Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 2
I "&L.&....3ZZÍÍ VSBÍiSS* jl—l wmmé. Kynlegir kvistir Smám saman §ölgar í sjónvarps- hominu; Sigurbjörg Flosadóttir og Anna Magnúsdóttir, bráðhressar bóndakonur af Héraði stinga inn kollinum. Sibba segist stinga af frá búi og barni til að vinna sér inn pening því endar nái ekki saman. Anna kemur blaðskellandi beint frá lækninum en hún hefur skorið sig fyrr um daginn. Bjóðið fylltist af síld og hún sá ekki hvar hnífurinn kom niður. „Hann saumaði sex spor, þetta er bará krosssaumur hjá honum. Svo sagði hann að ég ætti ekki að skera á morgun en ég geri það nú samt,“ segir hún og hlær óskaplega. Salurinn fyllist smám saman af fólki, sumum dulítið kynlegum kvistum. Flestir skotra augunum forvitnislega til gestsins og láta þar við sitja. Ekki þó Svavar, stórbóndi á Flugu í Hörgárdal. „Helvíts Mogginn, það væri nær að Tíma- menn kæmu, að skipun Steingríms frænda," hnussar hann og sest sem flærst gestinum. Svíamir, sem hafa stungið inn kollinum öðru hverju flyklq'ast inn, einn með myndband undir hendinni. Þjóðimar tvær hafa lítil samskipti sín í milli en allir sameinast um að horfa á Rocky IV. Sumir Svíanna hafa þó hlotið viður- nefni hjá íslendingunum, t.d. „kjaftaskurinn" sem aldrei þagnar. Það er lítið annað við að vera á kvöldin, enda fólkið þreytt. íslend- ingamir tínast fyrr i háttinn, upp úr kl. 22 en Svíamir horfa á mynd- ina til enda. Bragginn þrifinn Það er vitlaust veður á miðunum um nóttina. Þegar menn tínast inn í borðsalinn rétt fyrir kl. átta til að fá sér fyrsta kaffitár dagsins, em fréttimar ekki góðar, engin síld. Regnið bylur á rúðunum og engan langar út en Hafsteinn verkstjóri tilkynnir að hann ætli að láta menn taka lokin af tunnunum og gera klárt fyrir söltun. Von er til þess að veðrið lægi og einn síldarbátur- inn komist inn íjörðinn. Anna og Sibba bjóðast til þess að þrífa braggana, enda ekki vanþörf á, þar sem sfldarhreistrið er hvarvetna. Það þekkja allir þeir sem hafa kom- ið nálægt síld. íbúðarbragginn er tvfskiptur; í þeim minni búa tíu íslendingar og þar em einnig skrifstofur, í þeim stærri er matsalur á neðri hæðinni og bústaður Svíanna á þeirri efri. Svíamir sem em á aldrinum 18-29 ára ganga hirðuleysislega um. Þröngur gangurinn milli herbergj- anna er fullur af pjönkum krakk- anna, fötum og vinnugöllum. Það má þó virða þeim til vorkunnar, að herbergin era svo lítil að dótið sem fylgir þeim, kemst varla fyrir, ef hægt á að vera að stinga niður fæti. A herbergjunum, sem em flest tveggja manna, era þröngar kojur, borð og lítill kollur. Annað rúmast ekki. I skúmaskotunum getur að líta áfengisflöskur frá undangengn- um helgardrykkjum, flestallar vodkaflöskur. Krakkamir halda heljarstórt partý á hverjum laugar- Morgunmaturinn er kl. 9.30 og þá er tekið hraustlega til matar síns. Margir taka sér sex-sjö samlokur, auk hafragrautarins og slátursins eða komfleksins. Og ofan á brauð er hægt að fá sfld en fáa langar í hana. „Og hvað er að þér?,“ hnussa mæðgumar í eldhúsinu, þegar ein- hver vogar sér inn á yfirráðasvæði þeirra. Fólkinu hefur gengið erfiðlega að vakna, en er að hressast. Þeir sem hafa unnið í meira en mánuð em orðnir langþreyttir. Konumar verkjar í únliði og handleggi eftir sfldarskurðinn, sumar geta ekki sofnað fyrir verk sem leggur upp eftir handleggnum. 0g hendumar em bólgnar. „Maður er mánuð að Aftnælisveislan í Ásgarði. Linda, Anna og Ina hafa það notalegt. degi, eða fara inn í bæinn til að skemmta sér. íslendingamir, sem em flestir mun eldri, taka ekki þátt í helgarfjörinu. Síldarvinnan er þeirra lífsviðurværi og þeir hvíla sig þegar tækifæri gefst. Bragginn er snyrtilegur þeirra megin og Sibba og Anna em eldfljótar með tiltekt- ina. En þær óar við því að þrífa hjá Svíunum og ákveða að þeir geti alveg gert það sjálfir. Langþreyttir kaffihléum er mikið sungið og spaugað. Og rætt um allt milli him- ins og jarðar. Vinnuna, aðbúnaðinn og kaupið ber oft á góma. Að ógleymdu umtalinu um náungann, sem blómstrar í svona litlu sam- félagi. Vinnan hefur óneitanlega áhrif; manni einum sem ber á góma er lýst þannig að hann sé eins og síld í framan. Og aliir þekkja hann á lýsingunni. Pása, hvað er nú það? Um hádegi hefur veðrið lægt og von er á síldarbát inn um kaffileyt- ið. Þegar hann leggst að er undir- aldan svo mikil að ekki er hægt að landa strax og það kennir óþolin- mæði hjá mannskapnum. Skipveij- um er ekki síður annt um að hefja löndun svo þeir geti keypt sér bijóstbirtu. Á meðan horfa nokkrir á myndbönd en flestir byija a^ undirbúa söltunina. Hún hefst stuttu síðar og þá gengur mikið á. Konumar raða sér við færibandið, vopnaðar tveimur hnífum °S hlífðarsvuntu. Þær hausskera °f slógdraga síldina hraðar en auga á festir og líta ekki upp úr vinnunn>- Ein og ein sænsk stúlka sker en hefur ekki roð við konunum, sem þekkja síldarsöltun frá blautu bamsbeini, sumar aldar upp í síldar- plássum á borð við Sigluijörð. Ég reyni söltunina sjálf og nýt leið- sagnar verksljóranna, því síldar- stúlkurnar mega ekkert vera að slíku. Það er erfitt að skera fyr>r óvanan. Þegar þijú sfldarmerki eru komin í stígvélið verkjar mig í úln- liðina og er komin með náladofa 1 Einn íbúanna í Ásgarði nýtur tónlistarinnar. Lottu var dembt ofan í fiskkar fullu af vatni í tilefni af síðasta vinnudegi sínum hjá Norðursíld. jafna sig eftir svona törn. En það er svo skrýtið að þegar maður lítur til baka eftir svona tvo mánuði, þá hefur þetta verið ofsalega skemmti- legt. Þetta er erfítt en það er svo gaman að kynnast öllu þessu fólki, frá mismunandi löndum," segir Sibba. Tony Hunt, breskur rafvirki, tekur undir með Sibbu. Hann er á síld í annað sinn og hefur mikinn áhuga á landi og þjóð. Það er komið los á sænska hóp- inn. Krakkamir hafa verið hérlend- is síðan í september og em orðin þreytt enda ekki vön vinnu eins og hún tíðkast hér. En þau em víking- ar til vinnu nema hún Súsanna litla, sem gerir allt Iöturhægt. Nokkur era farin eða á fömm en önnur ætla sér að vera fram yfír jól ef einhveija vinnu er að fá. Þegar þau em spurð hvers vegna þau séu hér, verður fátt um svör. Sum segjast hafa komið þar sem þau hafi talið að hér væri auðfenginn gróði og sum bera við atvinnuleysi. Rétt eins og íslendingamir em Svíarnir hress hópur. í matar- og Alla ráðskona skýst á milli húsa í bleytunni. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.