Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 38
38 C MORGUNBLAÐŒ) VELVAKANDI SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 7?Harm át cxWo, 56ldcalcfeiierfcana í isskrápn- ann í moimælaskyni vi& efnaíníigsástanoliá i Fb'llcuid.'' Ég kom hingað að sunnan, en þú? Ég held ég sé búinn að róa hann. Ég kom með stórt kjötbein. Það verður gaman að sjá þegar hann vaknar? HÖGNI HREKKVÍSI Góð þjónusta Evrópuferða Til Velvakanda. Við hjónin áttum þess kost í haust að ferðast á vegum ferðaskrifstofunnar Evrópuferða. Ferðinni var heitir til Algarve í Portúgal en þangað höfðum við ekki komið áður. Skipulag ferðar- innar og þjónusta starfsfólks Evr- ópuferða var hreint til fyrirmynd- ar. Allt sem lofað var af þeirra hálfu stóðst og gott betur. Hótel og aðbúnaður var sérstaklega góð- ur. Ferðaskrifstofan Evrópuferðir á allt okkar þakklæti fyrir gott og vel heppnað sumarfrí. Hermann Ástvaldsson Á FÖRIMUM VEGI Síðasta íreisting* Krísts - Konungs- merkið á Alþingis- húsinu Kvikmyndin Síðasta freisting Krists, sem sýnd er í Laugar- ásbíói um þessar mundir, hefur vakið umtal og deilur. Sumir telja að þessi kvikmynd sé arg- asta guðlast og beri vott um ger- spillt hugarfar, aðrir að hún sé að vísu djörf en alls ekki eins klúr eða andstyggileg og margt annað myndeftii sem boðið er uppá. Fólk á förnum vegi sl. fimmtudag var spurt hvort það ætti að banna kvikmyndina Siðasta freisting Krists. Varla fyrir útvalda Þarf maður að vera útvalinn til að sjá þessa mynd? Fyrst prestarn- ir mega sjá hana hljótum við hin að mega sjá hana líka, sagði Jón S. Magnússon sem við hittum í Austurstræti. Annars hef ég engan áhuga á þessi mynd og hugsa að ég fari ekki að sjá hana. Mikill ljótleiki í heiminum Það er svo mikill ljótleiki í heim- inum að mér fínnst alveg ástæðu- laust að vera að framleiða meiri ljót- leika, eða er þessi mynd nokkuð annað? sagði Sigríður Hannesdóttir. Það er kannski ekki ástæða til að banna myndina en mér fínnst held- ur engin ástæða til að sýna svona myndir og sjálf ætla ég ekki að sjá hana. Mennirnir skapa svo mikið af illum hlutum. Hugsið ykkur bara Jón S. Magnússon Loftur Vilhjálmsson kjamorkuvopnin, til hvers annars eru þau en að deyða fólk og eyða heimsbyggðinni og hver sigrar í slíku stríði? Það ætti tvímælalaust að banna öll kjamorkuvopn. Fólk á sjálft að velja Fóklið á að velja hvort það vill sjá þessa mynd eða ekki, ég tel enga ástæðu til að banna hana, sagði Loftur Vilhjálmsson. Ég hef ekki ákveðið hvort ég sé hana eða ekki og hef reyndar lítin áhuga Víkverji skrifar að hefur verið í tízku um nokk- urra ára skeið að hamast gegn hvers konar mengun í lífi nútíma- fólks. Það er vel á meðan áttum er haldið í hugsun, orði og hegðan. En af einhverjum undarlegum ástæðum hefur hávaðamengun orð- ið útundan. Hún er þó sízt betri en aðrar tegundir mengunar. Víkverji fagnar því að nokkrir borgarar hafa tekið upp andóf gegn óþarfa hávaða í umhverfi og daglegu lífí okkar. Nú er svo komið, að þegar verka- menn og iðnáðarmenn eða aðrir em að störfum í borginni, kemur oft meiri hávaði úr útvarpstækjum en vinnutækjum, svo sem vélnöfmm, hömmm og sleggjum, og hefði það einhvem tíma þótt ótrúleg saga. Víkveiji hefur orðið vitni að því að íbúar við heila götu em undirlagðir hávaðamúsík, sem þeir hafa alls ekki beðið um, af því að verið er að gera við eitt húsið eða jafnvel aðeins verið að dytta að garðinum. Fólk, sem lá í sólbaði á svölum úti að sumarlagi einn bjartan sunnu- dagseftirmiðdag, ætlaði að hlusta á konzert í útvarpinu á lágu nótunum, en fékk ekki notið hans og varla hlustað á fréttir, af því að þakvið- gerðarmenn í nokkurra húsa fjar lægð stilltu tæki sín eins hátt og hægt var á allt aðra tegund af músík. Margir munu og kannast við það, að þegar vinnuflokkur still- ir bifreið upp nálægt vinnustað, skrúfar allar rúður niður en útvarp- ið upp á hæsta kraft og spillir svo öllu umhverfi sínu rneðan vinna stendur yfir. Fleiri dæmi mætti nefna. Fólk er ófrótt um rétt sinn til að kvarta undan slíkum hávaða á almanna- færi við löggæzlumenn, en hann mun ótvíræður. XXX Undarlegt er og það tiltæki verzlunareigenda að hafa síbyljuhávaða inni í búðum sínum og láta glymjandann helzt berast út á götuna. Víkveiji veit, að hann er ekki einn um það að forðast með öllu slíkar búðir. Einnig ættu kvik- myndahúsastjórar að gæta þess að æra ekki gesti sína, eins og stund- um vill brenna við, einkum í kynn- ingar- og auglýsingamyndum, sem sýndar eru á undan aðalmyndum. Víkveiji fór að sjá „Barflugur" um daginn. Þetta er mögnuð mynd, óhugnanleg og fyndin til skiptis, og vel er hún leikin. Einkum leikur Mickey Rourke aðalsöguhetjuna vel. Oheyrilegur drykkjuskapur og tilheyrandi áfengisböl einkennir myndina, en þó fannst Víkveija þetta mikla fyllirí stundum óekta, þ.e. það sá ekki alltaf mikið á sögu- hetjunum, þótt gífurlega mikið væri innbyrt, og aldrei virtust þær verða „þunnar", hvað þá timbraðar að marki. Á undan myndinni voru væntan- legar kvikmyndir kynntar, en sú kynning fór fyrir ofan garð og neð- an hjá Víkveija, því að hávaðinn var svo hrikalegur í tækjum kvik- myndahússins (máske rangt stillt- ur?), að hann var alveg miður sín á meðan, og svo var um fleiri, því að hann sá fólk stinga fingrum í eyru. xxx Og meðal annarra orða: „Miða- salan opnar klukkan hálfþrjú“ stóð á spjaldi í glugga á miðasöiu kvikmyndahússins. — Það er hægt að opna miðasölu, en hún opnar aldrei sjálf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.