Morgunblaðið - 20.11.1988, Blaðsíða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
NUDDNÁMSKEIÐ
fyrir byrjendur
verður haldið helgina 26. og 27. nóvember 1988.
Leiöbeinandi verður Sigurborg Guömundsdóttir nuddfræð-
ingur „Boulder School Of Massage Therapy".
Upplýsingar í síma 77102 í dag og næstu daga.
POTTÞÉTT
PÚSTKERFI!
Pústkerfi frá Bosal og Stuðlabergi.
í allar gerðir bifreiða.
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn! Láttu sjá þig sem
fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
Stórmarkaður bíleigenda i
1 i í
Metsölublað á hverjum degi! f
Mao hefði betur
verið brenndur
MAÓ formaður og leiðtogi kínverskra kommún-
ista vildi, að líkami sinn yrði brenndur að loknum
hérvistardögunum en ekki lagður til hvíldar i
grafhýsinu mikla í miðborg Peking. Kemur þetta
fram í grein, sem nýlega birtist í Vísinda- og
tækniblaðinu kínverska, en þar segir einnig, að
Maó hefði ákveðið og sett saman reglugerð þess
efnis, að þegar frammámenn kínverskra kommún-
ista burtkölluðust úr þessum heimi skyldu líkamar
þeirra ávallt brenndir.
HINSTA KVEÐJA - „Syrgjendumir“ sem söfnuðust
saman á Torgi hins himneska friðar til þess að votta
Mao virðingu sína, töldu eina milljón að sögn kínver-
skra stjómvalda þá
Hver vill vera næst-
ur,“ spurði Maó með
bros á vör þegar hann
hafði skrifað undir
líkbrennslusamninginn
og síðan komu þeir hver
á fætur öðrum, 151 for-
ystumaður í flokknum.
Einn þeirra, Chen Yun,
sem nú er 83 ára að
aldri, gekk raunar skref-
inu lengra árið 1959 þeg-
ar hann ákvað að ánafna
vísindunum skrokkinn
eftir sinn dag en í þess-
ari umræðu meðal
kínverskra kommúnista
um örlög allrar skepnu
er það þó Deng Yingchao,
ekkja Chou Enlais, fyrr-
um forsætisráðherra,
sem vill stíga skrefið til
fulls. Hún vill leyfa dauð-
vona fólki að ákveða
sjálft hvort bundinn er
endi á líf þess.
Ef Maó er undanskil-
inn hafa allir látnir
flokksleiðtogar verið
brenndir í Babaoshan-
byltingargrafreitnum í
Peking og askan sett í
krúsir eða dreift yflr
landið. Þegar komið var
fram í september árið
1976 var svo ástatt með
líkið af Maó, að það var
farið að rotna og grotna
niður og þá ákvað eftir-
maður hans, Hua Guo-
feng, að grafhýsið skyldi
reist á mettíma og var
engu skeytt um þótt það
félli ekki að stílnum og
yfirbragði hinna fomu
bygginga í Garði hins
himneska friðar.
Deng Xiaoping, eigin-
legur leiðtogi Kínveija á
síðari árum, sagði 1980,
að aldrei hefði átt að reisa
grafhýsið og brátt komst
sá orðrómur á kreik, að
það yrði rifið niður. Það
var þó ekki gert.
Líkami Maós liggur nú
í eins konar frysti og
geta gestir virt hann fyr-
ir sér undir gagnsæju
kistulokinu.
-JASPER BECKER
OG BESTI VINUR JACKS OG
HANN VAR TIL í AÐ GERA
HVAÐ SEM VÆRI TIL AD
AÐSKILJA ÞAU.
WILLIAM HURT • TIMOTHY HUTTON
HANN VAR BRÓDIR JOSIES
Á ÖRLAGASTUNDU
^ VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
SES LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Ný þjónusta
Mikíö úrval sturtuklefa og huröa.
Útvegum menn tíl uppsetninga.
Mœtum einnig ö staöinn og gerum tilboö ef óskaö er —
þér að kostnaöarlausu.
Eitt símtal — fullkomin þjónusta.