Morgunblaðið - 27.11.1988, Page 7

Morgunblaðið - 27.11.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 C 7. Sigríður fæddist árið áður en síðari heimsstyrjöldin braust út og man fyrst eftir sér á Skólavörðu- holtinu á stríðsárunum. Faðir hennar, Geir Stef- ánsson, lögfræðingur og stórkaupmaður, rekur ættir sínar austur til Vopnafjarðar, en móðir hennar, Birna Hjaltested, er innfæddur Reykvíkingur og hef- ur ætt hennar búið í Reykjavík í hartnær þijú hundruð ár. Frá bernsku sinni minnist Sigríður tíðra heimsókna ijölskyldunnar á Suður- götu 7, til afa hennar, séra Bjarna Hjaltested og Stefaníu ömmu, sem var dönsk. „Bemsku- og unglingsárin móta persónuleika mannsins og á fyrstu hún tók þátt í fegurðarsamkeppn- inni, sem átti eftir að breyta öllum hennar framtíðaráformum. í keppn- inni á Langasandi árið eftir vakti Sigríður einna mesta athygli kepp- enda enda fór það svo að strax að henni lokinni fékk hún tilboð frá Musical Corporation of America, sem þá var ein virtasta umboðs- skrifstofa fyrir leikara og söngvara í Bandaríkjunum. Þegar hér var komið sögu varð ekki aftur snúið og ljóst að Sigríður myndi ekki hverfa heim til íslands í bráð. „Mér var fenginn sérstakur umboðsmaður, Harry Abrahams, sem hafði það hlutverk að kynna mig í kvikmyndaheiminum. Á hveij- um morgni var farið með mig í við- töl við hina og þessa framleiðendur vera allt í einu komin mitt á meðal þessa fólks og ég skemmti mér oft konunglega. Fólkið sjálft var hins vegar ekki allt eins spennandi og maður hafði ímyndað sér. Ég man til dæmis hvað mér brá þegar ég sá Övu Gardner og Ritu Hayworth í fyrsta skipti. Þær voru nú ekki alveg eins fallegar og á myndunum sem við Ann vorum að líma í stíla- bókina forðum. Margir karlleikar- amir voru heldur ekki eins myndar- legir og spennandi og þeir virðast á hvíta tjaldinu. Flestir þeirra voru meðalmenn á hæð og sumir svo litl- ir að þeir voru settir á kassa þegar þeir voru með konu í nærmynd, eins og til dæmis Alan Ladd. Ég hef hitt fjöldann allan af þessu fólki og gæti sagt þér ótal CORAZON AQUINO: Frekar alvörugefin. BENIGNO AQUINO: Alltaf blíður og brosandi. KIRK DOUGLAS: Tók hann nokkur ár að komast út úr hlutverki Spartacusar. sögur af því ef það er það sem þú ert að leita eftir. Ég gæti til dæm- is sagt frá því þegar ég fór í nýárs- boð hjá Frank Sinatra, eða þegar ég dvaldi um jól á búgarði Robert Mitchum í Maryland. Það gerðist eftir að ég var flutt til New York. Ég kynntist syni Roberts, Jimmy, þegar ég var að læra söng í Holly- wood og hann heimsótti mig eitt sinn í New York. Birna systir bjó þá hjá mér og við vorum ekki al- mennilega búnar að koma okkur fyrir í íbúðinni. Þetta var rétt fyrir jólin og Jimmy stakk upp á að við kæmum með honum heim til for- eldra sinna og værum þar yfir jólin. Við þáðum boðið og áttum þarna skemmtileg jól. Ég hafði kynnst Robert áður í Hollywood og þau hjónin tóku afskaplega vel á móti okkur systrunum. Hann gekk með mér um allt og sýndi mér landar- eignina. Húsið var gríðarstórt og það var meðal annars notað í sjón- varpsþættinum Stríðsvindar sem sýndir voru hér í fyrra. Yngri sonur- inn Chris, sem var jafngamall Birnu, var þarna líka og svo dóttir- in. Þetta var ósköp venjuleg og þægileg fjölskylda. Ég gæti líka sagt þér frá því þegar Kirk Douglas kastaði sér yfir mig á baðströnd á Acapulco og lét eins og hann væri enn í hlutverki Spartacus, en það tók hann nokkur ár að komast út úr því hlutverki. Ég reiddist að sjálfsögðu og spurði hver hann héldi eiginlega að hann væri og þá hundskaðist hann í burtu. Það fannst mér ekki sérlega geðfelldur maður, að minnsta kosti ekki þá stundina. En eins og ég sagði byggist allt líf þarna á samböndum og þau fær maður meðal annars með því að mæta í sem flest viðtöl og sam- kvæmi og fara á frumsýningar. I Ameríku á þessum árum fór ung stúlka ekki ein í slík samkvæmi heldur varð hún að vera í fylgd herra. í fyrstu sá Harry um að fara með mig og ég man að eitt af því fyrsta var á eins konar forfrumsýn- ingu á „Never on sunday". Hún var haldin í sérstökum sal sem Sam- band kvikmyndaleikara átti og var lokuð fyrir almenning þannig að þarna voru bara leikarar og frægt fólk. Eftir sýninguna fóru allir inn í hliðarsal í kokteil en ég sat eftir í sætinu og var að hugsa um mynd- ina. Þá kom skyndilega annar heið- ursgestanna út úr hliðarsalnum, Jules Dassin, leikstjóri myndarinnar og eiginmaður aðalleikkonunnar Melinu Mercouri. „Ég sé að þú ert eins og ég, ekki mikið fyrir marg- menni,“ sagði hann og við tókum tal saman. Þá kom Melina og fór að dást að kjólnum sem ég var í, en hann var úr efni sem ég hafði keypt í Tyrklandi, áður en ég kom til Ámeríku. í framhaldi af því fór ég að tala um dásemdir Tyrklands og nefndi það við Dassin að hann ætti endilega að taka upp mynd í þessu stórbrotna landi. Hann kvaðst nú aldrei hafa leitt hugann að því. Ég veit ekki hvort þetta samtal okkar hefur haft áhrif á það eða ekki að minn maður fór nokkrum PETER STRAUSS: Ekki sérlega spennandi. tuttugu árum ævinnar skipti ég þrisvar um heimkynni, flyt á milli ólíkra menningarsvæða og hef kannski rétt náð að skjóta rótum á einum staðnum þegar ég flyt á annan. Þess vegna bijótast þrír ólíkir menningarstraumar um í mér og þótt það auki kannski víðsýni hefur það sína galla. Það er erfitt að skipta um land og þurfa sífellt að tileinka sér nýja siði, ekki síst fyrir börn. Ég mæli ekki með því við neinn. Pabbi var í viðskiptum og fjölskyldan flutti til Svíþjóðar þegar ég var 7 ára. Ég var þá orð- in læs og það hefur eflaust bjargað miklu hvað íslenskuna varðar, en systur mínar Anna og Birna, sem þá voru þriggja ára og ellefu mán- aða, lærðu ekki íslensku fyrr en við fluttum aftur heim níu árum síðar." Sigríður settist í Menntaskólann í Reykjavík þegar hún flutti aftur til íslands frá Svíþjóð og lauk stúd- entsprófi 1958. Að loknu stúdents- prófi hóf hún nám í sænsku og frönsku við Háskóla íslands og hafði lokið fyrsta vetrinum þegar og leikstjóra. Svo var ég látin fara í prufuupptökur og myndir teknar af mér með einhveijum leikurum til að vekja á mér athygli. Ég var til dæmis látin þvælast um alla Beverly Hills heilan dag með leikar- anum Edd Byrnes í auglýsingaskyni fyrir blaðið Photoplay. Ég man að mér fannst það heldur óþægilegt og óviðeigandi þegar hann var að kjassa mig og kremja við ólík- legustu aðstæður, bláókunnugur maðurinn. En svona var lífið þama. Það var alltaf verið að setja eitt- hvað á svið og yfirleitt var þetta allt sýndarmennska í von um eftir- tekt. Hollywood og fræga fólkið Sigríður færist undan því í fyrstu að ræða kynni sín af fræga fólkinu í Hollywood, finnst eins og það virki sem sjálfshól af sinni hálfu auk þess sem sjálfri finnist henni ekkert sérstakt til þess koma að hafa kynnst þessu fólki, a.m.k. ekki sumu þeirra. „Þegar ég var lítil stúlka í Svíþjóð fylgdist ég vel með því sem var að gerast í Hollywood í gegnum sænsku kvikmyndablöðin. Við Ann Forsman, vinkona mín, klipptum þá uppáhaldsstjörnurnar okkar út úr blöðunum og límdum þær í stílabók. í undirmeðvitundinni hefur þá sjálfsagt fæðst einhver þrá til að líkjast þessu fólki og lifa svona lífi og auðvitað var spennandi að GÓÐIR ISLENDINGAR Útgáfudagur plötu, kassettu og geisladisks 1. desember : • VALGEIR GUÐJONSSON Tónleikar í íslensku Óperunni sunnudagskvöld 4. desember kl. 21:00 Forsala aðgöngumiða í íslensku Óperunni og hljómplötuverslunum Steina hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.