Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 08.10.1988, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. ^ Morgunblaðið/RAX Skreiðarverkun íhaustmánuði ÞAÐ er ekkert ævintýri lengur að verka skreið. Nígeríumenn eiga erfitt með að borga fyrir fiskmetið, en viðunandi verð feest fyrir skreið á Ítalíu. Alltaf fellur þó til einhver fiskur í skreiðina, en hvort hún verður borðuð í Nígeríu eða Ítalíu er ekki enn Jjóst. Það vita fljótlega þeir Þorlákshafiiarbúar, sem í gær norpuðu við að hengja skreiðina upp í norðangarranum á miðjum haustmánuði. Félag íslenzkra iðnrekenda: Bankar taka 30-35% raun- vexti af viðskiptavíxlum Bankarnir misnota frelsið herfilega, segir Víglundur Þorsteinsson formaður FÍI Sadveiðar: Heiðrún EA fékk 80 tonn í Seyðisfírði HEIÐRÚN EA var í gærkvöldi búin að veiða 80 tonn af sfid í Seyðisfirði. Að sögn Gylfa Bald- vinssonar skipstjóra á Heiðrúnu. er sildin um 30 sentímetra löng og þar yfir. Heiðrún fékk nót í skrúfuna í gær og nót Amþórs EA rifnaði. Amþór hafði ekkert veitt í gær- kvöldi og ætlunin var að hann drægi Heiðrúnu til hafnar í Seyðisfírði, að sögn Gylfa. Eiturefii- ið PCB í kræklingi NIÐURSTÖÐUR úr rannsókn háskólans í Köln á þvi hvort eit- urefnið PCB Askarel finnist í kræklingi og seti við Norðfjörð og Fáskrúðsfjörð eru þær, að töluvert magn af PCB var að finna í krækfingnum og er fólk sterklega varað við að leggja sér krækling til munns úr Qörunum við þessa firði. Sýnin voru tekin úr fjöruborðinu og neðansjávar við Fáskrúðsfjörð og Norðflörð í vor. Umsjón með því verki hafði Gunnar Steinn deild- arlíffræðingur hjá Hollustuvemd ríkisins. Vitað var að í öskuhaugun- um við Neskaupstað og Búðir höfðu þéttar og spennar með PCB verið urðaðir. Birgir Þórðarson hjá Hollustu- vemd segir að niðurstöðumar sýni að 13 sinnum meira magn var af PCB í kræklingi sem tekinn var í Qömnni inneftir firðinum við Norð- §örð heldur en í samanburðarsýn- um teknum hinum megin í fírðinum. Við FáskrúðsQörð var um aðeins minna magn af PCB að ræða í kræklingnum. Hann segir að þótt magnið sem fannst í kræklingnum sé í sjálfu sér fyrir neðan sett hættumörk sé ástæða 'til að vara fólk sterklega við að leggja sér kræklingtil munns af þessum svæð- um. „Það má geta þess að um helm- ingi meira magn af PCB fínnst í kræklingi við strendur Nórðursjáv- ar. Rekja má að hluta til þann mikla seladauða sem orðið hefur á þeim sfóðum til þessarar mengunar. Sel- urinn étur kræklinginn og þar með sest PCB efnið að í honum og eyði- leggur ónæmiskerfí hans. Þar með eiga ýmsir sjúkdómar sem heija á selinn greiðari aðgang að honum," segir Birgir. UPPSAGNIR starfsfólks í fyrir- tækjum eru nú sexfalt fleiri en á sama tima í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumála- stofnun félagsmálaráðuneytisins voru tilkynntar uppsagnir til þeirra 74 á tímabilinu júlí, ágúst RAUNVEXTIR sem viðskipta- bankarnir taka nú af viðskipta- víxlum eru oftast á bilinu 30 til 35 prósent, að mati Félags íslenskra iðnrekenda. Þetta kem- ur fram í bréfi, sem Víglundur Þorsteinsson formaður FII sendi Jóhannesi Nordal seðlabanka- stjóra síðastliðinn fimmtudag. Víglundur segir bankana nota sér þörf atvinnulífsins fyrir rekstr- arfé til þess að brúa vaxtamun inn- og útlána. Hann segir þetta jafiigilda dauðadómi fyrir fram- Ieiðslufyrirtækin, ef ekki verði snarlega breyting á. Hæstu raun- vextimir sem um ræðir eru 37,6% af 30 daga víxli, sem velt er í eitt ár í Alþýðubanka. Lægstu raun- og september í fyrra. Sömu mán- uði í ár voru þessar tilkynningar hinsvegar 533 talsins. Óskar Hallgrímsson forstöðu- maður Vinnumálastofnunar segir að tilkynningar um uppsagnir starfsfólks séu stöðugt að streyma vextimir em af 90 daga víxli, 25,8% í Iðnaðarbanka. f bréfínu, sem Félag íslenskra iðn- rekenda sendi Jóhannesi Nordal á fímmtudaginn, er gefið nákvæmt. yfírlit yfír raunvaxtatöku viðskipta- bankanna af viðskiptavíxlum. Taldir eru raunvextir hvers banka fyrir sig af víxlum til 30 daga, 45 daga, 60 daga og 90 daga. Við útreikningana er miðað við 100.000 króna við- skiptavíxil sem velt er í eitt ár og 12% verðbólgu. Stimpilgjald er ekki tekið inn í útreikningana, aðeins kaupgengi miðað við l.september 1988, afgreiðslugjald og fastur kostnaður. A afgreiðslugjaldinu er lágmark og vegur það ásamt fostum kostnaði hærra á víxlum fyrir lægri inn til þeirra. Samkvæmt lögum er öllum fyrirtækjum skylt að tilkynna uppsagnir starfsfólks ef um flóra eða fleiri er að ræða. Mun meira hefur verið um gjald- þrot fyrirtælq'a í ár en á sama tíma í fyrra. Er stór hluti af fyrrgreind- upphæðum. Þannig sýna tölumar raunvexti í heilt ár af víxlunurn. Sé tekið dæmi af 60 daga víxli, sem mun vera algengasta formið, taka bankamir raunvexti sem hér segir (útreikningur FÍI): Landsbanki 33,5%, Verslunarbanki 33,1%, Al- þýðubanki 34,3%, Búnaðarbanki 32,0%, sparisjóðir 32,1%, Útvegs- banki 32,9%, Iðnaðarbanki 30,5% og Samvinnubanki 32,6%. „Það er ljóst að raunvaxtataka bankanna af viðskiptavíxlum, sem era eitt helsta rekstrarlánaformið í atvinnulífínu, hefur verið gifurlega mikil núna síðustu vikurnar,“ sagði Víglundur Þorsteinsson í samtali við Morgunblaðið. Hann kvað þessa raunvexti vera hærri núna en þeir hefðu verið áður og þeir hefðu farið hækkandi síðustu vikur. „Það segir sig sjálft, að þegar raunvaxtatakan um tilkynningum til kominn vegna gjaldþrota fyrirtælqa. Útlit er fyrir að fjöldi gjaldþrota sé síður en svo í rénun þannig að búast má við að tilkynningar um uppsagnir haldi áfram að streyma inn til Vinnu- málastofnunar. með öllum kostnaði er orðin 30 til 35 prósent, þá er eitthvað meira en lítið að. Þetta verður ekki lengur skýrt með eðlilegum viðskiptasjónar- miðum á meðan önnur útlánaform eru með innan við tíu prósenta raun- vöxtum. Þegar þetta eina útlánaform er farið að telja raunvexti í tugum prósenta, þá læðist að manni sá grunur, að viðskiptabankamir séu að reyna að ná upp á þessum vöxtum þörf sinni fyrir þann mikla vaxtamun sem er orðinn í bönkunum í dag. Þeir gera þetta kannski einmitt í skjóli þess, að atvinnulífíð má ekki við neinni traflun á sinni rekstrar- fjármögnun. Það er eins og að taka vatn frá mannsiíkamanum." Víglundur sagði þetta verða að breytast veralega og kvað iðnrekend- ur bíða mjög spennta eftir því, að viðskiptabankamir breyti vaxta- ákvörðunum sínum eftir helgina. „Það hljóta allir að sjá, að það að krefla atvinnufyrirtækin um 30 pró- senta raunvexti eða meira er eins og að skera fyrirtækin á háls," sagði Víglundur. „Það verður að segjast eins og er, að viðskiptabankamir eru þama að misnota frelsið herfílega." Víglundur sagði að þessir háu vextir hefðu þegar haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir iðnaðinn í landinu. Víða væri orðið mjög erfítt fyrir framleiðslufyrirtækin að ná tekjum fyrir þessum vaxtagreiðslum. „Þetta getur ekki þýtt annað en dauða fyr- ir framleiðslufyrirtækin," sagði Víglundur Þorsteinsson. Vinnumálastofiiun: Sexfedt fleiri uppsagnir en í fyrra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.