Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 8
• ' ■ “...- * ' 7' MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 HJÁ FRÆGU FfiLKI árum síðar til Istanbul og tók upp myndina Topaz. Það eru svona atvik og skemmti- legar tilviljanir, sem ég man best eftir, eins og til dæmis þegar ég hitti Shirley McLaine í fyrsta skipi, en það var í mátunarklefa hjá klæð- skera í Hong Kong, þar sem við vorum báðar að láta sauma á okkur kjóla. Hitt, sem gerðist frá degi til dags, rennur meira saman og eins minningin um fólk sem maður hitti oft og kannski daglega. Ég get þó nefnt Jill St. John sem var góð vin- kona mín. Ég var líka í góðum kunningsskap við Goldie Hawn og Ann Margaret. Goldie var þá óþekkt og hún þurfti að bíða lengi eftir frægðinni, ein fimmtán ár. Eg hefði aldrei haft þolinmæði til þess. Kvikmyndir og sjónvarp „Þegar ég kom til Hollywood voru sjónvarpsþættir að stíga sín fyrstu spor og eftir á að hyggja held ég að réttara hefði verið að beina mínum starfsframa frekar að þeim. Ég held því að mínum málum hafi verið vitlaust stjórnað af hálfu umboðsskrifstofunnar. Ég lék í fjór- um kvikmyndum á þessum árum. Ein var um Hitler, þar sem ég lék hjúkrunarkonu. Næst fékk ég eitt af aðalhlutverkunum í myndinni The Crawling Hand þar sem Rod Lauren var mótleikari minn. Hann hafði þá slegið í gegn sem söngv- ari, náð lagi í efsta sæti vinsælda- listans og var að reyna fyrir sér í kvikmyndum. Ég hitti hann aftur nokkrum árum síðar í New York, en síðan veit ég ekkert hvað af honum varð. Næst fékk ég smáhlut- verk í mynd sem hét Bedtime Story, en aðalhlutverkin í henni léku David Niven og Marlon Brando. Ég man að mér þótti þetta hlutverk heldur lítilfjörlegt og var eitthvað að kvarta yfir því við David og við ræddum saman allan daginn á milli þess sem verið var að mynda. Hann var mjög rólegur og afslappaður og gat talað um allt milli himins og jarðar. Aftur á móti var Marlon Brando miklu þyngri og ég kynntist honum lítið. Hann var allan daginn úti í horni með kennara sínum að æfa textann. Hann virtist hafa mjög mikið fyrir hlutverkinu eða þá að hann hefur verið svona afskaplega vandvirkur. Svo fór ég að leika í sjónvarps- þáttum sem urðu um 20 taisins. Þar kvað mest að Beverly Hillbill- ies, sem var kjörinn vinsælasti sjón- varpsþátturinn eitt árið. Ég lék þar hlutverk franskrar þjónustustúlku og hlaut nokkrar vinsældir fyrir, komst til dæmis á forsíður ein- hverra blaða og fékk aðdáendabréf. Ég lék líka í einum sjónvarps- þætti með Peter Strauss, en það var fyrsti sjónvarpsþátturinn sem hann kom fram í. Hann var þá nýbúinn að slá í gegn og kom frá New York bara fyrir þennan eina þátt. Ég lék kærustuna hans í þess- um þætti og man að mér þótti mótleikarinn ekkert sérlega spenn- andi, hann var bæði lítill og bólu- grafínn. Svo lék ég í einum Dr. Kildare-þætti þar sem Dick Cham- berlain lék aðalhlutverkið, en þetta var hans sjónvarpsþáttaröð í mörg ár áður en hann fór að leika í kvik- myndum. Mér fannst hann svolítið stirðbusalegur í framkomu í þá daga, en hann breyttist mikið síðar. Eins var ég í tveimur þáttum með John Forsythe, þessum sem nú leik- ur gamla manninn í Dynasty, en þeir þættir hétu Bachelor’s Father“ og hann lék titilhlutverkið. Filippísku vinirnir „Skömmu eftir keppnina á Langasandi fór ég í þriggja mánaða sýningar- og söngferðalag til Filippseyja, Hong Kong og Japans. Kynnir í þessari sýningu var leikar- inn Jeff Chandler, en hann var þá að gera kvikmynd á þessum slóðum. A Filippseyjum kynntist ég ágætu fólki sem átti eftir að verða nánir vinir mínir næstu árin. Sýn- ingin var haldin í Araneta Coloss- eum í Queson City, sem var þá stærsta yfírbyggða hringleikahús í heimi, tók um 10 þúsund manns í sæti og alltaf troðfullt. Það var í eigu Araneta-fjölskyldunnar, en þetta fólk var í hópi hinna efnuð- ustu á Filippseyjum. Araneta átti þijú böm á okkar aldri. Elsta dóttir- in Judy var þá gift Gerald Roxas, en faðir hans var fyrrverandi for- seti Filippseyja. Ég hitti þetta fólk nokkrum sinn- um síðar í Ameríku og í gegnum Judy kynntist ég meðal annars Benigno og Corazon Aquino, systur hennar Sari og yngsta bróðurnum, Joseph Cojuangco. Benigno og Corazon voru miklar andstæður, hann alltaf blíður og brosandi en hún frekar alvörugefin. Sari varð góð vinkona mín og við skrifuð- umst á við og við og seinna bar hún upp bónorð fyrir hönd yngsta bróður síns. Faðir þeirra var þá látinn, en á Filippseyjum var það siður að elsti meðlimur fjölskyld- unnar bæri upp bónörðin fyrir hönd hinna yngri. Ég var ekki í giftingar- hugleiðingum á þessum tíma, og í formlega svari, sem ég gaf við þessu bónorði, bað ég þau um að hugleiða hvort ekki væri varhuga- vert fyrir fólk í þeirra þjóðfélags- stöðu að fá útlending í Ijölskyld- una. Ekkert varð því úr þessum áformum. Nokkrum árum síðar, eftir að ég var flutt til New York rakst ég af tilviljun á Araneta sjálfan og hann bauð mér að líta inn einhvem dag- inn í íbúð sína á Waldorf Astoria hótelinu. Þar hitti ég Marcos í fyrsta skipti, sem síðar átti eftir að verða forseti Filippseyja, en hann starfaði þá hjá Sameinuðu þjóðunum. Við hittumst í lyftunni á leiðinni upp til Araneta. Þetta var svolítið fynd- ið því við gáfum hvort öðru auga Á þröskuldi frægðarinnar Á efri myndinni er Sirry Steffen á götu í Hollywood með leikaranum Edd Byrnes. Myndatakan var sviðsett fyrir blaðið Photoplay í auglýsingaskyni. Til hliðar er hún með verðlaunagripinn fyrir titilinn „besta Ijósmyndafyrirsætan“ í keppninni á Langasandi. þama í lyftunni og fómm svo bæði út á sömu hæð og gengum að sömu dyrunum á hótelinu. Þegar inn var komið kynnti Araneta okkur og sagði að þetta væri maðurinn sem hann ætlaði að styðja í forsetaemb- ættið á Filippseyjum. Marcos var laglegur og aðlaðandi á þessum árum og ég stóðst ekki mátið og sagði að hann hefði svo sannarlega valið sér myndarlegan frambjóð- anda. Nokkmm ámm síðar, þegar ég vann við sjónvarp og sýningar- störf í Manila, kom fyrirspurn frá forsetanum um hvort þarna væri á ferð sú sama „Miss Iceland“ og hann hefði hitt í lyftunni á Waldorf Astoria. Þegar honum var svarað játandi var mér boðið í kvöldverð til forsetans ásamt fleira fólki. Hollywood kvödd Þegar Sigríður hafði búið í Holly- wood í fjögur ár var hún farin að ókyrrast. Hún var þá farin að leika í sjónvarpsauglýsingum og fékk meðal annars tilboð frá New York sem hún tók. „Það var auðvitað margt sem olli því að mér fannst ég verða að skipta um umhverfi. Það getur stundum verið erfitt að vera útlend- ingur á svona stað og að sumu leyti var ég ein á báti og fékk ekki þann stuðning sem sumir aðrir erlendir leikarar höfðu. í flestum löndum em gefin út kvikmyndablöð sem hafa sérstaka blaðamenn í Holly- wood til að fjalla um „sitt fólk“. Ég hafði ekkert slíkt, en fékk nokk- um stuðning af sænska hópnum, þar sem ég hafði búið í Svíþjóð. Það sem ég held þó að skipti sköp- um til að endast í svona umhverfi er að hafa foreldra sína eða vanda- menn og fjölskyldu hjá sér. í New York trúlofaðist ég banda- rískum manni, Robert Weltz. Hann er af gyðingaættum og faðir hans var mótfallinn ráðahag okkar og tókst að koma í veg fyrir að við giftum okkur. Bob giftist síðan tvisvar gyðingastúlkum, fyrir til- stilli gamla mannsins, en skildi við þær báðar. Þannig fer það stundum þegar foreldrar em að skipta sér af ráðahag bamanna. Eftir að faðir hans dó giftist hann kristinni konu og það hjónaband gengur vel. Við höldum góðu sambandi og ég og Stefán maðurinn minn heimsóttum hann og konu hans á heimili þeirra í Santa Barbara síðastliðið sumar.“ Áður en Sigríður flutti heim dvaldi hún ásamt Onnu systur sinni í eitt ár í Austurlöndum, m.a. á Filippseyjum og í Bangkok, en Sigríður söng á Hilton-hóteli og næturklúbbi auk þess sem hún kom fram í sjónvarpsþáttum. Bob Hope var þá að skemmta hermönnum í Víetnam, bjó á hóteli í Bangkok, en flaug til Víetnam á morgnana og kom aftur á kvöldin. Eitt kvöld-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.