Morgunblaðið - 27.11.1988, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.1988, Side 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 Slansky yngri: hefur enn ekki skipt um nafn. RUDOLF SLANSKY, 53 ára gömlum syni og alnafna eins kunnasta kommúnistaleiðtoga Tékkóslóvakíu, sem var hengdur eftir illræmd sýndarréttarhöld 1952, hefiir verið leyft að snúa sér aftur að verkfræðistörfiim eftir margra ára hlé. Hann hefiir ekki fengið að stunda þessa sérgrein sína síðan hann hóf baráttu gegn því stjórnmálakerfi, sem faðir hans trúði á og lagði líf sitt í sölurnar fyrir. KOMMSSARANNA Slansky yngri tók nokkum þátt í að móta þá stefnu, sem var tekin upp á „vordögun- um“ í Prag 1968, en hefur verið pólitískur andófsmaður síðan innrásin var gerð. Hann er einn kunnasti stjómarandstæðing- urinn í Tékkóslóvakíu sem hefur fengið að taka aftur upp fyrri störf, en eftir á að koma í ljós hvort hann reynir að fá aftur inngöngu í flokk- inn, eða hvort innganga hans fæst samþykkt. Hingað til hafa frammámenn jafnt sem og upprennandi forystu- menn í kommúnistaflokknum talið ráðlegast að sniðganga Rudolf Slansky yngra til að stofna frama sínum ekki í hættu. í tæp 40 ár hefur hann orðið að þola ofsóknir, útskúfun, niðurlægingu og óvissu. Á þeim tíma hefur hann hitt fólk, sem hefur talið föður hans hetju, fómarlamb, píslarvott, leikbrúðu, MERLENDBH HRIWCSfÁ eftir Gudm. Halldórsson kjána eða þrjót og aðallega um- gengizt aðra andófsmenn og lista- menn og verið félagi í fámennum samtökum þeirra. Slansky yngri hefur dregið í efa ýmsar þjóðsögur, sem hafa orðið til um föður hans, og stundum ver- ið að því kominn að skipta um nafn, en hætt við það. Hann á margt sammerkt með Lazlo Rajk yngra, syni og alnafna eins voldugasta leiðtoga ungverskra kommúnista eftir heimsstyijöldina, sem beið sömu örlög og Rudolf Slansky eldri, og mörgum öðmm sonum bylting- arsinna í Austur-Evrópu, sem urðu ■að þola fangelsisvist og pyntingar fyrir trú_ sína á málstað kommún- ismans. í þeim hópi em m.a. Adam Michnik, ráðgjafi Samstöðu í Pól- landi, Miklos Haraszti, ritstjóri ung- verskra neðanjarðarrita, og margir félagar í mannréttindasamtökunum Charta 77 i Tékkóslóvakíu. Lognar ásakanir Slansky eldri var einn af fram- kvöðlum hreyfingar kommúnista I Tékkóslóvakíu og átti mikinn þátt í valdaráni þeirra 1948. Hann var um skeið annar valdamesti maður landsins, en var handtekinn þegar Júgóslavar vom reknir úr Komint- em og ákærður fyrir njósnir, land- ráð og zíonisma. Hann sætti pynt- ingum í fangelsi og játaði á sig allar sakargiftir, þótt þær væm lognar, þegar hann kom fyrir rétt ásamt 14 öðmm sakborningum, þar af 11 gyðingum. Eftir líflát hans og 10 annarra sakborninga 1952 Rudolf Slansky (1947): hátt fall. vom ekkja hans, Josefa, og Slansky yngri kyrrsett og þremur áram síðar var ekkjunni tilkynnt að mað- ur hennar hefði látizt af „köfnun eftir hengingu“. Ákæmrnar gegn Slansky vom felldar niður 1963 og skömmu síðar tilkynnti innanríkisráðuneytið Jos- efu Slansky að jarðneskar leifar hans hefðu verið brenndar og krukku með ösku hans hefði verið eytt til að rýma fyrir öðram. Slansky hlaut síðan uppreisn æmá „vordögunum" 1968. Þegar fréttamaður New York Times, Michael T. Kaufman, hitti Rudolf Slansky yngra að máli ekki alls fyrir löngu var hann tregur til að ræða um ævi sína og fjölskyldu. Hins vegar dró hann upp viðtal, sem æskulýðsblaðið Mladu Svet (Heim- ur æskunnar) átti við hann vorið 1968. Þar greindi hann frá því sem gerðist kvöldið 22. nóvember 1951, þegar hann var 16 ára. Foreldrar hans vom úti að skemmta sér þetta kvöld. Tveir menn vöktu hann, sýndu honum skilríki til að stað- festa að þeir væm starfsmenn leyni- lögreglunnar og fóm með hann. Upp frá þessu var líf hans líkast martröð. „Ég sá föður minn aldrei fram- ar,“ sagði Slansky. „Ég hitti móður mína aftur daginn eftir í kofa skóg- arvarðar í Hvozdy, þar sem við vomm höfð í haldi.“ Sjálf lýsti hún reynslu sinni í bókinni Skýrsla um eiginmann minn, sem kom einnig Skömmu eftir að þau vora hand- tekin rákust þau á klausu í blaði, sem hafði verið notað sem umbúðir um kjöt, þess efnis að Klement Gottwald, leiðtogi flokksins, vissi um handtökurnar. Josefa Slansky minnist þess að sonur hennar sagði: „Ég veit þetta er erfitt, en ef félagi Gottwald veit þetta hlýtur Stalín að vita það líka og við hljótum að geta treyst honum.“ í viðtalinu 1968 sagði Slansky yngri: „Ljóst var að handtökurnar höfðu farið fram með vitund flokks- ins og Gottwalds og ég trúði á flokkinn. Ég vissi um Rajk-réttar- höldin og sumt af því sem hafði gerzt í réttarhöldunum í Rússlandi, en hvemig sem ég reyndi að gera mér grein fyrir því hvað kynni að hafa valdið því að faðir minn var handtekinn sá ég enga ástæðu til að ætla að hann væri sekur. í skóg- arkofanum, þar sem vörður gætti okkar, fann ég grein í blaði, þar sem þess var getið að ein ákæran fjallaði um zíonisma og fram kom andúð á gyðingum. Ég minntist þess ekki að faðir minn hefði nokk- urn tíma talað um gyðinga á heim- ili okkar. Það var hreint mgl að bendla föður minn við zíonisma." Engu að síður sótti Slansky yngri um að verða tekinn aftur í flokkinn skömmu eftir að ákærurnar gegn föður hans vom felldar niður 1963. Tæpu ári síðar fékk hann aftur inn- göngu í flokkinn, en hann var rek- inn úr honum aftur þegar hann gekk í Charta 77. Slansky yngri talaði af stillingu um reynslu sína, þótt hún hefði greinilega valdið honum sálarkvöl- um, og forðaðist að setja sig í dóm- arasæti. Hann gat þess aðeins laus- lega að honum hefði verið meinað Rajk yngri: áttar sig ekki ð þjóðsögum. út 1968. Fyrst hélt hún að „útsend- arar Vesturveldanna" hefðu rænt henni og hún skrifaði um fund sinn og Slanskys yngra daginn eftir: „Ég þekkti varla augu hans aft- ur. Þetta vora ekki lengur augu 16 ára gamals drengs, áköf og full af æskufjöri. Þetta vora augu þrosk- aðs manns, sem hafði reynt sitt af hveiju. Ég þorði varla að horfa í þessi augu í mörg ár á eftir, svo hrædd var ég við að skjálfa af sama ótta aftur og aftur.“ Treysti Stalín Orð hennar skýra að nokkm fá- læti sonar hennar. Það sem hún skrifar um upphaf kyrrsetningar þeirra, sem stóð í þijú ár, varpar líka ljósi á hugarástand hans. Rajk-feðgar: gylliboð um dvöl á Krím. að stunda nám í gagnfræðaskóla og að hann hefði verið neyddur til að vinna í verksmiðju, en orðið að búa í 10 km fjarlægð frá henni. Þegar hann undirritaði mannrétt- indaskrána Charta 77 vora honum fengin tilgangslaus verkefni í verk- fræðideild byggingafyrirtækis, sem hann starfaði hjá. Hann er líkur föður sínum í út- liti og býr einn í tveggja herbergja íbúð, þar sem allir veggir em þakt- ir bókum. „Já, síminn er hleraður,“ sagði hann, „og stundum er mér veitt eftirför. En það gerir ekkert til, þetta er bara svona og reyndar er ástandið að batna.“ Um stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs sagði hann: „Allt er að breytast og ekkert hefur breytzt." Hann kvaðst þó fagna hinni nýju stefnu, taldi hana ósvikna og kvað hana hafa skotið leiðtogum Tékkóslóvakíu skelk í bringu. Frambjóðandinn Lazlo Rajk, sem er 38 ára gam- all arkitekt, líkist um margt Rúdolf Slansky yngra. Hann er pólitískur andófsmaður og stjórnvöld hafa hundelt hann. Þeir hafa hitzt einu sinni, en þeir skiptust aðeins á kveðjum og höfðu orð á því að ör- lög þeirra væm svipuð. Líf og dauði feðra þeirra minnir á bók Koestl- ers, Myrkur um miðjan dag og ör- lög sonanna gætu verið efni í fram- hald þeirrar bókar. Rajk yngri minnir á föður sinn í útliti. Á tímabili seldi hann neðan- jarðarrit, samizdat, í íbúð sinni í Búdapest. Að lokum létu borgar-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.