Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 32
32 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 St|örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson SporÖdreki ogBog- maöur í dag ætla ég að fjalla um samband Sporðdreka (23. okt.-23. nóv.) og Bogmanns (22. nóv.-21. des.). Sérfrœöingur og fjölfrœöingur Þessi merki eru ólík og eiga þvi ekki vel saman nema önn- ur merki séu þeim mun líkari. Samband þeirra kallar þvi á málamiðlun og getur ein- kennst af togstreitu. Ef vel tekst til geta þessi merki hins vegar bætt hvort annað upp. Sporðdrekinn Sporðdrekinn þarf að einbeita sér að afmörkuðum málum. Hann þarf alltaf timabundna einveru annað slagið til að endumýja sig og hreinsa burt umhverfisáhrif. Hann er dulur og varkár. Sporðdrekinn vill lifa sterkt og þarf djúp tengsl við aðra. I samböndum þýðir það allt eða ekkert. Hann er þvi krefjandi félagi, er ráðrík- ur og stjómsamur. BogmaÖurinn Bogmaðurinn þarf að fást við §ölbreytt og lifandi mál, stunda iþróttir eða ferðast og vera á hreyfingu í daglegu lifi. Hann þarf frelsi til að vikka sjóndeildarhring sinn. Bogmaðurinn er jákvæður í skapi og að öllu jöfnu léttur og hress. Hann er forvitinn, víðsýnn og leitandi. Logn- molla og vanabinding hentar honum illa. Einhcefni ogjjölhcefni Mögulegur árekstur er sá að þörf Bogmannsins fyrir fyöl- breytni getur rekist á þörf Sporðdrekans fyrir að kafa djúpt i afmörkuð mál. Frelsi og öryggi Þörf Bogmannsins fyrir frelsi og hreyfingu getur einnig rek- ist á þörf Sporðdrekans fyrir öryggi og staðfestu. Sporð- drekinn er stjómsamur og varkár og vill halda fast utan um sitt, en Bogmaðurinn finn- ur til innilokunarkenndar og fær köfnunartilfinningu ef aðrir ætla að stjóma honum. Upp gæti því komið togstreita milli frelsis- og nýjungaþarfar annars vegar og sljómsemi og staðfestu hins vegar. Alvara og léttleiki Hið ólíka skap getur einnig leitt til togstreitu. Annars vegar em jákvæð viðhorf Bogmannsins sem vill ekki gera of mikið úr einstökum málum og hins vegar alvara Sporðdrekans sem á til að velta sér uppúr einstökum málum. Og síðan geta komið upp ásakanir um annars veg- ar þyngsli og hins vegar kæruleysi. Hið dula og opna getur einnig rekist saman. Bogmaðurinn er opinskár og getur hneykslað hinn varkára Sporðdreka o.s.frv.. Gagnkvcem virðing Til að þessum merkjum gangi vel þurfa þau að virða þarfír hvort annars og gefa hvort öðru svigrúm til að rækta eig- in áhugamál. Ef þau virða þetta munu þau sjá að saman geta þau lært margt og bætt upp veikleika hvort annars. Samband þeirra getur því ver- ið þroskandi. Það þarf að ein- kennast af ferðalögum, þekk- ingarleit og nýjum verkefnum en jafnframt þurfa þau að gefa sér tíma til að vera útaf fyrir sig og taka ákveðin mál fyrir. Einnig er æskilegt að þau rækti saman eitthvert tómstundamál til að koma í _ veg fyrir að þau vaxi í sundur. GRETTIR GRETTIR, EF ÞO hagar þé^ , EINS CK5 PÓ S’ÉR.T HÚSGAGN ÞA UMQENGST ÉG Þ)G LÍXA SEÚV) ^— 1^-. húsgagm HA HA HA j MOOG FVNDlR, ) vJÓN r HOTANIR HAFA EKKI AHRIF> /MIG mm BRENDA STARR Fjárinn! Aflur D-mínus! LIFE MA5 IT5 5UN5HINE ANP IT5 RAlN,SIR..IT5 PAY5 ANC? IT5 NI6HT5JT5 PEAK5 ANP IT5 VALLEY5... Lífið býður upp á sól og regn herra .. . daga sína og nætur.. tinda sína og dali... Það rignir í kvöld í dalnum mínum! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Indverjinn frægi, Jaggy Shiv- dasani, fann ekki réttu vömina gegn þremur gröndum Jóns Baldurssonar í fyrsta spili í við- ureign þjóðanna á ÓL. Norður gefur: enginn á hættu. Vestur ♦ KG5 VK5 ♦ Á94 ♦ 86532 Norður ♦ D109842 VÁG72 ♦ G8 ♦ 9 II Austur ♦ 73 ♦ D108 ♦ KD6532 ♦ ÁG Suður ♦ Á6 ♦ 9643 ♦ 107 ♦ KD1074 í opna salnum fengu Guðlaug- ur R. Jóhannsson og Öm Am- þórsson að spila 2 spaða í NS, einn niður. Það var ágætur árangur því AV geta unnið 4 tígla. En sú „hætta" var fyrir hendi að AV fæm í 3 grönd, sem em vonlaus með spaðasókn. Lokaður salur. Vestur Norður Austur Suður — Pass 1 tigull Pass 1 hjarta 1 spaði 2 tíglar 2 spaðar 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: spaðatía. Svar Jóns á einu hjarta er oftast byggt á lit, en sögnin er stundum notuð á spil með lauf- lit og 11-12 punkta, þvi tvö lauf beint er geimkrafa og gervi- sögn. Shivdasani í suður drap fyrsta slaginn á spaðaás og hefði nú getað hnekkt samningnum með því að spila spaða um hæl. Jón fengi þá aðeins sex slagi á tígul, einn á lauf og einn á spaða. Byijendum er kennt að svara makker i sama lit, en það er langt siðan Shivdasani var í þeim hópi og hann skipti yfir í lauf- kóng. Hann hefur reiknað með að Jón ætti fjórlit í spaða og ekki talið spaðasókninga væn- lega. En nú vannst tími til að sækja 9. slaginn á hjarta og ís- land græddi því 8 IMPa i stað þess að tapa 3. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Kaup- mannahöfn í október kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meist- aranna Eduard Rosentalis, Sov- étríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og heimamannsins Bjarke Kristensen. 14. Rxf5! - exf5 15. Rd6+ - Bxd6 16. exd6+ - Kf7 17. He5! (Hvítur vinnur nú manninn til baka og svarta staðan verður ai- gjörlega vonlaus) 17. - Dc3 18. Dxd5+ - Kg6 19. h4 - h6 20. Hxf5! - Dxc2 (20. - Dxal er svar- að með 21. De4! - Dxcl+ 22. Kh2 og síðan fær svartur á sig ban- væna fráskák) 21. Df7+ - Kh7 22. Bxh6 og svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.