Morgunblaðið - 20.11.1988, Síða 5
GOTT FÓLK / SlA
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
NÚREIKNINGUR
IÐNAÐARBANKANS
ER STÓRFRÉTT FYRIR
FYRIRTÆKI
C 5
Með Núreikningi eiga fyrirtæki nú kost á betri
bankaþjónustu en áður. Núreikningur er sniðinn
að þörfum fyrirtækja, hvort sem það eru stór
fyrirtæki eða einkarekstur, en öll geta þau haft
mikinn hag af nýjum Núreikningi Iðnaðarbank-
ans.
60% VAXTAHiEKKUN
Fyrst skal nefna, að með Núreikningi fá fyrir-
tæki að meðaltali 60% vaxtahækkun á veltu-
reikningi því vextir eru reiknaðir af stöðu hvers
dags. Um hver mánaðamót fá handhafar Nú-
reiknings yfirlit um heildarviðskipti fyrirtækisins
við Iðnaðarbankann og með tölvuþjónustu
Núreiknings geta fyrirtæki m.a. fengið færslur
Núreiknings á tölvutæku formi.
NÝJUNGAR í TÉKKAPRENTUN
Ýmsar nýjungar í tékkaprentun fylgja Núreikn-
ingi - fyrirtækjum til góða. Má þar nefna að fyrir-
tæki getur fengið merki sitt sérprentað á hvert
tékkaeyðublað og einnig er hægt að fá staka
tékka í margriti til hagræðingar fyrir bókhald.
Einn aðili innan bankans, svokallaður Núreikn-
ingsfulltrúi, "annast öll samskipti við fyrirtækið
varðandi Núreikning og þá þjónustu, sem þar er
boðið upp á. / '
IB-LÍNA IÐNAÐARBANKANS -
BEINT SAMBAND VIÐ BANKANN
Annar merkilegur fylgifiskur Núreiknings er ný
tölvulína Iðnaðarbankans, eða IB-lína eins og
hún nefnist. Með henni geta fyrirtæki tölvutengst
bankanum beint og þannig sparað símhringingar
og dýrmætan tíma sem fer í ferðir í bankann.
Með IB-línu fást upplýsingar um nýjustu stöðu
reikninga og yfirlit. Hægt er að millifæra milli
reikninga í Iðnaðarbankanum og öðrum bönk-
um, greiða gíróseðla, víxla og afborganir lána.
Einnig er hægt að fá á tölvuskjáinn upplýsinga-
töflur um vexti, gengi, gjaldskrá bankans, kaup-
gengi og vísitölur. Með IB-línu færð þú beint
samband við bankann.
Hafðu samband við næsta útibú Iðnaðarbank-
ans og fáðu allar nánari upplýsingar um Nú-
reikning.