Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 5
GOTT FÓLK / SlA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 NÚREIKNINGUR IÐNAÐARBANKANS ER STÓRFRÉTT FYRIR FYRIRTÆKI C 5 Með Núreikningi eiga fyrirtæki nú kost á betri bankaþjónustu en áður. Núreikningur er sniðinn að þörfum fyrirtækja, hvort sem það eru stór fyrirtæki eða einkarekstur, en öll geta þau haft mikinn hag af nýjum Núreikningi Iðnaðarbank- ans. 60% VAXTAHiEKKUN Fyrst skal nefna, að með Núreikningi fá fyrir- tæki að meðaltali 60% vaxtahækkun á veltu- reikningi því vextir eru reiknaðir af stöðu hvers dags. Um hver mánaðamót fá handhafar Nú- reiknings yfirlit um heildarviðskipti fyrirtækisins við Iðnaðarbankann og með tölvuþjónustu Núreiknings geta fyrirtæki m.a. fengið færslur Núreiknings á tölvutæku formi. NÝJUNGAR í TÉKKAPRENTUN Ýmsar nýjungar í tékkaprentun fylgja Núreikn- ingi - fyrirtækjum til góða. Má þar nefna að fyrir- tæki getur fengið merki sitt sérprentað á hvert tékkaeyðublað og einnig er hægt að fá staka tékka í margriti til hagræðingar fyrir bókhald. Einn aðili innan bankans, svokallaður Núreikn- ingsfulltrúi, "annast öll samskipti við fyrirtækið varðandi Núreikning og þá þjónustu, sem þar er boðið upp á. / ' IB-LÍNA IÐNAÐARBANKANS - BEINT SAMBAND VIÐ BANKANN Annar merkilegur fylgifiskur Núreiknings er ný tölvulína Iðnaðarbankans, eða IB-lína eins og hún nefnist. Með henni geta fyrirtæki tölvutengst bankanum beint og þannig sparað símhringingar og dýrmætan tíma sem fer í ferðir í bankann. Með IB-línu fást upplýsingar um nýjustu stöðu reikninga og yfirlit. Hægt er að millifæra milli reikninga í Iðnaðarbankanum og öðrum bönk- um, greiða gíróseðla, víxla og afborganir lána. Einnig er hægt að fá á tölvuskjáinn upplýsinga- töflur um vexti, gengi, gjaldskrá bankans, kaup- gengi og vísitölur. Með IB-línu færð þú beint samband við bankann. Hafðu samband við næsta útibú Iðnaðarbank- ans og fáðu allar nánari upplýsingar um Nú- reikning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.