Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 14
14 C seven SEAS VÍTAMÍN DAGLEGA GERIÐ GÆÐA SAMANBURÐ „ * • $9*8^' HVITLAUKS OLÍA OLÍAN ER ÞAÐ EINA SEM DUGAR (fi)t orenco HEILDSÖLUDREIFING Laugavegi 16, simi 240S7. Gódandaginn! 'LJ ■MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988 BARBARA BUSH Osköp hversdagsleg kona... Jarðbundin, skemmtileg, lítillát og hörð í horn að taka. Bar- böru Bush, hinni nýju forset- afrú í Bandaríkjunum, eru gjarna gefnar þessar einkunnir og þær eiga eftir að setja sinn svip á heimilisbraginn í Hvíta húsinu. Barböru lætur sér á sama standa um postulín og módel- kjóla eða rándýra loðfeldi eins og þá, sem hún Nancy Reagan er svo hrifin af. Það er heldur engin hætta á, að Barbara verði kjörin best klædda konan og hún hefur ekki af því neinar áhyggjur. Hún er orðin vön glósunum um að hún kunni ekki að tolla í tískunni, að hún hirði ekki einu sinni um að lita silfurgrátt hárið með þeim afleiðingum, að sumir halda, að hún sé móðir Bush en ekki eigin- kona. Hún er þó árinu yngri en hann, 63 ára gömul. Barbara hætti að lita á sér hárið þegar hún bara nennti því ekki lengur. „Ég get stundað mínar líkamsæfingar og leikið tennis. Ég þarf eki framar að segja við Georg: „FyrirgefðU, en ég er núbúin að setja upp á mér hárið.“ Mér leiðist fólk, sem hefur mestar áhyggjur af hárinu." Eins og venjan er með forseta- frúr verður ætlast til þess af Bar- böru, að hún helgi krafta sína einhveiju tilteknu málefni. Nancy Reagan tókst að draga athyglina frá hofmóðinum og stærilætinu með því að taka þátt í baráttunni gegn eiturlyfjum, með því að flytja um það fyrirlestra jafnt á fótboltavöllum sem í fundarsölum Sameinuðu þjóðanna, en þrátt fyrir það skorti alltaf eitthvað á einlægnina. Áhugamálið hennar Barböru er baráttan gegn ólæsi og hún veit hvað hún er að tala um. Neil, sonur hennar, þjáðist af lesblindu og átti í miklum erfiðleikum í æsku. „Þau eru mörg áhyggjuefn- in en á ýmsu má ráða bót með því að auka á skilninginn, með því að kenna öllum að lesa og Barbara Bush: lætur tískutildrið lönd og leið. Skiptum um kerti, skiptum um platínur, skiptum um loftsíu, strekkjum á tímakeðju, hreinsum bensínsíu íblöndungi, vélastillum, athugum viftureim, mælum oiíu á vél, gírkassa og drifi, athugum innsog, mælum hleðslu, athugum Ijós, Ijósastillum, athugum rafkerfi, athugum þurrkur og rúðusprautur og ísvara bættá rúðusprautu, mælum frost- Þ°l, smyrjum hurðalæsingar, athugum undirvagn, stilium kúplingu, athugum stýrisbúnað, athugum virknihemla og reynsluökum. Verð aðeins kr. 4.625,- LADA SAMARA Verð aðeins kr. 4.125,- án efnis Bifreiðaverkstæðið Stimpill, Auðbrekku30, Kópavogi, sími641095. skrifa,“ segir hún. Árum saman hefur Barbara aflað fjár og hvatt sjálfboðaliða til starfa í baráttunni gegn ólæs- inu og sem forsetafrú ætlar hún ekki að slá slöku við þetta hugðar- efni sitt. Þegar hún var með manni sínum í kosningabarát- tunni hafði hún jafnan með sér myndband þar sem hún sagði sög- una af Neil, syni sínum, hvernig tekist hefði að finna honum rétta kennara með þeim árangri, að nú hefur hann lokið háskólaprófi. Á kosningaferðalögunum sýndi Barbara líka stundum myndir af þeim hjónum í starfi og leik. Uppáhaldsmyndin er af þeim með Hirohito Japanskeisara. — „Pabbi Björn, mamma Björn og litli Björn,“ segir hún og kannski finnst einhveijum skorta dálítið á lotninguna fyrir hans hátign en svona er nú Barbara. Barbara hitti Bush þegar hún var 17 ára gömul og þau voru leynilega trúlofuð í tvö ár áður en þau gengu í hjónaband. Hún hætti í skóla, Smith College, en harmar það ekki, segir, að það að vera eiginkona og móðir fimm barna sé ekki síðri menntun en margt annað. -MARK TRAN Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Öðinsgata o.fl. Sóleyjargata o.fl. Lindargata 39-63 o.fl. JHorflimWiiíúí* . ; ••---------------------------------------—■ VOLVO árgerð 1989 Frumsýning Opið í dag kl. 13-16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.