Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
C 3
einn fingnrinn. Konurnar hlæja
dátt að mér, og segja þetta ein-
kenni eftir mánaðarlanga söltun.
'Þær vinna ótrauðar fram undir ell-
efu en þá á að hætta. „Pása, hvað
er nú það?“ gellur í þeim þegar
bjallan hringir í kaffihlé.
Skyndilega birtast í skemmunni
skipvetjarnir af síldarbátnum
Ágústi Guðmundssyni með nikku,
syngjandi sjómannasöngva. Spiliríið
er eins og vítamínsprauta fyrir kon-
urnar. Þær taka hraustlega undir
og sveifla hnífunum, svo það er
mesta mildi að engin skuli slasa sig.
Enginn vill í flörið
Flestir ná að hvíla sig örlítið eft-
ir kvöldmatinn; leggja sig, skrifa
bréf, nú eða horfa á myndböndin
sívinsælu. Lítil húsamús, sem hefur
komist inn, hefur hreiðrað um sig
bak við sjónvarpið og truflar sýn-
inguna með því að skjótast fram
og til baka. Eftir kvöldmat sitja
nokkrir Svíanna áfram og horfa á
myndina í óþökk Öllu ráðskonu sem
vill horfa á fréttirnar. Þeir verða
að víkja og fara upp til sín. Von
bráðar nötrar loftið, þeir hafa skrúf-
að tónlistina í botn og reyna jafn-
framt að tala saman. Þannig geta
þeir haldið áfram fram á nótt. Sagt
er að einn eldri maður sem á bágt
með að þola lætin, eigi það til að
berhátta sig, fara fram á gang og
skipa þeim að steinhalda sér sam-
an. Slíkar aðgerðir gera Svíana
kjaftstopp; í bili.
Á meðan er söltununni að ljúka
en skipveijarnir syngjandi eru
hreint ekki á þeim buxunum. íslend-
ingarnir koma við í matsalnum til
að fá sér kaffisopa áður en þeir
skríða dauðþreyttir undir sæng, svo
ekki þýðir að eiga við þá. Skip-
veijamir fara því upp til Svíanna
en þeir taka þeim einnig tómlega.
Einn skipveija tekur þá á það ráð
að spræna af tröppunum, yfir
síldartunnurnar, sem til allrar guðs-
lukku eru kyrfilega lokaðar. Síðan
fara þeir um borð enda ekkert ann-
að að gera.
Seyðisfjörður kvaddur
Við erum mörg sem yfirgefum
Seyðisfjörð á föstudagsmorgni. Þrír
©NAÐARBANKINN VE> DALBRAUT:
Útibú okkar við Dalbraut hefur
tekið stakkaskiptum. Við höfum
ekki aðeins breytt aðstöðu
starfsfólks og viðskiptavina til
hins betra - þjónustan hefur verið
endurskipulögð, gjaldkerum
fjölgað og afgreiðslufyrirkomulagi
breytt í taktvið nýja tíma.
Við erum sannfærð um að
Svíinn Stefan tekur hraustlaga
til matar síns við morgunverðar-
borðið.
Svíanna em á leið til Reykjavíkur
þar sem þeir halda að sé meira um
að vera. Áuk þess era nokkrir menn,
greinilega í viðskiptaerindum og
skipsáhöfn, sem hefur fengið sér
ærlega neðan í því þó klukkan sé
rétt tíu að morgni. Söltunin er kom-
in í fullan gang og enginn má vera
að því að kveðja. Ég doka því við
fram að kaffi. Þar eru menn þegar
famir að hugsa til kvöldsins. Síldar-
stúlkumar ræða hvað þær eigi að
kaupa sér í Ríkinu, og hallast helst
að því að kaupa sér viskí og fá sér
irish coffee. Svíarnir halda sig við
sterkari drykkina. Við kveðjumst
með virktum. Á þessum stutta tíma
hefur fólkið viljað allt fyrir mig
gera. Þrátt fyrir að íbúðarbragginn
sé engin höll, eru móttökurnar á
áranguiinnverður
ermbetriþjónusta!
Veriðvelkomiii!
(?) iðnaðarbanUnn
-nútim knKi
Laugarnesútíbú. Dalbraut 3. Sími 685488
w
Gffi AUGlýSP