Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 / C 7 Samfélagið er sjúklingurinn minn GUÐJÓN MAGNÚSSON AÐSTOÐARLANDLÆKNIR í starfi sínu sem aðstoðarlandlæknir gætir Guðjón Magnússon þess ásamt Olafí Olafssyni landlækni, að heilbrigði landsmanna sé sem best borgið. Hann hefúr gegnt stöðunni í rúm átta ár og segist vissulega finna fyrir ábyrgðinni sem embættinu fylgi. „Eitt af því erfiðasta við þetta starf eru kröfúrnar sem það gerir. Við þurfúm að fylgjast vel með; hafa púlsinn á nýjungum í læknisfræði og öðrum greinum, fylgjast með breytingum í þjóðfélaginu. Ég spyr sjálfan mig stundum að því hverju ég hafi áorkað. Það er alltaf jafnmikið af óleystum málum og áhugaverðum hugmyndum á skrifborðinu. Ég tel mig eiga margt ógert hérog embættið býður upp á ótal möguleika. I rauninni er samfélagið minn sjúklingur og mér fellur hann vel, þó að ég fari á mis við þakklæti sjúklinga og aðstandenda sem gerir starf lækna svo ánægjulegt," segir Guðjón. E.._. ágúst 1944 í Reykjavík, sonur Magnúsar Jónssonar frá Stokks- eyri, sem er látinn, og Ölmu Einars- dóttur. Ég er alinn upp hjá móður minni og stjúpföður; Hirti Guð- mundssyni, í risíbúð á Bragagöt- unni. í hverfinu var mikill knatt- spymuáhugi og æðsta takmark okkar strákanna var að verða tíu ára og ganga í Val, sem ég og gerði. Þegar ég var 14 ára flutt- umst við inn í Heima. Þá gekk ég í Fram og hef verið Frammari síðan. Ég lék hand- og fótbolta með Fram en var í körfubolta i Ármanni. Ég eyddi miklum tíma í íþróttir allt þar til ég var byijaður í Háskólanum. Þegar leið á námið, var einfaldlega ekki tími til þess en í Háskólanum spilaði ég þó með ÍS í körfubolta og var fyrirliði þess þegar liðið komst upp í fyrstu deild. Félagsmálin tímafrek Skólaganga mín hófst í Mið- bæjarskólanum, sem var skemmti- legur skóli. Eftir landspróf fór ég í MR og útskrifaðist úr stærðfræði- deild 1964. Það voru engir læknar í ijölskyld- unni eða í kringum mig og ég hef í rauninni aldrei skilið afhveiju ég valdi læknisfræðina. Ég held að ein af ástæðunum hafi verið sú að ég hef alltaf verið mikill keppnismað- ur. .Námið var og er talið erfitt og ég hafði áhuga á náttúrufræði. Mér fannst læknisfræðin spennandi og hef ekki séð eftir valinu. Félagsmálin hafa alla tíð tekið mikið af mínum tíma. Á mennta- skólaárunum var ég mikið í íþrótt- um, var formaður iþróttafélags MR og í Háskólanum var ég formaður Félags læknanema, varaformaður Stúdentaráðs og formaður Utanrík- isnefndar, fyrir Vöku. Ég lauk námi í febrúar 1971 og hálfu ári síðar var ég kosinn ritari Læknafélags íslands. Arinbjörn Kolbeinsson þá- verandi formaður hafði áhuga á að fá ungan læknakandídat inn i stjórnina. Ég sló til og þetta var einstakt tækifæri að fá að starfa með þeim ágætu mönnum sem í stjórninni sátu á miklum átakatím- um í heilbrigðismálum." Að loknu kandídatsárinu vann Guðjón fyrst á barnadeild í hálft ár og síðan sem aðstoðarborgar- læknir. Hann fór síðan norður á Sauðárkrók í eitt ár. „Mér féll vinn- an þar mjög vel en langaði í sérnám. Vegna þess hversu mikið ég vann að félagsmálum, fékk ég áhuga á stjórnun heilbrigðismála og valdi mér sérnám í samræmi við það. Tíminn liðið hratt Guðjón settist á skólabekk í Edin- borgarháskóla og veturinn 1974- 1975 lagði hann stund á samfélags- lækningar. „Námið var feikilega skemmtilegt, nemendurnir komu víðs vegar að og úr ýmsum greinum Morgunblaðið/Sverrir læknisfræðinnar. Að því loknu tók ég stefnuna á Svíþjóð, í sérnám i félagslækningum." Guðjón vann lengst af á Hudd- inge-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, sem er stærsta og fullkonmasta sjúkrahús Svía. Þar fór hann í skipulegt framhaldsnám i félags- lækningum. Hann lauk því námi 1979. Jafnhliða vann hann að dokt- orsritgerð sem hann varði við Karo- linska Institutet í Stokkhólmi í apríl 1980. Rannsóknin beindist að bráðamóttöku Huddinge-sjúkra- hússins. Fjöldi sjúklinga sem þang- að kom var nærri tvöfalt meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Guðjón athugaði samband heilsufars, notk- unar og framboðs á heilbrigðis- þjónustu. Sama vor var í fyrsta sinn aug- lýst staða aðstoðarlandlæknis. Guð- jón sótti um og fékk stöðuna. Hann er auk þess dósent við Læknadeild Háskóla Islands, þar sem hann hef- ur kennt félagslækningar frá 1982. „Mér finnst tíminn hafa iiðið óskap- lega hratt. Ég gerði mér vonir um að geta unnið meira að rannsóknum en raunin hefur orðið. Alltaf er ég þó með eitthvað í gangi.“ Er ánægður með starfíð Guðjón segir samstarf þeirra Ólafs Ólafssonar landlæknis hafa gengið vel. „Hinir ólíku persónuleik- ar okkar nýtast ágætlega í starf- inu. Ég tel mig hafa sett mitt mark á stöðu aðstoðarlandlæknis og er ánægður með starfið. En ég er ekki eins ánægður með þá aðstöðu sem okkur er búin. Okkar aðal- hlutverk er að fylgjast með um- fangi og gæðum heilbrigðisþjón- ustunnar. Benda á það sem miður fer og gera tillögur um úrbætur. Einnig að fylgjast með nýjungum, lyfjanotkun, starfí og starfsaðstöðu heilbrigðisstéttanna, svo eitthvað sé nefnt. Til þess að geta þetta þurfum við góðar upplýsingar. Þær eru ekki nægilegar í dag. Við stjórn- un á heilbrigðisþjónustu verður að setja upp markmið og nota nútíma upplýsingatækni. Heilbrigðisþjón- ustan felst í rauninni í þvi að út- hluta því sem er í boði sem réttlát- ast til almennings. Okkar skylda er að fylgjast með því að þessu réttlæti sé fullnægt; að þeir sem mest þurfi á þessari þjónustu að halda njóti hennar, t.d. aldraðir. Ýmsar aðrar úrbætur þarf að gera, m.a. auka heilsuvernd. Tíðarandinn vinnur með okkur hvað varðar heilsuvernd, nú er í tísku að stunda líkamsrækt, borða hollan mat og reykja ekki. Sjálfur reyni ég að vera á þessari bylgjulengd. íþróttir stunda ég enn, þó í minna mæli sé en á skólaárunum. Ég spila badminton tvisvar í viku, syndi, fer á skíði og í göngur. íþróttaiðkun er mjög gott ráð við streitu, sem óneitanlega kemur upp í þessu starfí. Hér eru verkefnin svo marg- vísleg að engir tveir dagar eru eins. Nokkuð dæmigert ljón Ég hef aldrei getað látið félags- málin eiga sig, ekki einu sinni þeg- ar ég var erlendis. Ég var t.d. einn af stofnendum Félags íslenskra lækna í Svíþjóð. Þegar ég kom heim hóf ég störf fyrir Rauða krossinn, fyrst í stjórn Reykajvíkurdeildar og síðan í aðalstjórn. Ég hef verið formaður Rauða kross Islands síðan 1985. Svo er ég í Rótaiý og spila bridds með gömlum skólafélögum. Ég er giftur skólastjóranum í Flataskóla í Garðabæ, Sigrúnu Gísladóttur. Við kynntumst um það leyti sem að við fórum að virða fyrir okkur hitt kynið; 16 ára menntskælingar. Við eigum þijá stráka, Arnar, 18 ára og 16 ára tvíbura, Halldór og Heiðar. Hressa og skemmtilega stráka sem ég hef mikla ánægju af. Það ríkir jafnræði á heimilinu; Sigrún er stjórnsöm en ég gef ekk- ert eftir enda fæddur í ljóninu. En ég tel að lýsingin á hinu dæmigerða ljóni eigi ágætlega við mig. Ljónið er stjórnsamt. Ég hef einnig mjög gaman af að grúska, mér hentar vel að fást við rannsóknir. Mér hættir til að hafa of mörg járn í eldinum, sem stafar af því að ég er greiðvikinn og á erfitt með að segja nei. Ég er alltof fús til að láta öðrum eftir minn tíma. Þar hefur ekki einu sinni „Time-manag- er“-námskeiðið komið mér til hjálp- ar. Ég les mjög mikið, mest fag- bækur og tímarit. Mér finnst gott að geta gripið í reyfara stöku sinn- um þó það sé alltof sjaldan. Helst eru það spennusögur og einn af mínum uppáhaldshöfundum er Desmond Bagley. Mikill tími í alþjóðaheilbrigðismál Gegnum árin hef ég ekki haft nægan tíma fyrir fjölskylduna. Hún sjá nœstu opnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.