjartansson, Asmundur Kjartansson, Anna KJartansdóttlr, Ragnheiður Kjartansdóttlr, Halldór Kjartansson, Svanborg KJartansdóttlr Sú minning sem hjá mér dvelur um vin minn Ágúst Þórarinsson er ákaflega björt og full þakklætis. Þakklætis yfír því að hafa verið honum samferða um skeið og feng- ið til þess færi að kynnast manni, sem aldrei hallaði á nokkum mann. Ávallt reiðubúinn að láta gott af sér leiða og miðla einungis góðu til samferðamannanna, án þess að telja það nokkum tíma sjálfum sér til tekna né til að hælast um af. í þessu sambandi riíjast upp saga af ungum manni úr heimavist Gagnfræðaskóla Stykkishólms. Ungum manni er stóð hnugginn yfír pjönkum sínum og pinklum og beið eftir fari heim, eftir brottvísun úr skóla. Unglingur í þessum spor- um er sjaldnast jákvæður í hugsun. Þá leitar ekki á hugann sjálfs- gagnrýni heldur miklu frekar hat- ur, illgimi og hefndarþorsti. Og all- ir vita að það hugarfar elur ekki af sér gæfumann. Til þess að svo megi verða þarf til að koma stuðn- ingur utanfrá. Stuðningur þeirra sem eiga í bijósti sér tilfínningar sem brætt geta andúð og illgimi. Það var mín hamingja einmitt á því augnabliki sem áður er nefnt að fá tækifæri. Það tækifæri veittu mér tiltölulega ókunnug hjón, þau María og Ágúst. Þessa sögu þekkja marg- ir, en fæstir gera sér grein fyrir mikilvægi þessara atburða í minni lífssögu. Nú þegar kveðjustund er upprunnin skal þetta þakkað þó í fátæklegum orðum sé. Aðdragandinn að brottför Ágúst- ar héðan var nokkuð langur en þrátt fyrir það og alla þá erfíðleika sem það olli honum og hans kæmstu vinum æðraðist hann aldrei. Hann fór héðan sáttur. Sáttur við menn og málleysingja. Sáttur við lífið og dauðann. Fram á síðustu stundu var hugsunin einatt sú að gera nú gott úr öllu. Okkur sem enn um sinn dveljum jarðríkið er falinn fjársjóður, sem er minning um góðan dreng. Og um leið og við biðjum algóðan Guð um að vemda með okkur þessa minningu óskum við þess að okkur Fæddur 21. febrúar 1904 Dáinn 25. september 1988 Hinn mikli heiðursmaður og ís- landsvinur lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn þann 25. septem- ber sl. eftir stutta en erfíða sjúkra- húsvist. Jens fæddist í Stokkemarket á Lálandi, var hann einkasonur for- eldra sinna og hjá þeim ólst hann upp og kynntist snemma vinnu, verzlun og viðskiptum en faðir hans rak um langt árabil verzlun og við- skipti í Stokkemarket. Þar lauk Jens sínu bamaskólanámi og síðan lærlingsnámi hjá föður sínum, að því loknu fór hann til Kaupmanna- hafnar og lauk þar námi við Danska verzlunarskólann, síðan fór hann til London til framhaldsnáms. í London kynntist hann þeirri mikilhæfu og glæsilegu stúlku sem síðar varð eiginkona hans. Þessi fallega stúlka var íslensk, Karilla Bjömsdóttir, dóttir Bjöms Ólafs- sonar augnlæknis og Sigrúnar ísleifsdóttur í Reykjavík. Þau Kar- illa og Jens héldu nánu sambandi og giftust síðar, settust að í Nyköb- megi takast að nýta okkur hana til lærdóms og mannbóta. Við Maríu, fóstru mina, við dæt- umar Hörpu og Árþóru, við bama- bömin, við alla ættingja og vinnufé- laga vil ég segja þetta: Nú á þessum dimmu dögum látum við bjarta minningu lýsa okkur og styrkja. Berirðu kvöld þér í bijósti blæði í sál þinni undir leitaðu að öðrum sem líða létt þeirra þungbæru stundir. Næði nepjan um sál þér nístistu af rokveðursöldum skýldu þá öðrum sem skjálfa skapaðu yl handa köldum. Kijúptu með allt sem þig angrar að annarra þrautabeði þá veiður heil sérhver holund og hugurinn þrunginn af gleði. (Höf. óþekktur). Guð blessi ykkur öll. Ingi Hans Kveðjuorð Nú héðan á burt í friði ég fer ó, faðir að vilja þínum í hug er mér rótt og hjartað er af harminum læknað sínum. Sem hést þú mér, Drottinn hægan blund ég hlýt nú í dauða mínum. Stundarglasið er útrunnið, komið er að leiðarlokum í þessu jarðneska lífí. Baráttu við erfíðan sjúkdóm lokið. En minningin lifír, björt, hlý og full af trú, sigrum og ótrúlegri seiglu. Minning um mann sem að lok- inni sjúkdómsgreiningu hóf baráttu sína með harm í hjarta, en ekkert gat bugað hann, aldrei var kvartað né efast um að fullur sigur ynnist í baráttunni. Enginn varð fyrir óþægindum hans vegna og fullri reisn var haldið til hins síðasta. Með Guðs hjálp, trú sinni og lífsvon tókst honum að lengja þann tíma sem honum auðnaðist að eiga með fjölskyldu sinni, sem hann unni svo mjög og bar alla tíð svo fyrir bijósti. En er sumri tók að halla dvínaði þrótturinn smátt og smátt og síðustu vikuna dvaldi hann í sjúkra- húsi St. Franciskussystra þrotinn að kröftum, en ekki sigraður, held- ur sáttur við allt og sáttur við Guð sinn um að nú væri hann. orðin hvíldar þurfí. Ágúst Þórarinsson sofnaði hæg- um blundi að morgni 29. september sl. tilbúinn að leggja í ferðina miklu sem bíður okkar allra að lokum. Halldór Ágúst Þórarinsson, en svo hét hann fullu nafni, fæddist í Bol- ungarvík 16. ágúst 1916, sonur Þórarins Jónssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Átta systkini átti Ágúst og lifa hann Ingveldur sem býr í Bolungarvík, Bjartur sem dvel- ur á heimili aldraðra á Siglufirði ing á Falstri og þar hófu þau sam- an sitt lífsstarf. Jens var einstakur maður, dreng- ur góður, víðsýnn höfðingi með mikinn viljastyrk, ótrúlega fljótur að skilja viðfangsefnin og taka rétt- ar ákvarðanir. Hann rak um- fangsmikla verzlun og olíuviðskipti um hálfrar aldar skeið. Jens var mikill íslandsvinur og í áraraðir ólaunaður ræðismaður Islands í Nyköbing. Þau Jens og Karilla eign- uðust tvö böm, Pétur og Sigrúnu, sem bæði eru gift og búa í Dan- mörku, bamabömin eru sex. Jens var einstaklega gestrisinn og mikill höfðingi heim að sækja og fjölmargir íslendingar sóttu þau hjón heim og eiga um það stórkost- legar minningar hvort sem þeir dvöldu á heimili þeirra í Nyköbing, á búgarðinum Langebæk eða í sum- arhúsinu við Marielyst. Jens hafði alla tíð mikla ánægju af því að heimsækja ísland og hér átti hann marga góða og trygga vini. Við sem þetta skrifum viljum með þakklæti í huga minnast þeirra mörgu ógleymanlegu stunda sem við nutum að vera með Jens í gegn- og Sigurður í Reykjavík. Kært var með þeim bræðmm Ágústi og Sig- urði og alltaf stóð heimili Margrétar og Sigurðar opið Ágústi í hans mörgu og erfíðu læknisferðum til Reykjavíkur. Móður sína missti Ágúst sex ára gamall, dvaldi hann eftir það á heimili afa síns. En hún var óvæg lífsbaráttan á fyrri hluta þessarar aldar og ólíklegt er að sú barátta hafí ekki markað spor á unglinginn sem fór alfarinn að heiman eftir fermingardaginn. Ifyrsta árið dvaldi hann í sveit, en eftir það hóf hann að stunda sjósókn fímmtán ára gamall og því hélt hann áfram sleitulaust á fjórða tug ára eða til ársins 1966 er hann hóf störf í skipasmíðastöðinni Skipavík, en þar starfaði hann síðan í tæp tuttugu ár, eða svo lengi sem heilsan leyfði. Til Stykkishólms kom Ágúst að loknu fískimannsprófí frá Stýri- mannaskólanum árið 1947, þá sem stýrimaður á vélbátnum Ágústi Þórarinssyni. Og hér fann hann lífshamingju sína, er hann hitti konuefni sitt, Maríu Bæringsdóttur. Héldu þau brúðkaup sitt 11. nóvem- ber 1950, áttu þau saman 38 góð og gæfurík ár. Eignuðust þau hjón tvær dætur, Árþóru og Hörpu, og eru bama- bömin orðin þijú, augasteinar afa og ömmu. Ekki fór Ágúst víða án Maju sinnar og þau vom aufúsugestir á heimíli okkar hjóna. Vinátta Ágúst- ar og yngsta mágs hans var fölskvalaus. alla tíð, og aldrei brá þar skugga á. Nokkur aldursmunur var á okkur Ágústi, hann elstur en ég yngst af tengdabömum Árþóm og Bærings á Borg. En aldursmun- ur og lífsreynsla hans kom ekki í veg fyrir að við lærðum hvort ann- að að þekkja, vinátta okkar óx og dafnaði jafnt og þétt þá rúmlega tvo áratugi sem við áttum samleið. Ég fann alltaf betur og betur hvílíkur mannkostamaður Ágúst var og mér þótti æ vænna um svila minn eftir því sem árin liðu og þvílíkan kjark og þrótt hann sýndi í veikindum sínum, því gleymir eng- inn sem á horfði og með fylgdist, þar fór sannarlega vestfírsk hetja. Af framkomu hans getum við ö!l nokkuð lært. Ég veit að Ágúst minn fær góða heimkomu. Tengdaforeldrar og tengdafólk kveður nú með söknuði góðan dreng og kæran vin, en minningin lifír um ókominn tíma. Maríu og dætr- unum, tengdasonum og bamaböm- unum ungu votta ég samúð og bið Guð að blessa þau og styrkja í sorg og söknuði. Fari elskulegur, stað- fastur vinur í friði, friður Guðs hann blessi, hafí hann þökk fyrir allt. Sesselja Pálsdóttir um árin, bæði í Danmörku og hér á íslandi, ótal ferðalaga, sérstak- lega allra gamlárskvöldanna með Jens og Qölskyldu hans þar sem allir sungu á íslensku „Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka.“ Halla og Óli Jens Andersen kaupnmður- Minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.