Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 44

Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 Ólympíumót í brids að hefjast: Skiljum Norðurlanda- titilsflaggið eftir heima -segir Hjalti Elíasson fyrirliði íslenska landsliðsins ÓLYMPlUMÓTIÐ í bríds hefst i Feneyjum á Ítalíu um helgina og sendir Island lið til keppni bæði í opnum flokki og kvenna- flokki. 57 lönd keppa í opna flokknum og 39 lönd i kvenna- flokki. Mótið, sem stendur yfir i tvær vikur, verður sett i dag, laugardag, en spilamennska hefst á sunnudag. Islendingar eru Norðurlanda- meistarar í brids og náðu 4. sæti á síðasta Evrópumóti og því búast rnargir við góðum árangri á Ólympíumótinu. „Við ætlum að skilja Norðurlandameistaratitils- flaggið eftir heima og þótt liðið sé nokkuð vel undirbúið undir Ólympíumótið er það engin trygg- ing fyrir góðum árangri," sagði Hjalti Elíasson landsliðsþjálfari í samtali við Morgunblaðið. Á Ólympíumótinu er liðunum í opna flokknum skipt í tvo riðla og liðin spila einfalda umferð með 20 spila leikjum. Fjögur efstu lið- in í hvorum riðli fara áfram í úrsli- takeppni. Hjalti sagði aðspurður að það væri alls ekki raunhæft að búast við því að íslenska liðið komist í úrslitakeppnina. „Upp- bygging landsliðsins er langtíma- verkefni, þótt það hafi náð góðum árangri síðustu missiri. Það gæti verið raunhæft að stfla uppá úr- slitasæti á næsta Ólympíumóti eftir Qögur ár, sagði Hjalti. Hann sagði að undir eðlilegum kringumstæðum ætti liðið að vera rétt ofan við miðju í sínum riðli, og ef vel gengi og aðstæður á mótsstað yrði liðinu í hag gæti það orðið ofar. „Þótt við yrðum Norðurlandameistarar í sumar erum við ekki heimsmeistarar og Norðurlandatitillinn gæti raunar orðið okkur fjötur um fót á Ítalíu vegna þess að spilurunum fínnst ef til vill að gerðar séu til þeirra meiri kröfur en ella. Ég hef ítrek- að það að ég krefst þess aðeins að spilaramir geri sitt besta. Allt annað er aðeins útreikningur og samanburður og þegar komið er upp í þennan styrkleikaflokk er fljótt að hlaupa á 10 sætum til eða ftá,“ sagði Hjalti. íslenska liðið er skipað Guð- laugi R. Jóhannssyni, Émi Am- þórssyni, Karli Sigurhjartarsyni, Sævari Þorbjömssjmi, Jóni Bald- urssyni og Val Sigurðssyni. Hjalti Elíasson er liðsstjóri og Sigmund- ur Stefánsson farastjóri. ísland er í riðli með Mexico, Hollensku Antillaeyjum, Trinidad & Tobago, Zimbabwe, Guadeloupe, írlandi, Ítalíu, Jórdaníu, Bretlandi, Port- úgal, Brasilíu, Surinam, Thail- andi, Kína, Finnlandi, Malasíu, Egyptalandi, Frakklandi, Sviss, Indónesíu, Nýja Sjálandi, Ung- veijalandi, Danmörku, Marokkó, Indlandi, Líbanon, Kanada og Pakistan. Kvennaliðið er skipað Önnu Þóm Jónsdóttur, Erlu Siguijóns- dóttur, Esther Jakobsdóttur, Hjördísi Eyþórsdóttur, Kristjönu Steingrímsdóttur og Valgerði Kristjónsdóttur. Fyrirliði er Jakob R. Möller. Kvennaflokknum er skipt í 3 riðla, og með íslandi spila Indland, Kína, Ástralía, Spánn, San Maríno, Singapore, Holland, Egyptaland, Argentína, Mexico, Svíþjóð og Bretland. Þegar Hjalti Elíasson var spurður um hvaða lið væm sigur- stranglegust, sagði hann að marg- ir væm um boðið. Bandaríkja- menn, sem em ríkjandi heims- meistarar, ættu þó mesta mögu- leika en tugur þjóða gæti unnið mótið, og allt færi eftir því hveij- ir yrðu í bestu formi. Hann nefndi Svía sem em Evrópumeistarar, Breta og Indveija. íslenska kvennalandsliðið á Ólympíumótinu í bríds. Frá vinstrí eru Valgerður Krístjónsdóttir, Kristjana Steingrimsdóttir, Jakob R. Möller fyrirliði, Hjördís Eyþórsdóttir, Anna Þóra Jónsdóttir, Esther Jakobsdóttir og Erla Sigurjónsdóttir. Islenska Ólympíulandsliðið í bríds. Frá vinstrí eru Örn Arnþórs- son, Hjalti Elíasson, Karl Sigurþjartarson, Jón Baldursson, Valur Sigurðsson, Sigmundur Stefánsson, Guðlaugur R. Jóhannsson og Sævar Þorbjömsson. Gömlu dansarnir f Félagsheimili Hreyfils fkvöld kl. 21 .OO Hljómsvelt Jóns Slgurðssonar og söngkonan Hjördís Geirs. Aðgöngumiðar í síma 685520 frá kl. 18.00. Alllr valkomnlr Eldridansaklúbburinn Elding Næsta ball verður 22. okt. GUÐMUNDUR HAUKUR Leikur í kvöld «HOTEL« FriB imlyhrU. 21.00 - A6gangs«yhr kr. 3M - tí U 2100 SÁ sveitaballi í gærí BROADWAY 700 kr. + 20 ára LOKAÐ Þökkum gestum okkar ánægjuleg viðskipti. (■▼I IðPAl =j= ' 1 Guömundur Ingólfsson og HögniJónsson OPIÐ HÚS í KVÖLD frá kl. 18.00-03.00 Smiöjuveg 14d. Sími 78630 Kópavogi BINGQ! Hefst kl. 13.30 Aðalvinningur að verðmæti 100 bús,. kr. íí Heildarverðmæti vinninqa um 300 þús. kr. TEMPLARAHOLLIN Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.